Tíminn - 18.07.1975, Side 11

Tíminn - 18.07.1975, Side 11
Föstudagur 18. júli 1975. TÍMINN n GLÆSILEGT SKALLAMARK JÓHANNESAR SÁRABÓT AAikil pressa að norska markinu síðustu mínútur leiksins Noregur sigraði ísland með 3:2 í landsleiknum í gærkvöldi. Þrátt fyrir mikla pressu á siðustu minút- um landsleiksins i gær- kvöldi, tókst íslenzka landsliðinu ekki að skora jöfnunarmark á Brann Stadion í Bergen, og fóru Norðmenn með sigur af hólmi. 3:2 i spennandi leik. Knattspyrnulega séð var leikurinn mun betri en fyrri landsleikur þjóðanna, sem fram fór á Laugardalsvellinum, því að nú sat harkan ekki i fyrirrúmi eins og þá. Norðmenn voru heldur sterkari aðilinn i leiknum i gærkvöldi, en þó munaði engu, að is- lenzka liðinu tækist að jafna metin. Glæsilegt skallamark Jóhannesar Eðvaldssonar undir lok leiksins var nokkur sárabót, en Norðmenn höfðu haft tveggja rnarka forskot mest all- an siðari hálfleikinn. Jóhannes skoraöi þetta mark, þegar u.þ.b. 7 minútur voru til leiksloka. Guðgeir Leifsson fram- kvæmdi aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Norðmanna og sendi til Jóhannesar, sem stökk af miklu afli upp og skoraði glæsi- lega með skalla. Þetta mark hleypti miklu lifi i Teitur Þórðarson yljaði is- lenzku áhorfendunum á leiknum i gærkvöldi um hjartarætur, þegar hann strax á 12. minútu leiksins skoraði fyrsta markið. Þetta var fallegt mark, sem Ólafur Júliusson undirbjó með góðri spyrnu til Teits. Adam var ekki lengi i Paradis, þvi að aðeins 3 minútum siðar tókst Norðmönnum að jafna, 1:1 , en þannig var staðan i hálfleik. Fyrstu 20 minúturnar i siðari hálfleik voru afleitar af hálfu is- lenzka liðsins. Þá tókst Norð- mönnum að gera út um leikinn með tveimur mörkum, sem bæði komu upp úr þvögu, sem myndaðist við islenzka markið. Vörnin, sem verið hefur sterkari hluti islerzka landsliðsins i siöustu leikjum, var fremur óörugg i gærkvöldi og tókst illa að gæta hinna norsku sóknarmanna, sem léku óþarflega mikið lausum hala. Eftir að staðan var orðin 3:1 breytti Tony Knapp leikaðferð liðsins. Jóhannes Eðvaldsson fór úr öftustu vörninni á miðjuna og tók þannig virkari þátt i sókninni. Við þetta þyngdist sókn islenzka liðsins, en þess ber jafnframt að geta, að Norðmenn lögðu meira upp úr vörninni eftir að hafa náð tveggja marka forskotinu. Þegar u.þ.b. 7 minútur voru til leiksloka tókst Jóhannesi að minnka bilið niður i eitt mark mefc glæsilegu skallamarki. Og a’.ira siðustu minúturnar gerði is- lenzka liðið harða hrið að norska markinu. Bæði Teitur og Matt- hias Hallgrimsson áttu tækifæri, sem litlu munaði að tæki að nýt- ast. En sem sé, ekki tókst að jafna og Norðmenn hlutu bæði stigin. Þrátt fyrir það á islenzka lands- liðið hrós skilið fyrir ágætan leik. Jóhannes Eðvaldsson og Jon Al- freðsson voru beztu menn liðsins, en Guðgeir Leifsson nýttist ekki eins vel og oft áður. Eflaust hefði framlinan verið virkari með Elmar „innanborðs”, en þvi miður var hann ekki til staðar. Árni Stefánsson i markinu verður vart sakaður um mörkin. K. Pedersen frá Danmörku dæmdi leikinn og gerði það prýðisvel, a.m.k. ef miðað er við sænska dómarann I leiknum i Reykjavik. Islenzku áhorf- endurnir á leiknum töldu þó, að hann hefði sleppt vitaspyrnu, er Jóni Alfreðssyni var brugðiö inn- an vitateigs. Tveimur islenzkum leikmönnum var sýnt gula spjaldið, þeim Marteini Geirssyni og Guðgeiri Leifssyni. Ahorfendur að leiknum i gær- kvöldi munu hafa verið nálægt 14 þúsund talsins. 1 siöari hálfleik komu þeir Björn Lárusson, 1A og örn Óskarsson, IBV inn á fyrir þá Grétar Magnússon og ólaf Július- son. 011 skilyrði voru hin beztu á Brann Stadion i Bergen, þegar leikurinn fór fram i gærkvöldi, logn og sólarlaust. Og keppnis- völlurinn iðgrænn og sléttur, ólik- ur moldarflaginu i Laugardal. Marteinn Geirsson f einvígi við norska markvörðinn. Þessi mynd er frá fyrri leiknum. sóknarleik Islenzka liðsins, sem vök að verjast, enda úthaldið á pressaði stöðugt það sem eftir var þrotum. Er ekki gott að segja leiksins. Áttu Norðmenn mjög I hvernig leiknum hefði lyktað hefði hann staðið 10 minútum lengur. íslenzka liðið var þannig skipað I leiknum: Árni Stefánsson, Fram Jón Pétursson, Fram Marteinn Geirsson, Fram Jóhannes Eðvaldsson, Holbæk GIsli Torfason, IBK Jón Alfreðsson, IA Grétar Magnússon, IBK Guðgeir Leifsson, Viking Matthias Hallgrimsson, IA Teitur Þórðarson, IA Ólafur Júliusson, IBK Teitur Þórðarson. Hann skoraði fyrra mark fslenzka liðsins í gærkvöldi. Sovézkir njósnarar Af cðlilegum ástxðum voru Sovétmenn mjög áhugasamir um landsleikinn i gærkvöldi, þar sem Sovétríkin eru i riðli ineð islandi og Noregi i undankeppni Olympiukeppn- innar. A Ieiknum á Brann Stadion i Bergen i gærkvöldi voru aðalþjálfari sovézka landsliðsinsog aðstoðarmaður hans til að „njósna”. Innan fárra daga er sovézka lands- liðið væntanlegt til Reykja- víkur tilað leika gegn lslandi, en leikurinn fcr fram 30. júli á Laugardalsvellinum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.