Fréttablaðið - 10.04.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 10.04.2005, Blaðsíða 1
ÁSTAND SLÆMT Á SJÚKRAHÚS- UM Pálína Ásgeirsdóttir verður fyrst ís- lenskra hjúkrunarfræðinga til að setjast í stól yfirmanns spítalahjúkrunarþjónustu Al- þjóða Rauða krossins í Genf um næstu mánaðamót. Hún starfaði við uppbyggingu í Afganistan. Sjá síðu 2 SPRENGJA GRANDAR RÚTU Jarð- sprengja sprakk undir rútu í Nepal í gær með þeim afleiðingum að þrír menn fórust og 27 særðust. Rútunni var ekið í trássi við ellefu daga allsherjarverkfall sem uppreisnar- menn lýstu yfir um síðustu helgi Sjá síðu 2 ÁRATUGA SAMBAND KÓRÓNAÐ Allt gekk samkvæmt áætlun er Karl Bretaprins og Camilla Parker Bowles gengu í hjónaband í Windsor á Englandi í gær. Sjá síðu 4 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Kvikmyndir 30 Tónlist 30 Fólk 34 Bækur 28 Íþróttir 20 Sjónvarp 32 SUNNUDAGUR DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 10. apríl 2005 – 95. tölublað – 5. árgangur RIGNING EÐA SLYDDA norðaustan og austan til en skúrir annars staðar. Minnkandi úrkoma þegar líður á daginn. Hiti 0-7 stig mildast syðst. Sjá síðu 4 ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Í SALNUM Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Edda Erlendsdóttir píanóleikari halda út- gáfutónleika í Salnum í Kópavogi klukkan 20. Þær munu flytja verk eftir Leos Janá- cek, George Enescu, Zoltán Kodály og Bohuslav Martinú. 77% fólks í úthverfum lesa Fréttablaðið daglega.* Ekki missa af fólkinu í stærstu hverfunum. *Gallup febrúar 2005 Stjarna hennar skín enn skært Billie Holiday hefði orðið níræð á fimmtudaginn var. Hún lést 44 ára gömul og tæplega hálfri öld eftir dauða sinn er hún enn frægasta djasssöngkona í heimi. Sæmi Rokk leyfir lesendum að skyggnast örlítið á bak við myndina af Bobby Fischer. SÍÐA 12 ▲ Mun aldrei krefja hann um krónu SÍÐA 16 ▲ Halldór Reynisson hjá Biskups- stofu ræðir um messu- og kirkjusókn Íslendinga. SÍÐUR 14 & 15 ▲ Enginn sunnudagur án messu BIKARINN Á LOFT Í STYKKISHÓLMI Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflvíkinga, sést hér lyfta Íslandsmeistarabikarnum í körfubolta á loft í Stykkishólmi í gær. Keflavík varð Íslandsmeistari þriðja árið í röð eftir tíu stiga sigur, 98–88, á Snæfelli í fjórða leik liðanna í lokaúrslitunum. Sjá síðu 25 Mótmæli í Bagdad: Hernámið fordæmt ÍRAK, AP Tugir þúsunda mótmæl- enda hrópuðu „Nei við Ameríku“ á fjölmennustu mótmælasamkomu sem fram hefur farið í Bagdad frá því landið var hernumið af Banda- ríkjamönnum og bandamönnum þeirra. Upp á dag tveimur árum eftir að stór stytta af Saddam Hussein var felld af stalli á torgi í miðborg Bagdad söfnuðust fylgis- menn róttæks leiðtoga sjía- múslima, Muqtata al-Sadr, þar saman í gær til að mótmæla her- náminu og felldu og brenndu líkneski af George W. Bush Bandaríkjaforseta, Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og Saddam Hussein. „Þessi stóra samkoma sýnir að íraska þjóðin hefur þann styrk og þá trú sem þarf til að verja land sitt og frelsa það undan hernám- inu,“ hefur AP-fréttastofan eftir Ahmed Abed, 26 ára gömlum þátt- takanda í mótmælafundinum. Talsmenn bandarískra yfir- valda hafa ekki viljað festa neina dagsetningu á það hvenær her- náminu skuli ljúka, en hafa heitið því að bandarískir hermenn verði í Írak þar til eigin öryggissveitir og her nýrrar lýðræðislega kjör- innar Íraksstjórnar verði færar um að tryggja öryggi í landinu. ■ BLAIR OG BUSH SMÁNAÐIR Íraki hamrar hælnum á skó sínum á líkneski af