Tíminn - 25.07.1975, Síða 2

Tíminn - 25.07.1975, Síða 2
2 TÍMINN Föstudagur 25. júli 1975. 100 LAUSNIR BARUST í SKÁKKEPPNI FLUGLEIÐA — léttasta skdkdæmið varð flestum að fótakefli VS-REYKJAVIK ARIÐ 1973 efndi Flugfélag Islands til skákkeppni, og voru þrautirnar birtar á for- siðu timaritsins Skákar. 1 fyrra, eftir að Flugleiðir voru komnar til sögunnar, hélt það fyrirtæki þessari starfsemi áfram, og nú er lokið keppni ársins 1974. Hundrað aðilar sendu lausnir, og reyndust átta réttar, en það vakti nokkra furðu, að dæmið, sem skákmenn töldu einna léttast, varð flestum þátttakenda helzt að fótakefli. Þegar dregið hafði verið úr hin- um átta réttu lausnum, afhenti blaðafulltrúi Flugleiða, Sveinn Sæmundsson, sigurvegaranum, Garðari Astvaldssyni i Hafnar- firði verðlaunin, en þau eru far- seðill fyrir tvo og gisting i eina viku á einhverri af leiðum Flug- leiða. Hinir, sem sent höfðu réttar lausnir, en ekki hlotið aðalvinn- inginn, fengu bókina World Championship Interzonals Leningrad-Petropolis 1973. 146 MANNS I BÆNDAFOR TIL KANADA í ÁGÚST Stjórnir Búnaðarfélags tslands og Stéttarsambands bænda ákváðu i vetur, að efna til bænda- farar til Kanada i tilefni 100 ára afmælis búsetu tslendinga þar. Alls eru það 146 manns sem fara vestur. Ferðin hafur verið skipulögð af Upplýsingaþjónustu landbún- aðarins i samvinnu við aðstoðar- landbúnaðarráðherra i Manitoba, Helga Austman i Winnipeg, en hann hefur annazt allan undir- búning að móttöku hópsins i Kanada. Flogið verður frá Islandi til Calgary i Alberta þann 5 ágúst. Strax fyrsta daginn mun verða tekið á móti hópnum af félögum i Leif Eiriksson félaginu i Calgary. Þaðan verður ekið að Old á bændaskólanum, en þaí verður gist næstu 6 nætur. Alla daga verður farið i ferðir um Alberta, bændur heimsóttir, skoðuð iðnað- ar- og verzlunarfyrirtæki tengd landbúnaðinum. Farið verður til Klettaf jalla og annarra fjölsóttra ferðamanna- staða. Þann 10 ágúst munu þátttak- endur verða viöstaddir hátiðar- höld sem Vestur-tslendingar halda i Markerville. Þar verður fjölbreytt dagskrá, sem að nokkru verður helguð minningu Stefáns G. Stefánssonar. Dóttir skáldsins Rósa Benediktsson mun flytja ávarp. Guðmundur Ingi Kristjánsson skáld og bóndi á Kirkjubóli flytur ljóð, sem hann hefur ort af tilefni þessarar hátiö- ar i minningu Stefáns G. Jafn- framt mun Guðmundur Ingi af- henda gjöf Stéttarsambands bænda til minjasafns Stefáns G., sem opnað verður við þetta tæki- færi. Stéttarsambandið hefur ákveðið að gefa 1.5 millj. kr. til viðhalds og endurbyggingar á húsi þvi,.em var heimili Stefan G. Fylkisstjórnin i Alberta hefur ákveðið að lána hópferðabifreiðir til afnota fyrir bændaförina, þessa daga sem ferðast er um fylkið. Þann 11. ágúst mun hópurinn yfirgefa Old á bændaskóla og halda til Elfros i Saskatchewan, þar mun fólk af islenzkum uppruna taka á móti þátttakend- um, drukkið verður kaffi sam- eiginlega, siðan mun hópnum gébé Rvik — Norrænt rafverk- takamót er haldið til skiptis á Norðurlöndunum þriðja hvert ár, og verður nú i fyrsta skipti haldið hér á landi, að Laugarvatni dag- ana 7.