Tíminn - 18.07.1975, Síða 12
12
TÍMINN
Föstudagur 18. júli 1975.
aðra munnfylli. Hvern einstakan munnbita varð han að
margtyggjváður en hann kyngdi honum.
SJÖTTTI KAFLI.
Teasle gat ekki sofið. Klukkustundu fyrir dagmál
lagðist Trautman á gólfið og lagði aftur augun. Teasle
sat enn á bekknum og hallaði sér upp að veggnum. Hann
bað talstöðvarmanninn að stilla tækið þannig, að hann
gæti heyrt stöðutilkynningar sveitanna í hátölurunum,
a'n þess að nota heyrnartækið. Augu hans kvikuðu ekki
af landakortinu. Lengra leið nú á milli tilkynninganna en
áður. Talstöðvarmaðurinn hallaði sér fram á borðið og
hvíldi höfuðið í höndum sér. Enn einu sinni var Teasle
orðinn einn. Sérhver sveit var á sínum stað. I huga sér sá
hann lögreglumennina og þjóðvarðliðana dreifa sér um
akra og skóglendi. Þeir drápu í sígarettunum og hlóðu
rifflana. Þeir voru í fimmtíu manna hópum. Sérhver
sveit haf ði sér mann, sem sá um vasakalltækin. Klukkan
sex yrði gefin út allsherjartilkynning um að halda af
stað. Mennirnir mynduðu breiðan leitarhring. Þeir
myndu þrautkanna akra og skóglendi. Smám saman
myndi svo hringurinn þrengjast. Leitarsvæðið var stórt.
Það myndi taka marga daga að fullkanna það. En þeir
myndu ná honum í lokin. Ef einhver sveitanna lenti á
ógreiðu svæði, þá myndi það tefja fyrir. Talstöðvar-
manni sveitarinnar var þá skylt að tilkynna hinum sveit-
unum töfina, svo þær hægðu einnig á sér. Slíkt myndi
koma í veg fyrir að einn hópurinn drægist svo aftur úr
leitarlínunni, að bil myndaðist. Þetta myndi einnig koma
í veg fyrir tvíverknað i leitinni. Ekki mátti finnast
nokkur eyða eða glufa á leitarlínunni, nema um væri að
ræða fyrirfram ákveðna gildru. Þá myndi bíða þar
hópur manna reiðubúinn að handsama f lóttamanninn ef
hann reyndi að notfæra sér þetta opna svæði. Ungi
maðurinn. Þó Teasle þekkti hann nú með nafni, þá gat
hann ekki vanist því að nota það.
Loftið virtist mettast raka er nær dró sólaruppkomu.
Teasle breiddi hermannateppi yfir Trautman, sem lá á
gólfinu. Þar næst sveipaði hann öðru um sjálfan sig.
Alltaf var eitthvað ógert. Gallar leyndust í sérhverri
áætlun. Trautman hafði sjálfur viðurkennt það, og
Teasle mundi það vel eftir þjálfun sína í Kóreu. Þess
vegna yfirfór hann sérhvert atriði leitaráætlunarinnar,
ef ske kynni að hann fyndi eitthvað, sem gleymst hafði
að gera ráð fyrir. Trautman hafði óskað eftir því að
þyrlurnar f lygju f ram og aftur yf ir leitarsvæðinu og út-
vörpuðu fölskum fyrirskipunum til sveitanna. Þetta átti
að rugla andstæðinginn. Þetta var nú þegar í fram-
kvæmd. Trautman bjóst við því, að Rambo myndi reyna
aðbrjótastsuðurá bóginn. ( stríðinu hafði hann flúið í þá
átt. Það voru því talsverðar líkur á því, að hann myndi
f reista þess sama á ný. Þess vegna var leitarlínan \ suðri
sérlega styrkt, nema þar sem voru veikir punktar af
ásettu ráði. Það voru gildrur. Teasle sveið í augun af
svefnskorti. Þó gat hann ekki sofið. Þegar hann var bú-
inn að yf irfara alla áætlunina án þess að f inna neitt, sem
hann hafði gleymt að athuga — fór hann að hugsa um
ýmislegt sem hann VILDI gleyma. Ýmislegt, sem hann
hafði leitt hjá sér að hugsa um. En nú verkjaði hann í
höfuðið. Vofurnar komu af sjálfsdáðum.
Orval og Singleton. Föstudagsmiðdegisverðirnir
heima hjá Orval, viku eftir viku. Frú Kellerman var vön
að hringja í hann á lögreglustöðina sérhvert fimmtu-
dagskvöld — til að kanna hvað hann vildi borða. „Það er
gott að byrja vikulokin svona," sagði hún. Hér áður fyrr
hefði þetta verið sá dagur sem hún hringdi á. Næsta dag
myndu þau sitja að snæðingi. Og borða hvað? — nei. Til-
hugsunin um að munnur hans fylltist af mat var með öllu
óbærileg. Ekki Beatrice. Alltaf frú Kellerman. Það
höfðu þau ákveðið er faðir hans dó og Teasle f luttist til
þeirra. Hann gat ekki hugsað sér að kalla hana
„mömmu". „Beatrice frænka" hljómaði heldur ekki
nógu eðlilega. Þess vegna kallaði hann hana alltaf frú
Kellarman. Orval likaði þetta vel. Sjálf ur var hann alinn
upp við að kalla foreldra sína herra og frú. Um naf n Or-
vals gegndi öðru máli. Orval haf ði sótt föður Teasles svo
oft heim, að Teasle var orðinn vanur að kalla hann
Orval. Honum gekk illa að venja sig af því. Föstudags-
miðdegisverðirnir. Hún eldaði, Orval og hann voru úti
með hundana. Síðan komu þeir inn o_g fengu sér í glas
fyrir matinn. En á þeim árum var Orval hættur að
drekka. Þess vegna voru það bara Teasle og frú Keller-
man, sem fengu sér staup. Orval fékk sér tómatsafa
með salti og tabasco sósu. Þegar Teasle hugsaði um
þetta, streymdi munnvatnið úr kirtlunum. Hann reyndi
að hugsa um eitthvað annað en mat. Hann hugsaði um
rif rildið, sem hann kom af stað. Upp f rá því hættu föstu-
dagsmiðdegisverðirnir. Hvers vegna hafði hann ekki
látið í minni pokann fyrir Orval? Skipti það í raun svo
miklu máli hvernig byssuhylkið átti að snúa eða hvernig
þjálfa átti hund? Um þetta deildu þeir. Var ástæðan
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
II
illlIH
■
Föstudagur
18. júli
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Geir Christensen les
söguna „Höddu” eftir
Rachel Field (23). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
atriða. Spjallað við bændur.
kl. 10.25. Morgunpopp kl.
10.25. Morguntónleikar kl.
11.00: Hljómsveit Tónlistar-
háskólans i Paris leikur
Divertissement eftir
Jacques Ibert / Ronald
Smith leikur á pianó
Scherzo I b-moll eftir Bala-
kirev / Rudolf.Werthen leik-
ur á fiðlu og Eugene De
Canck leikur á pianó Polo-
naise brillante op. 21 eftir
Henryk Wieniawsky og
Rapsódiu nr. 1 eftir Béla
Bartók / Vincent Abato og
hljómsveit undir stjórn Nor-
man Pickering leika Kon-
sert fyrir saxófón og
strengjasveit eftir Alexand-
er Glazounov.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Mátt-
ur lifs og moldar” eftir Guð-
mund L. Friðfinnsson Höf-
undur les (17)
15.00 Miðdegistónleikar
Georgina Dobrée og Carlos
Villa hljóðfæraflokkurinn
leika Klarinettukonsert i A-
dúr eftir Johann Melchior
Molter. Sinfóniuhljómsveit
Lundúna og kór flytja
„Kyrie” I d-moll (K341) eft-
ir Mozart: Colin Davis
stjómar. Enska kammer-
sveitin leikur hljómsveitar-
þætti úr óperunum
„Amadis”, „Atys” og
„Thésée” eftir Jean-
Baptiste Lully: Raymond
Leppard stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.10 Tónleikar
17.30 „Sýslað f baslinu” eftir
Jón frá PálmholtiHöfundur
les (5).
18.00 „Mig hendir aldrei
neitt” stuttur umferðar-
þáttur i umsjá Kára Jónas-
sonar. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Frá sjónarhóli neytenda
Sigurður Pálmi Kristjáns-
son og Arni Bergur Eiriks-
son annast þáttinn. Rætt við
Gunnar Björnsson um
kvörtunarmál vegna vinnu
byggingariðnaðarmanna.
20.00 Frá tónlistarhátiðinni í
Ohrid i JUgóslaviu i fyrra
Evgenija Tsjugaeva og
Andreja Preger leika Fiðlu-
sónötu nr. 2 i A-dúr eftir
Brahms.
20.20 Heimsókn á Kópavogs-
hælið Gisli Helgason og
Andrea Þórðardóttir annast
þáttinn.
21.20 Atta tilbrigði fyrir tvö
píanó eftir Beethoven um
stef eftir Waidstein greifa
Jörg Demus og Norman
Shetter leika.
21.30 Útvarpssagan: „Móðir-
in” eftir Maxini Gorki Sig-
urður Skúlason leikari les
(24).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir iþróttir
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Ásmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars Agn-
arssonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.