Fréttablaðið - 19.03.2005, Page 53
Mara Salvatrucha-gengið á
rætur sínar að rekja til níunda
áratugarins þegar borgarastyrj-
öldin í El Salvador geisaði. Meira
en hundrað þúsund manns létust
í styrjöldinni og milljón manna
flutti til Bandaríkjanna, stór
hluti ólöglega.
Flestir innflytjendanna fóru til
Kaliforníu og settust að í Los Angeles, sem oft hefur
verið nefnd höfuðborg götugengjanna. Þeir komu
sér þaki yfir höfuðið í spænskumælandi hverfum
borgarinnar. Þar urðu þeir hins vegar fyrir aðkasti
mexíkóskra gengja og annarra. Sér til varnar stofn-
uðu þeir sér því sitt eigið gengi. Við Pico Union í Los
Angeles varð sem sagt til gengið Mara Salvatrucha
sem þýðir einfaldlega gengi drengja frá El Salvador.
Gengið gengur einnig undir heitinu MS 13.
Mara Salvatrucha átti síðan eftir að vaxa hraðar
en nokkurn óraði fyrir og nú er svo komið að það
telur um 50 þúsund meðlimi víðs vegar um Mið-
Ameríku og í Bandaríkjunum á jafn ólíkum stöðum
og Alaska og Flórída. Mara Salvatrucha er því ólíkt
öðrum götugengjum í Bandaríkjunum að því leyti að
það teygir anga sína til annarra landa og hefur náin
tengsl við El Salvador.
Mara Salvatrucha er glæpagengi með stóru G.
Gengið smyglar eiturlyfjum í stórum stíl frá
Mexíkó til Bandaríkjanna og hefur tengsl við stóra
eiturlyfjahringi í Suður-Ameríku. Gengið smyglar
einnig fólki og vopnum yfir landamærin og stelur
þúsundum bíla í Bandaríkjunum á hverju ári. Sam-
kvæmt upplýsingum frá saksóknara í Orange-sýslu
í Kaliforníu er talið að um 80 prósentum allra bíla í
El Salvador hafi verið stolið í Bandaríkjunum. Með-
limir Mara Salvatrucha hafa einnig verið dæmdir
fyrir fjölmörg morð í Bandaríkjunum, sem og
mútur, nauðganir, fíkniefnasölu, innbrot, rán og
ólöglega sölu vopna og fleira. Þeir hafa jafnvel
gengið svo langt að leggja „skatt“ á fíkniefnasölu og
vændi sem stundað er á svæðum sem þeir ráða yfir.
Nýlegt dómsmál í Virginíu, þar sem meðlimur
Mara Salvatrucha var dæmdur fyrir morð, veitti
ákveðna innsýn í starfsemi gengisins. Í vitnaleiðsl-
um kom fram að meðlimir gengisins eiga beinlínis
refsingu yfir höfði sér, ráðist þeir ekki á meðlimi úr
öðrum gengjum. Þannig upplýsti eitt vitnið að ef
meðlimur Mara Salvatrucha gerðist uppvís að því
að ráðast ekki gegn óvininum kæmu foringjar MS
13 upp sérstökum dómstóli götunnar. Viðkomandi
væri síðan dæmdur til að þola harðar barsmíðar í
13, 26 eða 39 sekúndur.
Meðlimir Mara Salvatrucha eru alræmdir fyrir
að nota handsprengjur, sveðjur og hríðskotabyssur
gegn óvinum sínum. Eitt af vörumerkjum þeirra er
að skera eistun undan mönnum sem þeir telja sig
eiga sökótt við og gefa hundunum sínum þau. Gengið
sýnir lögreglunni enga virðingu og hafa meðlimir
þess meðal annars tekið þrjá bandaríska alríkis-
lögreglumenn af lífi. ■
LAUGARDAGUR 19. mars 2005 37
Allir meðlimir Mara Salvatrucha eru
húðflúraðir og flestir í bak og fyrir. Al-
gengast er að þeir séu með bókstafinn
„M“ húðflúraðan á sig eða „MS“. Talan
„13“ er einnig algengt húðflúr sem og
spænska orðið „sureno“ eða styttingin
á því „sur“. Sureno þýðir sá að sunnan.
Margir meðlimir gengisins eru einnig
með orðin „Salvadorian Pride“, sem
þýðir stolt El Salvador, húðflúruð á lík-
ama sinn.
HÚÐFLÚRAÐIR Ónafngreindur með-
limur Mara Salvatrucha.
Robert F. Clifford heitir maðurinn sem
stjórnar sérsveit bandarísku alríkislög-
reglunnar (FBI) sem vinnur að því að
uppræta götugengið Mara Salvatrucha.
Að vissu leyti er hann að feta í fótspor
hins fræga Eliot Ness, sem á fyrri hluta
síðustu aldar elti mafíósann Al Capone
uppi og kom honum í fangelsi.
Clifford hefur unnið fyrir alríkislögregl-
una í sautján ár og er mikilsvirtur inn-
an stofnunarinnar. Hann hefur að
mestu unnið í málum sem snerta
hryðjuverk og hryðjuverkasamtök.
Hann vann meðal annars að öryggis-
málum á Ólympíuleikunum í Aþenu. Á
meðan hann var í Grikklandi komst
hann á slóð hryðjuverkasamtakanna
„17. nóvember,“ sem framið hafa
fjöldamörg hryðjuverk í Evrópu. Upp-
lýsingarnar sem hann náði leiddu til
þess að síðla árs 2002 voru nítján
meðlimir hryðjuverkasamtakanna
handteknir.
Nokkur leynd hefur hvílt yfir sérsveit-
inni, sem á næstu mánuðum mun ein-
beita sér að því að ná lykilmeðlimum
Mara Salvatrucha. Hún var stofnuð fyrir
tveimur mánuðum. Clifford hefur lítið
viljað tjá sig um sérsveitina sjálfa. Á
blaðamannafundi nýverið vildi hann
ekki einu sinni svara því hversu margir
væru í sveitinni.
Eliot Ness
21. aldar
NÁÐI CAPONE Eliot Ness var maðurinn
sem kom mafíósanum Al Capone bak við
lás og slá. Bíómyndin The Untouchables
var gerð eftir sögu Ness.
Merktir genginu
Hrottalega grimmir strákar frá El Salvador