Tíminn - 25.07.1975, Síða 11
Föstudagur 25. júli 1975.
TÍMINN
11
Umsjón: Sigmundur ó. Steinarsson
Gi!roy „ !Valsmenn leika aean
„njosnar |--------------—^—w—
Celtic 16. sept. hvað
sem tautar og raular
Valsmenn hafa nú ákveöið að
senda þjálfara sinn Skotann JOE
GILROY til Skotlands, til þess að
„njósna” um Celtic-liðiö. Gilroy
mun brcgða sér til Skotlands til
að sjá Celtic leika, og eru Vals-
menn nú að leita eftir hentugum
tima — þ.e. leikdegi i Skotlandi,
þar sem Celtic leikur.
Met hjá
Þórunni
ÞÓRCNN Alfreösdóttir, hin unga
og efnilega sundkona úr Ægi, setti
nýtt tslandsmet I 800 m skrið-
sundi kvenna á miðvikudags-
kvöldið I Laugardalslauginni.
Þórunn synti vegalengdina á
9:57.4 mínútum.
VALSMENN eru ákveðnir að
leika heimsleik sinn gegn skozka
liöinu Celtic i Evrópukeppni
bikarmeistara á Laugardalsvell-
inum 16. september hvað sem
tautar og raular. Þeir eru nú
þegar búnir að ná samkomulagi
við Celtic og hafa pantað far og
gistingu fyrir leikmenn og for-
ráðamenn Celtic-liðsins. Eins og
hefur komið fram hér á síðunni,
þá hefur risið upp inikil deila
milli Valsmanna og Keflvikinga
út af leikdögum i Evrópukeppn-
inni, en Keflvikingar eiga að leika
gegn skozka liðinu Dundee United
hér á landi 17. september.
Valsmenn áttu upphaflega að
leika í Glasgow 17. september, en
áLaugardalsvellinum. 1. október.
Þegar þetta var ljóst, þá fóru
Valsmenn strax á stað og höfðu
samband við forráðamenn Celtic
til að kanna möguleika á hvort
þeir gætu breytt leikdögunum
þannig, að Celtic léki á Islandi
fyrst. Ástæðan fyrir þessu er að
sögn Valsmanna, að það væri
betri timi að leika hér 17 sept.
heldur en I. október. sem væri
nokkuð áliðið sumars, og farið
yröi að hausta hér á landi þá og
veður óútreiknanlegt á þeim tima
A miðvikudagskvöldið hélt
stjórn KS.I. fund með deilu-
aðilum, þar sem Keflvikingar
bentu á, að þeir væru ekki alls
— óljóst hver viðbrögð Keflvíkinga verða
★ Fundur KSI með deiluaðilum
var órangurslaus
kostar ánægðir með framkomu
KSI i þessu máli. Þeir bentu á, að
freklega væri gengið á rétt þeirra
á leikdegi i Evrópukeppninni, og
þá bentu þeir einnig á, að það hafi
aldrei gerzt áður i sögu islenzkra
félagsliða i Evrópukeppninni, að
það félag, sem hefði dregizt á úti-
völl á undan — Valur i'þessu til-
felli — hefði skipt á leikdegi og
sett leik fram fyrir þann leikdag,
sem annað lið (Keflvikingar)
ættu á heimavelli. Keflvikingar
töldu, að stjórn KSI og Valsmenn
væru að ganga á rétt Keflvikinga
i þessu sambandi. Keflvikingar
sögðust vera ákveðnir i að leika
sinn heimaleik þann 17.
september Þeir töldu að félögin
ættu að halda si'num leikdegi, en
ekki vera flæmd i burtu, þar sem
útilokað væri að leika tvo
Evrópuleiki hér á landi tvo daga i
röð. Þeir töldu, að það væri litill
grundvöllur fyrir þátttöku
islenzkra liða i Evrópukeppninni,
ef félög gætu flakkað og skipt um
leikdaga að vild.
Valsmenn töldu að Keflvik-
ingar ættu að vikja fyrir þeim,
þar sem i reglum UEFA stæði, að
LIAM BRADY —
„Maður framtíðarinn-
ar”, segir Bertie Mee.
Brad
hjá
Arsenal
LIAM BRADY, hinn ungi og efni-
legi miðvallarspilari Arsenal og
írlands, hefur nú skrifað undir
nýjan samning við Arsenal.
Brady var mjög óánægður á
Highbury sl. keppnistimabil, og
um tima leit út fyrir að hann
myndi fara fram á að vera settur
á sölulista hjá Arsenal. Hann
sagöi, að þaö hefði verið mjög lé-
legt andrúmsloft hjá Arsenal sl.
keppnistlmabil. Margir af beztu
leikmönnum liðsins hefðu verið
scldir, en ekki neinir nýir leik-
menn komið I þeirra stað.
— Ef við eigum annað jafn
slæmt keppnistimabil, þá mun ég
fara fram á sölu frá Arsenal,
sagði Brady. Bertie Mee
framvkæmdastjóri Arsenal hefur
nú hætt við að reyna að kaupa
hinn sterka miðvörð Joe
Gallagher frá Birmingham. —
„Hann var efstur á listanum yfir
þá leikmenn, sem við höfum
áhuga á að kaupa — en Birming-
ham vill ekki selja hann”, sagði
Liam Brady.
ef lið í Evrópukeppni meistara-
liða eða bikarhafa rækjust á leiki
liða í UEFA-bikarkeppni Evrópu,
þá ætti það lið sem léki i UEFA-
keppninni að vikja — Keflvik-
ingar i þessu sambandi. Keflvik-
ingar voru ekki á sama máli, þvi
að þeir sögðu að þessar reglur
UEFA væru rangtúlkaðar af
Valsmönnum, þvi að drátturinn i
Evrópukeppninni gengi alltaf fyr-
ir, og þeir bentu á, að ef Keflvik-
ingar og Valsmenn hefðu dregizt
upp á sama dag með heimaleik,
þá hefðu Keflvikingar átt að
vikja. En þannig væri málum
ekki háttað, þar sem Valsmenn
drógust á útivöll fyrst, en Kefl-
vikingar á heimavöll.
Ekki náðist samkomulag milli
Valsmanna og Keflvikinga á
fundinum, en ákveðið var að fé-
lögin myndu ræða málin nánar og
endurskoða afstöðu sina. Ef fé-
lögin koma sér ekki saman um
málið, þá mun það ver á valdi
stjórnarKSI að skera úr deilunni.
Iþróttasiðan hefur frétt, að ef
svo fari, að stjórn KSI þurfi að
kveða upp dóm i þessu máli —
dóm sem Keflvikingar sætta sig
ekki við, þá muni Keflvikingar
láta málið fara lengra — þ.e.a.s.
til UEFA.
OLAFUR VALINN
í LANDSLIÐIÐ
VESTMANNAEYINGURINN
ólafur Sigurvinsson hefur bætzt I
22 manna landsliðshópinn, sem
hefur veriö valinn fyrir landsleik-
inn gegn Sovétrikjunum á mið-
vikudaginn kemur. Ólafur hefur
ekki getað leikið með landsliöinu
sl. tvö leiktimabil vegna meiðsla,
en er nú búinn að ná sér og kemur
inn i landsliðshópinn fyrir Janus
Guðlaugsson úr FH.
22 manna landsliðshópurinn,
sem hefur verið valinn fyrir leik-
inn gegn Sovétmönnum er skip-
aður þessum leikmönnum: Arni
Stefánsson, Fram, Sigurður
Dagsson, Val, Þorsteinn Ólafs-
son, Keflavik, Björn Lárusson,
Akranesi, Marteinn Geirsson,
Fram, Jóhannes Eðvaldsson,
Holbæk, Guðgeir Leifsson, Vik-
ingi Grétar Magnúss., Keflavik,
Ólafur Júliusson, Keflavik, Hörð-
ur Hilmarsson, Val, Elmar Geirs-
son, Fram, Gisli Torfason, Kefla-
vik, Ólafur Sigurvinsson, Vest-
mannaeyjum, Jón Pétursson,
Fram, Jón Gunnlaugsson, Akra-
nesi, Karl Hermannsson, Kefla-
vik, Arni Sveinsson, Akranesi
Ottó Guðmundsson, KR, Matthias
Hallgrimsson, Akranesi örn
Óskarsson Vestmannaeyjum og
Teitur Þórðarson, Akranesi.
16 manna hópurinn, sem leikur
gegn Sovétrikjunum, verður
endanlega valinn á mánudaginn.
„Strákarnir
• • •
voru m|og
an
ir...
— þegar þeir fréttu að mótherjarnir væru
frá íslandi", sagði White, formaður Celtic
„Auðvitað væri það betra fyrir okkur að leika fyrri leikinn i
Reykjavik, en ég get ekki séð, aö það verði nein vandræði I Glasgow,
jafnvel þótt Glasgow Rangers leiki gegn írska liðinu Bohemians
Dublin sama kvöid (1. október) og við leikum gegn Valsmönnum”,
sagði formaður Celtic DESMOND WHITE, þegar hann var spurður
að þvi, hvort það væri ekki slæmt, að Celtic og Glasgow Rangers léku
sama kvöld i Evrópukeppninni i Glasgow.
— Það var skemmtilegt fyrir okkur að dragist gegn Val, þvi að
Celtic hefur aldrei farið til Islands til að leika. Strákarnir voru mjög
ánægðir þegar þeir fréttu, að mótherjar þeirra væru frá Islandi. Við
hlökkum mikið til Islandsferðarinnar”, sagði Desmond W’hite.
REYKJAVIKURRISARNIR MÆTAST
— en bikarmeistarar Vals mæta Selfyssingum í bikarkeppninni
GÖMLU Reykjavíkurfélögin KR
og Fram drógust saman i 16-Iiða
úrslitum i bikarkeppninni i knatt-
spyrnu. Leikur þessara Reykja-
vikurrisa verður eini stórleikur-
inn, sem fer fram i 16-Iiða úrslit-
unum, þvi að hin 1. deildarliðin
drógust gegn 2. og 3. deildarliöum
og eru miklar likur á, aö þau
komist i 8-Iiða úrslitin.
Bikarmeistarar Vals drógust
gegn Selfyssingum og tslands-
meistarar Akraness mæta Ár-
menningum á Skaganum. Drátt-
urinn i 16-liða úrslitunum fór
þannig:
Valur — Selfoss
Keflavik — tsafjörður
Akranes — Ármann
Þór, Þorlákshöfn — Víkingur
KR — Fram
Haukar — Þór, Akureyri
Grindavík — FH
Vestmannaeyjar — Þróttur Nes.
eða Leiknir frá Fáskrúðsfiröi.
Leikdagur i 16-liða úrslitunum
er þriðjudagurinn 5 ágúst, nema
leikir KR — Fram og Valur —
Selfoss, sem ekki er búið að setja
á.