-10. ágúst. Góð þátttaka er og koma 282 fuiltrúar frá Norður- löndunum, en Islenzkir þátttak- endur verða um fjörutiu talsins. A fundinum verða tekin til meðferð- ar mál, sem eru ofarlega á baugi og varða starfsemi rafverktaka. Dr. Gunnar Thoroddsen iðn- aðarráðherra mun ræða sam- vinnu Norðurlanda i Norræna ráðinu.einkum með tilliti til laga- verða skipt niður á heimili i Elfros, Wynyard og nágrenni þessara bæja, á heimilum verður snæddur kvöldverður og gist. Daginn eftir verður haldið til Winnipeg, þar sem gist verður á hóteli um nóttina Þann 13 ágúst verður farið um Vatnabyggðir og m.a. verður Óli Narfason, kúabóndi heimsóttur Þeir þátttakendur sem ekki eiga ættingja eða vini i Manitoba, hefur verið boðið að dvelja hjá Vestur-Islendingum i nágrenni Gimli, Arborg og Lundar næstu 3 nætur. Sunnudaginn 17. ágúst verður farið um Suður-Manitoba, komið til Morden og Baldeu. Fararstjórar verða Agnar Guðnason og Jónas Jónsson. setningar varðandi vinnumark- aðinn, þjóðfélagslega og fjár- hagslega aðstöðu. GIsli Jónsson verkfræðingur mun ræða um inn- lenda orkuöflun með tilliti til hús- hitunar, og formaður dönsku eftirmenntunarnefndarinnar mun gera grein fyrir þeim málum á Norðurlöndum og norrænni samvinnu á þvi sviði. SU nýbreytni mun nú tekin upp i fyrsta skipti, að eiginkonur þátt- takenda, munu halda sérstakan fund og ræða áhugamál sin, auk þess sem þær fara I sérstaka skoðunarferð um Suðurland. Norrænt rafverktakamót Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi afhendir Garðari Ástvaldssyni verð- launin og óskar honum til hamingju. Timamynd: Róbert. Vestfirðingar greiða 776 millj. kr. í skatta HEILDARUPPHÆÐ álagðra gjalda i Vestfjarðarumdæmi nam kr. 776.390.329,- á 4873 einstak- linga og 588 félög. Af þessari upp- hæð eiga kr. 273.399.400,- að renna til sveitarfélaga I umdæminu, en kr. 503.190.929,- til rikisins. Sú upphæð skerðist þó um kr. 130.920.000.sem eru barnabæt- ur i umdæminu og kr. 16.265.161,-, sem er afgangur persónufrá- dráttar og getur runnið til greiðslu útsvars. Skyldusparnað- ur nam kr. 8.105.000,-. Þessi álagning kemur út úr heildartekjum I umdæminu sem eru 3.925.690.518,- hjá einstakling- um og nettótekjur kr. 92.959.040,- hjá félögum. Samsvarandi tala árið áður hvað einstaklinga á- hrærir var kr. 2.760.456.185,-. Hæstu gjaldendur einstaklinga eru Hrafnkell Stefánsson lyfsali, ísafirði með kr. 2.653.341,- 1 tekju- skatt og útsvarog Jón Fr. Einars- son, byggingameistari, Bolung- arvík, sem er með kr. 2.244.995 - i tekjuskatt og útsvar. Hjá félögum er hæsti gjaldandi til tekjuskatts hraðfrystihúsið Norðurtangi h.f. Isafirði með kr. 3.326.782,-. Sami aðili var einnig hæsti gjaldandi i fyrra með 2.671,- . Kaupfélag Isafjarðar með útibú- um greiddi mestan söluskatt á sl. ári, eða 22.606.953,-. Tekið skal fram, að saman- burður á tekjuskatti einstaklinga og á milli tveggja siðustu álagn- inga er ekki alveg raunhæfur, þar sem nú er ekki lagt á fjölskyldu- bætur, ekki veittur persónufrá- dráttur fyrir börn, og ekki veittur skattaafsláttur fyrir börn. Skatt- skrár 1975 i Vestfjarðarumdæmi, 32 að tölu, liggja frammi 18. júli til og með 31. júli i skattstofunni á Isafirði og hjá viðkomandi um- boðsmönnum. Kærufrestur er til 31. júll. Siðustu skattskrár til útreikn- ingar gjalda voru afhentar Skýrsluvélum rikisins og Reykja- vikurborgar 4. júlí sl. eða sex dögum fyrr en árið 1974. Var ætl- unin að skattskrár lægju frammi ekki siðar en 20. júli í samræmi við 39. grein skattalaganna. jMikið af mfaileg um •• teknar upp ;í dag fyrir DOAAUR OG HERRA Lokað á laugardögum OPIÐ TIL KL.10 í KVÖLD i (ÍEi* liMl w m\ tyJSw H Bankastræti 9 • Sími 11811 . — Fataverzluh DÖMUR & H in fyrir HERRA

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.