Tony Blair, sem síðan var brennt á sama torgi í Bagdad og stór Saddam- stytta var felld á fyrir réttum tveimur árum. ATVINNUMÁL Vangaveltur eru innan verkalýðshreyfingarinnar um það hvort útrás íslenskra fyrirtækja, til dæmis til baltnesku landanna, sé útrás eða flótti frá íslenskum vinnumarkaði þar sem starfsmenn hafa góð laun, njóta mikilla rétt- inda og verkalýðshreyfingin er sterk. Verkalýðshreyfingin í balt- nesku löndunum er veik. „Þar geta atvinnurekendur ráðið og rekið fólk eins og þeim sýnist. Á Norðurlöndunum er verkalýðs- hreyfingin sterk. Hér er ákveðin hefð fyrir samskiptum á vinnu- markaði sem ekki er fyrir hendi í baltnesku löndunum. Því spyrjum við: Er verið að misnota fólk. Starfsgreinasambandið ætlar að fjalla um þetta á málþingi 10. maí,“ segir Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreina- sambandsins. Félagsleg undirboð og straum- ur fólks á vinnumarkað án tilskil- inna leyfa einkennir vinnumark- aðinn þessa dagana. Skúli segir að sama vandamál sé í öðrum ríkjum Evrópu en verkalýðs- hreyfingin styðji við bakið á verkalýðshreyfingunni í ríkjum gömlu Sovétríkjanna og Austur- Evrópu. „Samkeppnisstaða fyrirtækja á markaði ræðst af því hvaða kostnað fyrirtækin hafa af sinni starfsemi. Þar er launaþátturinn mikilvægur. Sum fyrirtæki fara úr landi og hasla sér völl þar sem þau fá ódýrara vinnuafl. Það þýð- ir að verkalýðshreyfingin verður líka að hefja útrás,“ segir hann. Jón Guðmann Pétursson, for- stjóri Hampiðjunnar, er ósam- mála því að útrásin sé flótti. Margar ástæður séu fyrir því að hagkvæmara sé að hafa vissa þætti starfseminnar erlendis, til dæmis gengismál. Í því felist bara skynsemi og komi launum og réttindamálum ekkert við. „Samkeppni frá Asíu fer vax- andi. Hér er hátt menntunarstig og mikil þekking en ég held að það styrki fyrirtækin í heild að geta verið með hluta starfsem- innar í öðru umhverfi en þessu ís- lenska. Hampiðjan hefur aldrei verið með öflugri starfsemi á Ís- landi en núna,“ segir hann. - ghs Útrás frá hærri launum Forystumenn í verkalýðshreyfingunni velta fyrir sér hvort útrás íslenskra fyrirtækja sé í raun útrás eða kannski flótti frá íslenskum vinnumarkaði. ATVINNUMÁL Jón Steindór Valdi- marsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins, telur að útrás fyrirtækj- anna sé ekki flótti frá íslensk- um vinnumarkaði eða velferð- arkerfi. Fyrirtækin séu í harðri samkeppni og flytji framleiðsl- una utan til að standast hana. „Þetta getur verið spurning um líf eða dauða þegar fyrir- tækin reyna að framleiða vör- una hér með þeim kostnaði sem hér er í samkeppni við vöru sem er framleidd með miklu minni tilkostnaði erlendis,“ segir hann. -ghs Samtök iðnaðarins: Spurning um líf eða dauða FRÉ TT A B LA Ð IÐ /V IL H EL M Tékkland: Gross boðar afsögn TÉKKLAND, AP Stanislav Gross, for- sætisráðherra Tékklands, til- kynnti í gær að hann hygðist segja af sér og víkja úr vegi fyrir nýrri ríkisstjórn. Með þessu vonast Gross til að leysa pólitískan hnút sem skapaðist vegna hneykslis í kringum fjármögnun lúxusíbúðar hans. Fyrst hélt hann því fram að hann hefði sjálfur fjármagnað íbúðina, en síðar kom í ljós að peningarnir komu frá blaðamanni. Gross tilgreindi ekki nánar hvenær hann myndi víkja úr for- sætisráðherrastólnum, að því er Jan Kohout, sendiherra Tékka hjá Evrópusambandinu í Brussel, greindi frá, en líklegast er talið að Jafnaðarmannaflokkur Gross muni tefla Kohout fram sem næsta forsætisráðherraefni. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.