Tíminn - 18.07.1975, Síða 1
Verk-
1 stæðis
Landvélar hf
Gífurlegar gróður-
skemmdir á heiða-
löndum Mývetninga
ASÍ fordæmir
vörugjaldið
en fagnar
útfærslunni
Gsal—Rvlk,—Stór svæði á heið-
um Mývetninga eru nú kolsvört á
FLUGLEIÐIR
ÍHUGA NÝJA
SKRIFSTOFU-
BYGGINGU
H.V. Reykjavik. — Það er í at-
hugun hvort — og þá hvernig —
Flugleiðir koma til með að byggja
viðbótarhúsnæði fyrir sig, en
fram til þessa hafa engar
ákvarðanir verið teknar þar að
lútandi —, sagði Kristján Guð-
laugsson, stjórnarformaður
Flugleiða, í viðtali við Timann, en
Flugleiðir hafa undanfarið búið
við nokkurn húsnæðisskort, eink-
um siðan flugskýlið stóra á
Reykjavikurflugvelli brann i vet-
ur og Tæknideild Flugleiða varð
að flytja starfsemi sina i húsnæði
á Hótel Sögu.
Kristján sagði ennfremur, að
Flugleiðir ættu kost á fleiri en
einum möguleika i byggingar-
málum, til dæmis væri lóð þeirra
við Reykjavikurflugvöll nægilega
stór, til þess að leyfa viðbyggingu
við skrifstofuhúsnæði þeirra og
einnig væri sá möguleiki fyrir
hendi, að byggja þar ofan á.
Þá sagði Kristján að innan
skamms myndi Kr. Kristjánsson
rýma húsnæði það, sem fyrirtæk-
ið hefur haft á jarðhæð Hótel
Esju, og væntanlega myndi það
leysa vandkvæði Flugleiða að
nokkru.
Búizt er við, að fljótlega verði
tekin afstaða til möguleika
þeirra, sem fyrir hendi eru i
byggingarmálum Flugleiða og þá
væntanlega tekin ákvörðun um
byggingu viðbótarhúsnæðis.
DEILT YFIR
BLÖNDU UM
VIRKJUN
ÁRINNAR
-----^ o
að lita og er talið að gróður-
skemmdirnar séu af völdum
maðks. Bændur i Mývatnssveit
urðu varir við skemmdirnar i
gróðrinum fyrir nokkru, en I gær
voru skemmdirnar kannaðar, og
kom þá m.a. i ljós að skemmdirn-
ar eru á mun stærra svæði, en
menn héldu í fyrstu. Eru mörg
heiðlönd baenda i sunnanverðri
sveitinni svört sem kol og má bú-
ast við þvi, að vandræðaástand
skapist hjá bændum á Gautlönd-
um, Heiði, Baldursheimi, Stöng
og Helluvaði og e.t.v. fleiri bænd-
um I haust, þegar fé kemur af
fjalli.
Ráðunautar frá Búnaðarfélagi
Suður-Þingeyinga rannsökuðu
gróðurskemmdimar i gær og
flugu yfir svæðið á landgræðslu-
vélinni til að kanna útbreiðslu
' skemmdanna. Engan maðk fundu
ráðunautarnir við þessa fyrstu
athugun, en hins vegar urðu þeir
varir við fiðrildi.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á fundi miðstjórnar ASf i
gær, með öllum atkvæðum gegn
tveimur:
„Miðstjórn Alþýðusambands
Ísíands mótmælir harðlega
bráðabirgðalögum þeim um
timabundið vörugjald, er út voru.
gefin i gær. Með lögum þessum
er ákveðið að leggja á 12% að-
flutnings- og framleiðslugjald á
ýmsar vörutegundir, sem nema
mun um 1.850 milljónum til næstu
GRÍMSEYINGAR
KÆRA ÁGANG
NETABÁTANNA
áramóta, eða sem svarar nokkuð
á fjórða milljarð á ársgrundvelli.
Hinn 26. marz sl. gaf forsætis-
ráðherra, fyrir hönd rikis-
stjórnarinnar, yfirlýsingu um.að
hún mundi beita sér fyrir skatta-
lækkun, er næmi i heild allt að
2.000 millj. kr., með það fyrir
augum, að hún gagnaðist bezt
þeim, sem við erfið kjör búa.
Með skattahækkun þeirri, sem
nú er ákveðin með bráðabirgða-
lögunum.er ekki einasta að öll
skattalækkun, sem fyrirheit var
gefin um i marzmánuði tekin til
baka með skattahækkun, heldur
eru skattar hækkaðir um nær tvö-
falda lækkunarupphæðina, ef
miðað er við ársgrundvöll i báð-
um tilvikum.
