Tíminn - 24.07.1975, Page 1

Tíminn - 24.07.1975, Page 1
Landvélar hf FER ASI UR VERÐLAGS- NEFNDINNI? H.V. Reykjavik.A fundi i verðlagsnefnd i gær var lögð fram tillaga til d- lyktunar, frá fulltrúum Alþýðusambands tslands f nefndinni, þar sem mótmælt er harðlega þvi, að rikisstjórnin taki sér vald til sjálfstæðrar afgreiðslu verðlagsmála, á þeim sviðum sem samkvæmt lögum heyra undir verðlagsnefnd, og ennfremur ályktað, að ef svo verði framhaldið, sé með öllu ástæðulaust að annar aðili en rikisstjórnin fari um verðlags- ákvarðanir. 1 viðtali við Timann i gær sagði Björn Jónsson, forseti ASI, að tillaga þessi væri til komin vegna þess, að rikisstjórnin hefði tekið fram fyrir hendurnar á verðlagsnefnd, með þvi að taka ekki tii greina ákvarðanir hennar I verðlagsmálum undanfarið, þótt þær hefðu jafnvel verið sam- þykktar samhljóða á fundum nefndarinnar. Er þar um að ræða, meðal annars, synjun rikisstjórnar á heimild til vinnuveitenda um hækkun á Utseldri vinnu. — Þessi mál voru rædd innan miðstjórnar ASI, sagði Björn Jónsson I viðtalinu við Timann, — og var þá fulltrúum okkar i nefndinni falið að mótmæla þessu háttalagi rikisstjórnarinnar. I sjálfu sér er ekkert at- hugavert við að slikt gerist einu sinni, þar sem stjórnin hefur neitunar- vald, en ef það gerist itrekað, fæ ég ekki séð,að nokkur þörf sé á þvi,að veröíagsnefnd starfi. Það myndi lika skapa ákaflega óheilbrigð vinnuskilyrði fyrir nefnd- ina, ef hún vissi aldrei hvort samþykktir hennar yrðu teknar til greina eða ekki. _ Skipsstefnið gekk sex metra inn í bryggjuna H.V. Reykjavik.Það óhapp varð i höfninni I Stykkishólmi siðastlið- inn sunnudag, að Brúarfoss, skip Eimskipafélagsins, rak þar stefn- ið i bryggjuhaus og gekk stefnið um það bil sex metra inn I bryggj- una. Bryggjuhausinn er mikið skemmdur, enda gamall og orð- inn nokkuð mikið fúinn, en á skip- inu sá ekki. Sjóprófvegna árekstursins fóru fram þegar eftir helgi og voru þar staðfestar ástæður fyrir árekstr- inum. Þungur vestan straumur var 1 höfninni á þessum tima og suð-vestan gola hjálpaði til við að snúa stefni skipsins að bryggj- unni, þegar það var að leggjast að. Skipið var á hægri ferð og lét þess vegna illa að stjórn, en akk- eri tók illa. Bryggjuhaus þessi, sem flutn- ingaskip leggjast gjarna við, hefur lengi þótt nokkuð lélegur, enda ekki byggður til að taka á móti skipum af þeim stærðum, sem nú eru notuð til strandferða. Fyrir nokkru slðan mun Eim- skipafélag tslands hafa sent hafn- aryfirvöldum i Stykkishólmi bréf, þar sem farið var fram á að endurbætur yrðu framkvæmdar á bryggjunni, ef skip Eimskipafé- lagsins ættu að halda áfram að koma þar við. Mat á skemmdum á bryggju- hausnum hefur ekki enn farið fram, en matsmenn hafa verið skipaðir. Ohapp þetta varð um klukkan 20.20, sunnudaginn 20. júli. Vilja um- sögn ríkisstjórn- arinnar um hundamólið BH-Reykjavik. — Það sem gerö- ist á júlifundi Mannréttinda- nefndar Evrtípuráðsins I sam- bandi við hundamálið svonefnda var það, — að tískað var eftir um- sögn Islenzku rikisstjtímarinnar um málið, þ.e.a.s. þvi er ekki beinlinis hrundið i fyrstu atrennu. Þannig komst prófessor Gauk- ur Jörundsson, dr. jur. að orði i gær, þegar Timinn hafði sam- band við hann, en Gaukur á sæti I Mannréttindanefndinni af tslands hálfu. Kvað Gaukur þennan fund nefndarinnar hafa verið einn af fimm fastafundum nefndarinnar árlega, en aukafundir væru að sjálfsögðu haldnir við og viö. ,,Það er tíhugnanlegt að sjá heiðalöndin svona kolsvört og Hflaus,” sagði biaðamað- ur Timans, er hann hafði far- ið og kannað grtíður- skemmdirnará heiðalöndum Mývetninga. A bls. 6 er frá- sögn hans með myndum en þessi mynd synir skaðvald- inn, maðk rtítarfiðriidisins, sem þessa dagana er að skriða úr púpunni. Tima- mynd: ASK. r V-Þjóðverjar undir- bjóða íslenzku blokk- ina með niðurgreiðslum Efnahagsbandalagsins (Skatturinn ekki eins hár % | og mörgum virðist | við fyrstu sýn | ALLAR SÍMALÍNURNAR RAUÐGLÓANDI VEGNA | ÁLAGNINGARSEÐLANNA __________2 1 I í 1 H.V. Reykjavik. Undanfam- ar vikur hefur staða fisk- blokkar á Bandarikjamark- aði veikzt nokkuð, vegna framboðs á blokk, sem er nokkru ódýrari en skráð markaðsverð segir til um. Skráð markaðsverð á fisk- blokk f Bandarikjunum hefur undanfarið verið 57 cent fyrir pundið, en um þessar mundir er nokkuð framboð á blokk - frá Efnahagsbanda- lagslöndum, — aðallega Vestur-Þýzkalandi — á lægra verði. Munar þar allt að 2—4 centum fyrir hvert pund. Hjá Sjávarafurðadeild SIS fenguöt þær upplýsingar I gær, að framboð þetta staf- aði af miklum fiskbirgöum, sem Þjóðverjar lægju með um þessar mundir og gengi erfiölega að losna við. Að mestu mun þar vera um að ræða fisk með beinum, sem erfitt er að koma inn á Bandarikjamarkað, en þó einnig eitthvert magn af beinlausri blokk og er það framboð á henni, sem nú veldur Islenzkum fiskfram- leiðendum nokkrum erfiö- leikum þar vestra. Þjóðverjar geta undirboð- iö markaöinn svona vegna útflutningsbóta, sem þeir fá greiddar frá Efnahags- bandalaginu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.