Fréttablaðið - 18.05.2005, Blaðsíða 48
Álþýðulýðveldið
„Eins og álþjóð er kyndugt er
staðraunin nebblega bla bla
voff voff kibba kibb sú,“ segir í
ljóði Dags Sigurðarsonar, Kvía-
bryggjukantötunni. Víst er að
ekki eru allir jafn kátir með
fréttir af auknum áhuga alþjóð-
legra álfyrirtækja á Íslandi.
Uppbygging stóriðjunnar
þykir sumum minna á verk-
smiðjuvæðingu í kommúnista-
ríkjum á fyrri tíð, þegar vöðva-
stæltir sótugir verkamenn voru
stolt sinnar þjóðar.
Í þessum anda hefur hug-
kvæmt fólk lagt drög að nýju
skjaldarmerki álþýðulýðveldis-
ins Íslands. Miðað við fyrri
samlíkingu er ekki óeðlilegt að
sótt sé í myndmál Kínverja og
Rússa við gerð merkisins.
Tómar forstjóra-
skrifstofur
Forstjóraskrifstofur allra
stærstu fyrirtækja landsins eru
tómar þessa vikuna.
Helstu stjórnendur við-
skiptalífsins eru allir í Kína
með forseta Íslands. Þarna eru
helstu bisnessmenn þjóðarinn-
ar samankomnir. Menn sem
þekktir eru fyrir að vera séðir í
viðskiptum og setja sig ekki úr
færi við að hámarka arðsemi
þess sem þeir fást við. Menn
velta því fyrir sér hvort engum
þeirra hafi dottið í hug að leigja
skrifstofuna sína þessa viku
sem þeir eru í burtu. Það væru
eflaust einhverjir til í að leigja
slíka skrifstofu með fallegum
málverkum og útsýni yfir sund-
in blá, þótt ekki væri nema í
viku.
Úraníumkaup-
menn geisla
Spákaupmenn á hrávörumark-
aði sem keypt hafa framvirka
samninga í úraníum geisla af
gleði þessa dagana. Verð á úran-
íum hefur hækkað um 21 pró-
sent síðustu tvær vikurnar og
árshækkunin nemur um 50 pró-
sentum.
Spákaupmenn reikna með að
úraníumverð muni halda áfram
að hækka. Bandaríkin hafa
keypt mikið úraníum að undan-
förnu og eftirspurnin mun lík-
lega verða mikil áfram því Kín-
verjar áætla að reisa 27 ný
kjarnorkuver til ársins 2020.
200 2 24,7fulltrúar 100 fyrirtækja eru í för með forsetaÍslands í opinberri heimsókn í Kína. Viðskipti með bréf Actavis hafa tvisvar verið stöðvuð íKauphöll Íslands vegna orðróms um viðræður um kaupá fyrirtæki sem Actavis hefur síðan staðfest að séu í
gangi.
milljarðar. Hagnaður viðskipta-
bankanna og Straums fjárfestingar-
banka á fyrstu þremur mánuðum
ársins.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Milliliðalaus verðbréfaviðskipti á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street
í Bandaríkjunum, og á mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is
B A N K A H Ó L F I Ð