Tíminn - 25.07.1975, Page 16
jNútíma búskapur þarfnast
Guöbjörn
Guðjónsson
Heildverzlun Síöumúla
Simar 85694 & 85295
Vi^
fyrirgódan mai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
-
Herforingjar lýsa yfir
stuðningi við Goncalves
NTB/Reuter-Lissabon. Yfirmenn
I Portúgalsher, sem mynda
kjarna þeirrar stjórnmálahreyf-
ingar hersins (MFA), er öllu ræö-
ur i Portúgal, héldu meö sér fund
i gær. Á fundinum var lýst yfir
eindregnum stuöningi við Vasco
Goncalves forsætisráðherra og
tilraunir hans til aö koma á lagg-
irnar nýrri rikisstjórn.
Fundurinn i gær var eins konar
liðskönnun fyrir fund MFA, er
halda á i dag. Á þeim fundi er ætl-
unin að ræða leiðir til að leysa
þann stjórnmálahnút, er myndazt
hefur i Portúgal við brotthvarf sjö
ráðherra úr Portúgalsstjórn.
Fréttaskýrendur i Lissabon á-
lita, að fulltrúar hersins — sem
hafa tögl og hagldir innan MFA
og eru jafnframt róttækari armur
samtakanna — láti kné fylgja
kviði á fundinum i dag og beri
ofurliði frjálslyndari öfl. . Þvl er
búizt við, að i ályktun fundarins
verði i engu tekið tillit til óska
sósialista,
Areiðanlegar fréttir herma, að
ætlunin sé að veita þriggja manna
ráði herforingja alræðisvald i
Portúgal. Bæði Goncalves og
Gosta Gomes forseti eiga að sögn
að sitja I hinu nýja ráði.
Viðræður Schmidts og Wilsons:
KRFFIÐ
ffrá Brasiliu
Geta Bretar lært af
*
*
V-Þjóðverjum hvern-
ig halda á verðbólgu
í skefjum?
Schmidt ásamt Wilson (t.v.) og Giscard d’Estaing (t.h.).
Viðræður Schmidts og Giscard d'Estaings:
Von á nýjum efnahagsúr
ræðum í Frakklandi
Reuter-Paris. Valery Giscard
d’Estaing Frakklandsforseti
hcidur i dag til fundar við Heimut
Schmidt, kanslara Vestur-Þýzka-
iands. Búizt er viö, aö viöræður
þeirra snúist um samvinnu
Frakka og Vcstur-Þjóðverja á
sviði efnahagsmála.
Franska stjórnin hefur nú i
hyggju að gripa til nýrra ráða, til
að rétta við efnahag landsins, er
verið hefur i kalda koli um skeið.
Iðnaðarframleiðsla hefur dregizt
saman og atvinnuleysi aukizt —
tala atvinnulausra I Frakklandi
nálgast nú óðfluga 900 þúsundir.
Að undanförnu hafa staðið yfir
viðræður franskra ráðherra við
leiðtoga atvinnurekenda og laun-
þega um leiðir I þessu skyni. Á
þriðjudag i næstu viku hefur verið
boðaður mikilvægur stjórnar-
fundur, þar sem búizt er víð, að
siðasta hönd verði lögð á hin nýju
efnahagsúrræði. Aður er talið að
Giscard d’Estaing vilji kynna
Schmidt úrræðin, enda er liklegt,
að þau geti haft áhrif á samvinnu
rikjanna tveggja á efnahagssvið-
inu. Frakkland er I dag helzta
viðskiptaland Vestur-Þýzka-
lands, svo að ráðstafanir i
frönsku efnahagsllfi koma að litlu
haldi, nema vestur-þýzk stjórn-
völd séu þvi hlynnt og gripi til
nauðsvnlegra hliðarráðstafana.
NTB/Reuter-Hamborg. Haroid
Wilson, forsætisráöherra Bret-
lands, hitti Helmut Schmidt,
kanslara Vestur-Þýzkalands, aö
máli i gær í Hamborg. Viöræöur
þjóðarleiötoganna snerust eink-
um um efnahagsmál.
Að sögn fréttaskýrenda ræddu
þeir Schmidt og Wilson hugsan-
legar, sameiginlegar aðgerðir, til
að mæta þeim efnahagsörðug-
leikum, er steðjað hafa að vest-
rænum rikjum að undanförnu. Er
nánast um að ræða framhald á
viðræðum, er tvlmenningarnir
hófu á siðasta leiðtogafundi Efna-
hagsbandalags Evrópu, er hald-
inn var I Brussel fyrir hálfum
mánuði.
