Fréttablaðið - 17.05.2005, Page 73
ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 2005 21
ÚTSÖLULOK
ALLAR ÚTSÖLUBÆKUR ME‹ 70% AFSLÆTTI 17.-20. MAÍ
afsláttur
70%
www.boksala.is
Verslunin er opin
frá 9-18 alla virka daga
Útsölu á erlendum bókum l‡kur 20. maí.
Sígildar heimsbókmenntir, afflreying,
fró›leikur og fræ›i á frábæru ver›i.
6.888 kr.
Tæki sem auðvelda vorverkin
ALTO háþrýstidælur
R
V
20
34
Tilbo
ð
maí 2
005
ALTO
háþr
ýstidæ
lur á
tilboð
sverð
i
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 120 bör
Vatnsmagn: 440 l/klst
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 100 bör
Vatnsmagn: 300 l/klst
15.888 kr.
Nilfisk ALTO Excellent
Þrýstingur: 135 bör
Vatnsmagn: 500 l/klst
28.888 kr.
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Opn
unar
tími
í ve
rslun
RV:
Eyjamenn arfaslakir gegn Fram í Laugardalnum:
Létt verk hjá fleim bláu
FÓTBOLTI „Þetta var ekki neinn
glansleikur, við gerðum það sem
þurfti til og gott betur,“ sagði
Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Fram, eftir leik. Hans menn hrein-
lega rúlluðu yfir Eyjamenn og áttu
óskabyrjun á þessu móti.
„Það kemur svo í ljós með
framhaldið. Ég byrja að hugsa um
næsta leik strax í kvöld,“ bætti
Ólafur við en það hefur loðað við
Fram undanfarin ár að fara ekki
almennilega í gang fyrr en tekur
að hausta. Framarar verða þó ekki
dæmdir af frammistöðu sinni í
gær af þeirri einföldu ástæðu að
mótherjar þeirra voru mjög slakir.
Eyjaliðið þarf svo sannarlega að
taka sig til í andlitinu ef liðið á að
fá nokkur stig í sumar og þurfa
þeir að standa sterkan vörð um
Hásteinsvöllinn.
„Ég kann ágætlega við mig í
þessum lit,“ sagði Þórhallur Dan
sem leikið hefur fyrir Fylki nánast
alla sína tíð. Hann lék nú í hjarta
varnarinnar hjá Fram. „Við lent-
um í vandræðum til að byrja með
en leystum það síðan ágætlega.
Við spiluðum einfaldlega eins og
lagt var upp með,“ sagði Þórhallur.
„Í Fram eru margir góðir fótbolta-
menn sem þurfa að hafa trú á því
sem þeir eru að gera. Ég þekki það
af eigin reynslu að það er mun
skemmtilegra að vera í topp-
baráttu og er ég að reyna að koma
því til skila,“ sagði hann spurður
um slæma byrjun Fram síðustu ár.
Eyjamenn byrjuðu leikinn
betur og hefðu getað komist yfir á
8. mínútu þegar Steingrímur slapp
einn inn fyrir en án árangurs.
Eftir það tóku Framarar öll völd á
vellinum og var sigur þeirra
aldrei í hættu. Allt liðið lék vel
með Andra Fannar sem besta
mann, enda sívinnandi og hættu-
legur.
eirikurst@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Við förum beint niður ef þetta heldur
svona áfram,“ sagði Birkir Kristinsson, mark-
vörður ÍBV eftir leik.
„Við erum búnir að fá fullt af nýjum mönnum og
var þetta algert happadrætti hvernig þessi leikur
myndi þróast. Það er alveg skelfilegt að fá ekki
fullskipað lið fyrr en skömmu fyrir mót. Í liðinu
eru menn sem hafa verið með á einni æfingu,“
sagði Birkir ómyrkur í máli enda útlitið svart hjá
Eyjamönnum. -esá
Vi› förum beint ni›ur me› svona leik
Á SIGURBRAUT Annað árið í röð unnu Framarar 3–0 sigur í fyrsta leik Landsbanka-
deildarinnar. Nú er að sjá hvort þeir halda haus eða lendi aftur í fallslagnum eins og í
fyrrasumar. Hér fagna Framarar einu marka sinna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM