Fréttablaðið - 05.05.2005, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500
®
Þakviðgerðir
Málarameistari
sér um þakið
Síðan 1991
GSM Heimasími Internet
Og1 er ný þjónusta Og Vodafone sem lækkar kostnað
heimila verulega og færir þeim rausnarlegan ávinning.
0 KR. HEIM
Nú hringja allir heim úr GSM án þess að
greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag.
0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM
Hvert GSM númer fær 120 mínútur á mánuði
í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem
Íslendingar eiga mest samskipti við.
Mánaðargjald fyrir GSM áskrift er 600 kr.
Gildir fyrir Frelsisnotendur með
500 kr. Frelsisáskrift.
0 KR. INNANLANDS
500 mínútur í aðra heimasíma eru innifaldar í
mánaðargjaldi. Flestir tala minna en í 500
mínútur á mánuði á milli heimasíma og greiða
því ekkert mínútugjald.
0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM
Hver Heimasími fær 120 mínútur á mánuði í
heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem
Íslendingar eiga mest samskipti við.
Mánaðargjald fyrir Heimasíma er 1.340 kr.
MEIRI HRAÐI, FRJÁLST NIÐURHAL
OG VERÐÞAK
Þú átt þess kost að fá 6Mb/s ADSL og
ótakmarkað niðurhal á 4.990 kr. á mánuði
eða 4Mb/s ADSL og 1GB niðurhal fyrir 3.990
kr. á mánuði.
ADSL hraði miðast við þjónustusvæði
Og Vodafone.
Heimili sem eru með allt hjá Og Vodafone, GSM áskrift, Heimasíma og Internet, geta skráð sig í Og1.
Þeir sem eru með síma eða nettengingu frá vinnuveitanda ættu einnig að kynna sér Og1.
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
81
26
04
/2
00
5
Öryrkjar
Málefni öryrkja hafa verið mikiðí brennidepli að undanförnu.
Öryrkjum fer fjölgandi á Íslandi,
sérstaklega meðal ungs fólks, og fer
hlutfall þeirra vaxandi.
ÞAÐ ER EKKI auðvelt að vera
veikur og geta ekki unnið fyrir sér.
Það er ekki öfundsvert að vera hald-
inn sjúkdómi sem hindrar mann í að
lifa eðlilegu lífi. Og að sjálfsögðu
ber velferðarþjóðfélaginu skylda til
að aðstoða þá sem eiga um sárt að
binda, sjá fyrir þeim sem ekki geta
það sjálfir og gera þeim lífið eins
bærilegt og hægt er með allri mögu-
legri fyrirgreiðslu.
ÉG HELD EKKI að sjúkdómar fari
vaxandi. Ég held að æ fleiri notfæri
sér velvild kerfisins, geri sér upp
veikindi, leggist með lappirnar upp í
loft og leggi ábyrgðina á sjálfum sér
yfir á kerfið. Og svo felur þetta fólk
sig á bak við raunverulega öryrkja
og baráttu þeirra.
ÉG LAS Í BLAÐI um daginn að ör-
yrkjavandamálið væri orðið stór-
vandamál í Svíþjóð. Þar er tala ör-
yrkja víst að nálgast milljón, sem er
um 10% þjóðarinnar. Ég veit fyrir
víst, og af eigin reynslu, að þetta fólk
er ekkert allt öryrkjar. Margt af þessu
fólki er það sem kallað er á sósíalnum.
Það er heilbrigt en hefur fundið leið
til að framfleyta sér án þess að vinna
fyrir sér. Og oft er það með betri laun
en ef það væri að vinna.
EN ÞESSI umræða er sveipuð ein-
hvers konar verndarhjúpi. Þetta
minnir mig á mál svertingja í
Bandaríkjunum. Ekkert má segja
um þá nema að nota ákveðin orð. Og
þetta er ekki út af kærleika eða um-
hyggju. Þetta er aumingjagæska. Og
aumingjagæska er samblanda af
ótta og hroka.
EKKERT ER HAFIÐ yfir gagn-
rýni. Þegar við hættum að geta gagn-
rýnt hluti erum við og þeir á villigöt-
um. Segjum sem svo að leikhúsin á
Íslandi yrðu aumingjagæskunni að
bráð og yrðu hafin yfir gagnrýni.
Segjum sem svo að það yrði pólitískt
rangt að gagnrýna leikhúsin og verk
þeirra. Þá er ég ansi hræddur um að
vandi leikhúsanna mundi vaxa og
leikritin úrkynjast og þynnast út í
væmna og leiðinlega lognmollu.
Það er sjálfsagt að hjálpa þeim sem
minna mega sín. En sjálfsábyrgð er
nátengd sjálfsvirðingu. Oft hjálpar
maður fólki mest með því að láta það
bera ábyrgð á sér.
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
80 (48) Bak 4.5.2005 20:20 Page 2