Bæði Bretland og Vest-
ur-Þýzkaland standa andspænis
miklu atvinnuleysi. Aftur á móti
hafa Bretar átt I striði við mikla
verðbólgu, meðan Vestur-Þjóð-
verjum hefur tekizt að draga svo
úr verðhækkunum, að undrun
sætir.
Fundur þeirra Schmidts og Wil-
sons er sá fyrsti, er þeir eiga með
sér, frá þvi Bretar greiddu at-
kvæði um áframhaldandi aöild að
EBE. Á fundinum i Brussel hét
Wilson þvi, að brezka stjórnin
væri staðráðin að taka höndum
saman við aðrar EBE-stjórnir i
baráttunni gegn þeim efnahags-
örðugleikum, er að steðjuðu.
Wilson kom til Hamborgar I
gærmorgun við áttunda mann.
Þaðan átti hann svo að halda i
gærkvöldi. A næstunni ræðir
Schmidt svo við þá forsetana
Valery Giscard d’Estaing (sjá
frétt til hliðar) og Gerald Ford.
Búizt er við, að þær viðræður snú-
ist að verulegu leyti um efna-
hagsmál.
Sithole, einn fremsti frelsisleiðtogi blökkumanna í Ródesíu:
Sný ekki aftur, fyrr en Smlth hefur
verið hrakinn frá
Reuter-Dar es Salaam. Nbaningi
Sithoie, einn af ieiðtogum þjóö-
frclsisaflanna I Ródesiu, hefur
lýstyfir, aö hann snúi ekki aftur
til Ródesiu, fyrr en stjórn Ian
Smiths hafi veriö hrakin frá völd-
um. Þetta kont fram i viötali, er
Reuter-fréttastofan átti við hann
fyrir sköntmu.
Sithole var foringi
ZANU-frelsishreyfingarinnar,
áður en hún sameinaðist
ZAPU-hreyfingunni I Afriska
þjóðarráðinu (ANC). Aður voru
miklar viðsjár með þessum tveim
frelsishreyfingum i Ródesiu —
ZANU var t.d. mun herskárri —
en með stofnun ANC var revnt að
sameina hreyfingarnar, svo að
þær gætu komiö fram sem ein
heild I stjórnarskrárviðræðum
við stjórn Ian Smiths, er styðst
við minnihluta hvitra manna I
landinu.
Sithole sat I fangelsi i Ródesiu
um tiu ára skeið, en var sleppt i
fyrrahaust — um það bil er
stjórnarskrárviðræðurnar áttu að
hefjast. Hann var siðan tekinn
höndum að nýju — sakaður um
undirferli og óheiðarleika gagn-
vart samstarfsmönnum sinum I
ANC.
Sithole var sleppt lausum til að
sækja fund Samtaka Afrikurikja i
Dar es Salaamhöfuðborg Tanzan-
iu. Þegar til kom, neitaði hann að
snúa aftur til Ródesiu, en ætlar
sér I þess stað að dvelja áfram i
Dar es Salaamog stjórna þaðan
baráttu ANC fyrir sjálfstæði
Ródesiu eða Zimbawe, eins og
blökkumenn vilja nefna ættland
sitt.
Samningaumleitanir Egypta
og Isralsmanna:
ísraelsmenn setja
strik í reikninginn
NTB/Reuter-Jerúsalem/-
Kairo/London/Washington.
Svo virðist sem sú krafa
israelsmanna, aö teknar veröi
upp beinar samningaviöræöur
við Egypta, hafi komiö flatt
upp á Bandarfkjamenn —
a.m.k. er taiið, að hún flýti
ekki fyrir gerö nýs bráöa-
birgðasa m kom ula gs deilu-
aðila um Sinai-skaga.
öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna frestaði i gær
afgreiðslu ályktunar um
framlengingu á dvöl gæzluliðs
S.Þ. á Sinai-skaga. Frétta-
skýrendur i New York álita,
að fulltrúar Egypta og
Israelsmanna hafi báðir haft
eitthvað að athuga við orðalag
þess ályktunaruppkasts, er
fyrir lá.
Henry Kissinger, utanrikis-
ráðherra Bandarikjanna,
sagði i gær, að krafa Israels-
manna um beinar viðræður
gæti ekki — ein sér — komið i
veg fyrir gerð nýs bráða-
birgðasamkomulags.
Sithole (lengst t.v.) á fundi Einingarsamtaka Afrfku fyrir skömmu.