Fréttablaðið - 05.05.2005, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 05.05.2005, Blaðsíða 67
35FIMMTUDAGUR 5. maí 2005 Timberlake undir hnífinn Rokkafkvæmið Kelly Osbourne, dóttir Ozzy Osbourne, lýsti því yfir fyrir skömmu að móðir henn- ar Sharon hefði tekið þátt í síma- sexi með breska söngvaranum Robbie Williams. Osbourne-fjöl- skyldan dvaldist á hóteli í Los Angeles þegar Sharon ætlaði að hringja í Ozzy. Það fór þó ekki bet- ur en svo að hún hringdi í skakkt númer þar sem breski söngvarinn svaraði. Sharon áttaði sig ekki á því við hvern hún var að tala fyrr en hún hafði gefið upp allt of miklar upplýsingar, en henni til happs leit Robbie svo á að um grín væri að ræða og fíflaðist með. Ekki leið þó á löngu þar til Sharon áttaði sig á því að hún var að tala við vitlausan mann. „Mamma ætlaði að hringja í pabba en lenti á herberginu hans Robbie. Hún spurði hann hvort hann væri nakinn og hann tók þátt í gríninu,“ sagði Kelly í samtali við tímaritið Hit. ■ Pamela Anderson hefur viður- kennt að klæða sig upp í rauða sundbolinn, sem hún skartaði þeg- ar hún lék í þáttunum um Strand- verði, fyrir elskhuga sína. Frægðarsól Pamelu reis hvað hæst í þáttunum þar sem hún lék hina kynþokkafullu C.J. Parker árið 1992. Hún segir að blóðflæði elskhuga sinna fari svo sannar- lega af stað þegar hún bregði sér í hlutverk strandvarðarins. „Ég á það til að klæða mig upp fyrir kærastana mína og það síð- asta sem ég klæddi mig í, sem var í raun fyrir fáum mánuðum, var rauði sundbolurinn,“ sagði Pamela, sem á sem stendur í ástarsambandi við Stephen Dorff. „Einn elskhuga minna vildi láta bjarga sér svo ég stökk inn í sturtuklefann, bleytti mig og hljóp síðan hægt í átt að rúminu. Ég held að hann hafi verið nokkuð sáttur við frammistöðu mína.“ ■ Nýlega spruttu upp sögusagnir um að Colin Farrell hefði gert hosur sínar grænar fyrir súper- módelinu Elle Macpherson. Fyrsætan fór þó bara að hlæja þegar hún heyrði sögurnar um að parið hefði fengið sér vínglas saman á Bahama-eyjum. Mac- pherson, sem er orðin 42 ára, brá heldur í brún þegar hún heyrði slúðrið: „Hvað þá?! Hann er 28 ára gamall og ég á tvö börn. Ég hef ekki heyrt þessa sögu – hún er áhugaverð.“ Sam- kvæmt heimasíðunni ITV.com sagðist Macpherson hafa hitt „hinn fallega unga Íra“ þegar hún dvaldi á Bahama-eyjum. „Núna er greyið strákurinn yfir sig hneykslaður á að vera orðað- ur við þessa gömlu kellingu,“ sagði fyrirsætan. ■ JUSTIN OG CAMERON Cameron Diaz mun væntanlega hjúkra unnusta sínum þegar hann verður skorinn upp vegna hnúða í hálsi. Bandaríski söngvarinn Justin Timberlake þarf að taka sér smá frí frá söngnum því hann er með hnúða í hálsinum. Söngvarinn knái þarf að gangast undir aðgerð til að bjarga poppferlinum og mun fara undir hnífinn á einkasjúkra- húsi í Los Angeles í næstu viku. ■ ELLE MACPHERSON Súpermódelið hló að nýlegum sögusögnum um að hún væri að slá sér upp með leikaranum Colin Farrell. Of gömul fyrir Colin PAMELA ANDERSON Hún á það til að klæða sig upp í gervi fyrir elskhuga sína, þar á meðal rauða sundbolinn. Gamnar sér í sundbolnum SHARON OSBOURNE Áttaði sig of seint á því að hún var að klæmast við vitlausan mann. Klæmdist vi› vitlausan mann 66-67 (34-35) Skrípó 4.5.2005 20:06 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.