Fréttablaðið - 17.05.2005, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR
Frjáls íbúðalán
4,15% verðtryggðir vextir
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar.
Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000
eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Engin sk
ilyrði
um önn
ur
bankav
iðskipti
100%veðsetningarhlutfall
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500
®
Þakviðgerðir
Nánari upplýsingar á www.pace.is
Málarameistari
sér um þakið
Síðan 1991
Eggin í
álkörfunni
Nú eru tímar skyndilausna. Höfð-ingjar draga upp úr höttum sín-
um góðan galdur og friða örvænt-
ingarfullan almúga. Nú þegar setu-
liðið er á förum skal reisa Suður-
nesjamönnum álver í Helguvík. Það
getur verið hið besta mál, enda ein
álperlan enn í langri keðju álvera
sem skulu liggja með ströndinni.
Álið mun bjarga byggðinni hringinn
í kringum landið frá því að líða
undir lok. Álver í Helguvík, stærra
álver í Hvalfirði, álver í Eyjafirði,
álver í Skagafirði, álver í Reyðar-
firði og svo auðvitað þetta gamla
góða í Straumsvík. Fleiri stóriðju-
draumar leynast sjálfsagt í pússi
hugmyndaauðugra ráðamanna og
vel má vera að þetta sé aðeins topp-
urinn á ísjakanum í álklæddri fram-
tíðarsýn fyrir Ísland.
DRAUMURINN um atvinnutæki-
færi og bætta lífshætti einskorðast
að stórum hluta við álver. Ál er ein-
föld lausn og krefst ekki mikillar
hugsunar eða yfirlegu. Það hefur
verið gert áður og formúlan er til.
Frumlegrar hugsunar og nýsköpun-
ar er ekki þörf. Litlu og gallhörðu
þrýstihóparnir verða ánægðir og um
fram allt hlýtur álfestin um Ísland
náð fyrir augum verktaka og verk-
fræðistofa sem sjá fram á skjótfeng-
inn gróða.
FJÖLBREYTT og freistandi fram-
tíðarsýn fyrir komandi kynslóðir og
dulítil náttúruvernd er ef til vill
ekki alveg í fyrirrúmi, en það er
ekki hægt að þóknast öllum. Upp
kemur í hugann stalinísk áróðurs-
mynd af brosandi mannhafi, marser-
andi til starfa í stóriðjuverum fortíð-
ar. Uppistaða íslenskrar æsku á
framtíð í álverum og enn á ný er
ljósið í hráefnisöflun fyrir erlenda
mógúla – líkt og forðum þegar fisk-
urinn fór óverkaður úr landi og
landhelgin var allra. Eggin eru öll úr
áli og fara í sömu stóriðjukörfuna –
fleiri verða körfurnar ekki.
FYRIRTÆKI í hátækniframleiðslu
horfa til útlanda og flytja fram-
leiðslu sína ef til vill alla út í hinn
stóra heim að lokum. Í miðju fram-
kvæmdafylleríinu þjást útflutnings-
fyrirtæki landans vegna óraunhæfr-
ar stöðu íslensku krónunnar. Það
ástand varir lengi enn því ekki sér
fyrir endann á veisluhöldunum. Inn-
lend verðmætasköpun víkur fyrir
þjónustu við erlend stórfyrirtæki.
Sagði einhver að álæði væri brjál-
æði?
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR