Tíminn - 25.07.1975, Síða 1
Verk-
stæðis
CCl'
TARPAULIN
RISSKEMMUR
Landvélar hf
166. tbl. — Föstudagur 25. júli 1975 — 59. árgangur
HF HORÐUR 6UNNARSS0N
SKULAÍÚNI C — SÍMI (9D194C
OUPPLÝST MORÐ?
H.V. Reykjavik. Nokkrar
llkur eru taldar til þess, að
framið hafi verið morð i
Reykjaviká árunum um eða
upp úr 1930, án þess að upp
hafi komizt, og að það sé
beinagrind hins myrta, sem
fannst við Faxaskjól fyrr i
þessum mánuði.
Rannsókn lögreglunnar á
beinagrindarmálinu svo-
nefnda beinist nú einkum að
þvi,að staðfesta hvort hún er
af Snæfellingi þeim, sem
hvarf hér i Reykjavik um
1930. Hefur lögreglan haft tal
af fólki, sem þekkti han'n i
lifanda lifi og bendir það sem
fram hefur komið til þess, að
hann hafi haft til að bera
sömu einkenni og ráðin
verða af beinagrindinni.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar er þegar búið
að útiloka að mestu alla þá
aðila aðra, sem vitað er til að
hafi horfið hérlendis á þeim
tima sem hér um ræðir.
Telur lögreglan, að ef
beinagrindin er af Snæfell-
ingnum, þá séu talsverðar
likur til þess. að hann hafi
verið myrtur. Sú skoðun er
byggð á timamismun þeim,
sem fram kemur milli þess
að maðurinn hverfur, um
1930, og þess tima, er likið
getur hafa lent þar, sem
beinagrindin fannst, sem er
ekki fyrr en i fyrsta lagi eftir
1941 og liklega ekki fyrr en
eftir 1951. Þá vaknar sú
spurning, hvað likið hafi
verið niðurkomið þessi tiu
eða tuttugu ár, svo og hvers
vegna það var flutt og hver
gerði það.
Einstaklingur 110 pund
Opinber starfsmaður fær
342,86 punc ló V 2 mónuði
*
.
BH-Reykjavik. — Gjaldeyris-
yfirvöld hafa fyrir sitt leyti á-
kveðið að fella niður ákvæði
þau, er gilt hafa um timalengd
þeirra hópferða, er islenzkar
ferðaskrifstofur skipuleggja.
Að öðru leyti eru gjaldeyris-
reglur óbreyttar.
— Við föllum með þessu frá
takmörkunum á timalengd
hópferða, sem gilt hafa, en
gjaldeyrisskammturinn er sá
sami og áður, sagði Ingólfur
Þorsteinsson hjá gjaldeyris-
deild bankanna. — Hámarks
gjaldeyrir á mann á vegum
ferðaskrifstofu verður 52,50
pund eða 18.045 krónur, án til-
lits til þess, hversu langan
tima ferðin tekur.
Til samanburðar skal þess
getið að opinberir starfsmenn,
sem dveljast erlendis á vegum
þess opinbera, fá i feröapen-
inga 8.416 krónur tæpar á dag,
sem gera 24,49 pund. og ein-
staklingur, sem fer utan á
eigin vegum, fær i ferðapen-
inga 110 pund, eða 37.807 krón-
ur. Miðað við hálfan mánuð
fær opinberi starfsmaðurinn'
342,86 pund eða rösklega
þrisvar sinnum hærri upphæð
en 110 pundin, sem einstak-
lingurinn fær.
ELDBORGIN MEÐ NOKKUR
TONN AF LOÐNU EN
GUÐMUNDUR EKKI NEITT
BH-Reykjavik. — Þaö er heldur
litið af okkur að frétta, sagði
Hrólfur Gunnarsson, skipstjóri á
Guðmundi RE, þegar Timinn
hafðisamband við hann i gær, en
Guðmundur hélt á laugardag á-
samt Eldborgu GK á loðnuveiðar
fyrir Norðurlandi. — Við höfum
ekkert fengið ennþá, en Eldborg-
in er búin að fá nokkur tonn.
Þá var Guðmundur staddur um
Mynd þessi er tekin í gær, af
isnum, sem þá lokaðisiglinga-
leiðinni fyrir Horn. Hafís
hefur löngum þótt vágestur
hér og vist vonast allir til þess
að hann hverfi sem skjótast á
brott aftur, en undanfarnar
vikur hefur borið nokkuð mik-
ið á honum fyrir norðan.
Karl krón-
prins og
Kekkonen
forseti
koma í lax
B.H.-Reykjavik. Nú hefur
Karl Krónprins Breta ákveð-
ið að koma til íslands 3.
ágúst til laxveiða i Hofsá i
Vopnafirði. Það eru enskir
aðilar, sem hafa ána á leigu,
og bjóða krónprinsinum i
laxinn og verður ferð hans
hingað einkaheimsókn.
Krónprinsinn mun koma
hingað til lands með áætl-
unarflugvél Flugfélags
Islands og dvelja hér á iandi
I fimm daga. Þetta verður
fyrsta heimsókn brezka
krónprinsins til tslands, en
faðir hans hefur stundað lax-
veiði i Norðurá.
Þá mun Kekkonen Finn-
landsforseti einnig koma til
laxveiða hingað i ágúst, upp
úr miðjum mánuðinum.
Kekkonen hefur áður komið
hingað til iaxveiða og þá
m.a. veitt i Viðidalsá
VIÐSKIPTARAÐHERRA:
Ríkisstjórnin hefur
neitunarvald, þegar
hækkanir eru ekki
nægilega rökstuddar
H.V. Reykjavik. — Rikisstjórnin hefur alls ekki
tekið verðlagsákvarðanir i sinar hendur, þótt hún
hafi synjað ákvörðunum verðlagsnefndar I fáeinum
tilvikum, þvi að hún hefur hvorki breytt þessum
ákvörðunum sem slikum, né Iieidur sett sinar eigin
ákvarðanir i staðinn.
Stjómin hefur heimild til þess að beita neitunar-
valdi i verðlagsmálum, þegar hún telur hækkanir
ekki nægilega rökstuddar, og i slikum tilvikum er
það ekki hennar að gefa skýringar á gerðum sínum,
heldur verðlagsnefndar að rökstyðja ákvarðanir
sinar betur . eða taka þær til endurskoðunar,—
sagði Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra, i við-
tali við Timann i gær, en eins og kom fram i' frétt i
blaðinu þá, telur verðlagsnefnd rikisstjórnina hafa
gengið inn á verksvið sitt og hafa fulltrúar ASI i
nefndinni lagt fram tillögu til ályktunar, þar sem
látiðeraðþviliggja,aðef rikisstjórnin haldi áfram
að hafna ákvörðunum nefndarinnar, geti nefndin
allt eins hætt störfum.
— Það sem aðallega er um deilt. er hækkun á út-
seldri vinnu meistara, — sagði ráðherra ennfremur
I viðtalinu við Timann, — og rikisstjórnin telur þær
kauphækkanir, sem orðið hafa, ekki nægilega
ástæðu til þeirra hækkana á útseldri vinnu, sem
farið er fram á.
Svo liggur það einnig i hlutarins eðli, að rikis-
stjórninni ber að vinna frekar á móti öllum verð-
hækkunum núna og raunar hlýtur að koma á óvart,
að fulltrúar ASI í verðlagsnefnd, skuli vera þeim
svona fylgjandi.
30 milur norður af Kolbeinsey, við
isröndina • á þeim slóðum, en
veiði sem sagt harla lltil, enda
þótti rannsóknarskipið Arni Friö-
riksson yrði loðnu vart fyrir
nokkrum dögum.
Við inntum Hrólf eftir þvi,
hvort hann héldi ekki áfram.
— Jú, jú, við höldum áfram aö
reyna. Það þýðir ekkert að gefast
upp i fyrstu tilraun.
Matsölustaður
kærður vegna
matareitrunar
42 sýktust af
skemmdu kjöti
Gsal-Reykjavik — Skemmt
kjöt orsakaði matareitrun-
ina sem greint var frá I Tim-
anum i gær og samkvæmt
upplýsingum Þórhalls Hall-
dórssonar, framkvæmda-
stjóra heilbrigðiseftirlitsins
veiktust af völdum eitrunar-
innar 42 Reykvikingar.
Þórhallur sagði, að þeir
heföu ekki enn fengið öll
gögn i hendur frá rannsókn-
arstofunni, en öruggt mætti
samt telja, aö skemmda
kjötið hefði valdiö matar-
eitruninni. — Okkur grunaði
strax aö kjötið hefði orsakað
eitrunina, og þvi gerðum við
strax ráðstafanir til þess að
það yrði ekki notað meira, —
og kjötinu verður eytt hið
fyrsta, sagöi Þórhallur.
Talið er, að öll gögn i mál-
inu verði tilbúin á mánudag-
inn og þá hefur heilbrigðis-
eftirlitið kært málið til saka-
dóms. Þá mun og verða
rannsakað hvar og af hvaða
völdum kjötið hefur
skemmzt, en kjöt það, sem
hér urn ræðir, keypti mat-
sölustaðurinn utan af landi,
og þvi er þýðingarmikið að
rannsaka þaö til hlitar, hvort
kjötið hefur skemmzt áöur
en það kom til matsölustað-
arins, ellegar hvort það
hefur skemmzt hjá mat-
stöðustaðnum.