Tíminn - 25.07.1975, Side 4
4
TÍMINN
Föstudagur 25. júli 1975.
fer i loftið snemma hvern morg-
un og aftur seinni hluta dags og
fylgist með umferðinni á vegun-
um i Kaliforniu og gefur skýrslu
um hana til útvarpsstöðvar.
Sem sagt hann er umferðar-
njósnari. — Starfið er ekki alltaf
jafnfreistandi, segir hann, en þá
fer ég að hugsa um, að daglega
séu 4 milljónir bifreiða i akstri á
þjóðvegunum, og ég ber eigin-
lega svolitla ábyrgð á þeim, —
er eitt litið hjól I þeirri hringiðu.
Yfirmaður hans segir: Við
erum hreyknir af að hafa lands-
ins bezta flugmann i okkar þjón-
ustu. Hann er á margan hátt
einfari, en þegar hann er i starfi
fær hann e.t.v. eitthvað af
gömlu tilfinningunni, þegar
hann var sá bezti i flughernum.
Það undarlega er að hann lang-
ar til að komast aftur til Moskvu
— sem ferðamaður. — Ég veit
ekkert um landið þótt ég hafi
séð það úr háloftunum. Það er
allt annað að hreyfa sig um og
tala við fólkið. Ef hann fær leyfi
til að heimsækja Moskvu langar
hann til að leita uppi manninn,
sem var klefafélagi hans i 17
mánuði. Hann vill ekki nefna
nafn þess manns. Við sjáum hér
tvær myndir af Francis Gary
Power, aðra frá réttarhöldun-
um i Moskvu, en hin er tekin af
honum i núverandi starfi, sem
umferðareftirlitsmaður, sem úr
lofti fylgist með umferðinni I
Los Angeles.
fékk 10 ára íangelsisdóm. At-
burðurinn vakti gifurlega at-
hygli og má segja að hann hafi
nærri valdið heimsstyrjöld. Arið
1962 var Gary Powers samt
sleppt úr fangelsinu og hann
sendur heim til Bandarikjanna i
skiptum fyrir stórnjósnarann
Rudolph Abel. Powers, er nú
orðinn 45 ára og lifir friðsömu
lifi i Los Angeles með konu sinni
og 2 börnum þeirra. Hann starf-
ar enn i fluginu, en á ekki lengur
á hættu að vera skotskifa. Hann
Starf kanslarafrúarinn-
ar í Vestur-Þýzkalandi
Hannelore Schmidt, venju-
lega kölluð Loki, var kennari i
27 ár i Hamborg, þar til maður
hennar, Helmut, varð kanslari
Vestur-Þýzkalands. Hún hefur
gjört töluvert meira úr stöðu
sinni sem kanslarafrú heldur en
fyrirrennarar hennar i þeirri
stöðu höfðu áður gjört. Þýzkt
vikurit segist ekki geta lýst
henni sem kanslarafrú, heldur
sem konunni, sem stendur við
hlið mannsins stns. Hún álltur
það ekki aðeins skyldu sina að
mæta i og stjórna samkvæmum
og móttökum fyrir manninn
sinn, heldur hefur hún áhuga
fyrir ýmsum samfélagsvanda-
málum. Hún vill styðja þá, sem
minna mega sin i þjóðfélaginu,
ekki sizt • V-Berlinarbúa, sem
stundum finna til minnimáttar-
kenndar og liggur við uppgjöf.
Einnig hefur hún áhuga fyrir
kjósendum manns sins i
Hamborg. Sem sagt — Loki
Schmidt tekur stöðu kanslara-
frúarinnar sem starf.
Maðurinn, sem fyrir 15
árum var nærri búinn
að hleypa af stað
heimsstyrjöld
Enn man fólk eftir nafninu
Francis Gary Powers, mannin-
um sem flaug bandarisku
njósnaflugvélinni U-2 yfir
Sovétrikin, þar sem hún var
skotin niður og flugmaðurinn
tekinn til fanga. Hann var yfir-
heyrður i 3 daga i Moskvu og