Að sjálfsögðu munu ákvæði
brbl. enn hækka almennt verðlag
i landinu stórlega og herða á
verðbólguþróuninni.
Ljóst er að fyrirheit rikis-
stjórnarinnar um skattalækkun
og aðrar viiðnámsaðgerðir gegn
verðhækkunum voru meðal for-
senda kjarasamninganna 26.
marz og 13. júni sl. Hljóta verka
Framhald á bls. 15
ASK-Akureyri. „Það er óhætt að
fullyrða að við erum afgirtir af
netabátum og að þessi skyndilega
ásókn nú undanfarnar vikur hafi
dregið úr afla heimabáta. Þessi
skip eru allt uppi 400 tonn að
stærð og þau liggja yfir öllum
bestu miðum heimabátanna”
sagði Alfreð Jónsson oddviti i
Grimsey f samtali við blaðið.
Að sögn Alfreðs hafa eyja-
skeggjar kvartað yfir ásókninni
við sjávarútvegsmálaráðuneytið,
en enn sem komið er mun málið
vera i athugun. Þarna er mikið
um að ræða báta.sem undanfarin
ár hafa stundað sildveiðar i
Norðursjó.
Frá Grimsey stunda 13 bátar
veiðar að jafnaði en þar af eru 3
tólf tonna bátar og er aflinn
verkaður i salt.
Atvinnuástand mun samt sem
áður vera þokkalegt og sagði Al-
freð stöðugar fyrirspurnir fólks
um vinnu og húsnæði i eynni, en
vöntun á ibúðum stæði ibúafjölg-
un fyrir þrifum. Á engri ibúð
verður byrjað i ár og ekki eru lik-
ur á að úr rætist, en á siðastliðnu
ári var hafin smiði sex ibúða og
hefur þegar verið flutt i tvær.
Hreppurinn sótti um tvær af
leiguibúðum rikisins en hefur
ekki fengið jákvætt svar enn sem
komið er. 86 ibúar eru að jafnaði i
eynni, en yfir sumarmánuðina
taldi Alfreð fólksfjöldann vera
nokkuð yfir eitt hundrað manns.
ISLAND
NOREGUR
2:3
> O
Af hverju fær dómari
ekki lyfseðlana fró
heilbrigðisvöldum?
CHANGE
r
A
ÞRÖSKULDI
FRÆGÐARINNAR?
-► OPNA -4-
Gsal-Reykjavik — Asgeir
Friðjónsson, dómari I fikniefna-
dómstólnum hefur enn ekki
fengið umbeðin gögn frá
heilbrigðisyfirvöldum, I máli þvi
er mikið var um rætt fyrir all-
mörgum vikum og snerti meint
misferli tveggja lækna. Eins og
mönnum er eflaust enn I fersku
minni, upplýsti Haukur Guð-
mundsson, rannsóknarlögreglu-
maður í Keflavik, almenning um
þetta mál i fréttaskýringaþætti i
sjónvarpinu, þar sem þvi var
haldið fram.að tveir læknar hefðu
visvitandi skrifað fjölda iyfseðla
á sterk lyf til manna, sem þeim
var kunnugt um, að ætluðu að
selja lyfin.
Þetta mál var i rannsókn hjá
Asgeiri Friðjónssyni þegar fréttir
um það bárust út til almennings,
og hafði Asgeir þá lokið við að
yfirheyra allmörg vitni, en beið
eftir að fá send umbeðin gögn frá
heilbrigðisyfirvöldum, þ.e. lyf-
seðlana sjálfa.
Asgeir Friðjónsson sagði i
viðtali við Timann i gær, að sam-
kvæmt framburði vitnanna mætti
ráða, að um misferli væri að ræða
hjá læknunum, en hann tók það þó
skýrt fram, að taka bæri slikum
fullyrðingum með varúð, þar
sem nauðsynleg gögn i málið
vantaði enn.
— Það er orðinn talsvert langur
biðtimi eftir þessum gögnum,
sagði Ásgeir, — sérstaklega
þegar það er haft i huga, að Alm-
ar Grimsson, deildarstjóri i
heilbrigðisráðuneytinu lét þess
getið, — þegar málið var i brenni-
depli, — að það væri ekkert þvi til
fyrirstöðu að við fengjum
lyfseðlana i hendur.
Asgeir sagði að málið væri þvi
enn i sama farinu, og nauðsynlegt
væri að fá lyfseðla til að halda
áfram rannsókn málsins.
Timanum tókst ekki að ná tali
af Almari Grimssyni, deildar-
stjóra i heilbrigðisráðuneytinu
vegna þessa máls, þar sem hann
er f leyfi frá störfum. Sá maður,
sem gegnir störfum Almars um
þessar mundir, gat ekki upplýst
okkur um það, hvað ylli þessum
drætti á sendingu gagnanna.