Fréttablaðið - 04.05.2005, Síða 71

Fréttablaðið - 04.05.2005, Síða 71
Peter Lehmann Wildcard Chardonnay Afar góð ræktunarskilyrði eru fyrir chardonnay-þrúguna í Suð- ur -Ástralíu. Vínið hefur ferskan ávaxtaríkan karakter með smá suðrænum blæ þar sem greina má melónur og ferskjur ásamt hunangsvotti. Vínið er einstak- lega vel samstillt með hreint og ferskt eftirbragð. Hentar vel með flestu sjávarfangi og ljósu kjöti. Kynningarverð á áströlskum dögum 990 kr. Peter Lehmann Wildcard Shiraz Vín úr shiraz-þrúgunni eru sennilega þekktustu vínafurðir Ástrala, allt frá skemmtilegum n e y s l u t e g u n d u m upp í gríðarstór og mikil vín. Berja- sprengja af bestu gerð, kryddaður karakter en engu að síður er fínleiki og mýkt í fyrirrúmi og jafnvægið gríð- arlega gott. Kynningarverð á áströlskum dögum 1.090 kr. Peter Lehmann Barossa Semillon Sérlega ferskt og ávaxta- ríkt vín unnið úr semillon- þrúgunni við bestu að- stæður í Barossa-daln- um. Ávöxtur vínsins einnkennist af sítrus- ávöxtum með keim frá blómum og hunangi. Kjörið vín með fiskfangi og austurlensku- mÝréttum. Vin- sælasta vín sinnar tegundar í Ástralíu. Kynningarverð á áströlskum dögum 1.190 kr. Ástralskir dagar hófust í síðustu viku í Vínbúðunum og hafa fjölmargir vínunn- endur nýtt sér að þar má gera hörkugóð kaup í gæðavínum. Meðal þeirra vína sem fást á kynningarverði eru fjögur vín frá meistara Peter Lehmann, einum kunnasta víngerðarmanni Ástral- íu. Einnig er vert að benda á að fleiri vín frá Lehmann hafa lækk- að í verði nýlega vegna aukinnar sölu hérlendis og hagstæðari inn- kaupa. Peter Lehmann er einn kunnasti vínframleiðandi Ástral- íu, oft nefndur baróninn af Barossa. Lehmann-vínin hafa not- ið gífurlegra vinsælda um allan heim og er Ísland þar engin undantekning. Ein vinsælasta vín- línan frá Peter Lehmann nefnist Wildcard enda þykir Lehmann mikill „gambler“, tók mikla áhættu við uppbyggingu hátækni- vædds víngerðarhúss síns og þótti því viðeigandi að nefna fyrirtækið eftir söguhetjunni Sky Masterson, fjárhættuspilaranum mikla úr bókum bandaríska smásagnahöf- undarins Damon Runyons. Síðar var nafninu breytt í Peter Leh- mann Wines en spil eru enn áber- andi í skreytingu flöskumiðanna sem eru auðþekkjanlegir og hefur hönnun og útlit verið margverð- launað ekki síður en innihaldið. Þar eru konur í aðalhlutverki og drottningin aðaltrompið. Auk MIÐVIKUDAGUR 4. maí 2005 35 PETER LEHMANN: Trompunum spilað út á áströlskum dögum Ástralskir dagar fara vel af stað Í síðustu viku hófust ástralskir dagar í Vínbúðunum sem standa næstu þrjár vikurnar. Þar eru 19 hvítvín og 40 rauðvín á kynning- arverði og eru þau kynnt í í hand- hægum og fróðlegum bæklingi í Vínbúðunum. Viðtökur neytenda hafa verið einkar góðar fyrstu vikuna og margir vínunnendur gert sér ferð í Vínbúðirnar til að gera kjarakaup í góðum vínum. Ástralar eru kunnir fyrir sérlega góð hvítvín og lítum við hér á þrjár þrúgur og einkenni þeirra. Chardonnay vinsæl Chardonnay er eflaust þekktasta og vinsælasta hvítvínsþrúga heims og hefur átt sinn þátt í vin- sældum ástralskra vína. Í Ástral- íu gefur þrúgan af sér ávaxtarík vín með meðalfyllingu til vína með góða fyllingu. Hafa þau oft merkjanlega sætu sem kemur frá háu alkóhóli (13 til 14,5%), gerj- un og þroskun á eik, auk þess að í hitanum fær þrúgan meiri og sætari ávöxt. Yfirleitt eru vínin mjúk með greinilega eik og ber ávöxtur- inn keim af suð- rænum ávöxt- um eins og t.d. mangó, papaya og ananas, einnig má oft finna kókos og hunang. Vínin henta með steikt- um fiskréttum sem innihalda sætt meðlæti, t.d. ávöxtum og grillaðri papriku, grilluðum glasseruðum kjúkling eða fiski- súpu með austurlensku ívafi. Mikið eikuð vín geta jafnvel gengið með kjötréttum, t.d. önd, og eru því um leið góður valkost- ur fyrir þá sem ekki vilja rauðvín með kjötinu. Hin olíukennda riesling Riesling er ásamt chardonnay tal- in ein besta hvítvínsþrúga heims. Vínin eru létt til meðalfyllt, þurr með ferska sýru og hafa ávöxt sem ber keim af sítrus, eplum og jafnvel ferskjum. Oft má finna svolítinn olíukeim. Einnig eru framleidd sæt eðalmygluvín úr riesling-þrúgunni. Þurru vínin henta vel sem fordrykkur, með fiskréttum, kjúkling og mörgum austurlenskum réttum. Einnig má hafa þau með söltum og reyktum mat. Léttleikandi sauvignon blanc Sauvignon Blanc gefur af sér vin- sæl hvítvín. Létt til meðalfyllt vín, grösug, ilmrík og fersk með keim af sólberja- og rifsberja- runna, spergli, sítrus og suðræn- um ávextum. Hafi sauvignon blanc komist í kynni við eik er það oft kallað Fumé Blanc. Gott sem fordrykkur, hentar vel með gufusoðnum og ofnbökuðum fisk- réttum, einnig skelfiski, reyktum fiski og salati. Hafi einhver eik komið nálægt víninu passar það betur með steiktum eða grilluð- um fiski og ljósu kjöti. þeirra vína sem hér eru kynnt er vínið Peter Lehmann Barossa Cabernet Sauvignon einnig á kynningarverði og kostar 1.390 kr, lækkar um 200 kr. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.