Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 33

Fréttablaðið - 19.05.2005, Síða 33
5FIMMTUDAGUR 19. maí 2005 www.plusferdir.is N E T Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is á Elimar í 7 nætur.á Pil Lari Playa í 7 nætur. Verð frá 35.800 kr.* Portúgal 13. júní, 11. júlí og 1. ágúst 48.200 kr. ef 2 ferðast saman. Verð frá 34.930 kr.* Mallorca 1. júní, 13. júlí og 10. ágúst 46.730 kr. ef 2 ferðast saman. á Santa Clara í 7 nætur. Verð frá 39.560 kr.* Costa del Sol 9. júní, 7. júlí og 18. ágúst 49.830 kr. ef 2 ferðast saman. á Res Madrid í 7 nætur. Verð frá 46.620 kr.* Feneyska Rivieran 1. júní, 6. júlí og 17. ágúst 63.620 kr. ef 2 ferðast saman. Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar. *Verðdæmi miðast við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman. Á gömlum Bens yfir Alpana Hrólfur Sæmundsson og fé- lagar hans í Stingandi strá fóru í ógleymanlega tónleika- ferð um Evrópu. „Skemmtilegustu ferðasögurnar mínar eru frá því 1994 þegar ég og félagar mínir í hljómsveitinni Stingandi strá fórum í tónleika- ferð um Evrópu,“ segir Hrólfur Sæmundsson, söngvari og óperu- stjóri. „Við vorum í fjóra mánuði, fórum út með nánast enga pen- inga og lifðum á spilamennsku. Við byrjuðum í Danmörku, Sví- þjóð og Noregi og vorum svo heil- lengi í Frakklandi, þar af mánuð í Marseille þar sem við slógum í gegn, okkur til mikillar furðu. Tveimur dögum eftir síðustu tón- leikana þar áttum við að spila í Berlín, 1.800 kílómetra í burtu. Við vorum á gömlum Benstrukk sem komst ekki hraðar en áttatíu kílómetra á klukkustund og keyrðum á honum yfir Alpana. Á þýsku hraðbrautinni vorum við stoppaðir af löggunni vegna þess að Bensinn var á ólöglegum núm- erum og kyrrsettir í sætu sveita- þorpi sem hét Butchbach og kúrði í dal undir hraðbrautinni. Þetta þýddi að við vorum búnir að missa af tónleikunum í Berlín en fórum þangað samt,“ segir Hrólf- ur og heldur áfram: „Við komum klukkan þrjú um nótt, í þoku og rigningu, og leist illa á blikuna enda kominn nóvember. Við ákváðum að yfirgefa þennan ljóta stað eins fljótt og við gætum dag- inn eftir. Þá fengum við hins veg- ar að vita að tónleikarnir væru á dagskrá eftir allt saman og komumst að því að þessi gráa og guggna borg var skemmtilegri en okkur óraði fyrir. Við áttum flug heim frá Danmörku og lögðum ekki af stað þangað fyrr en á síð- ustu stundu því það var svo gam- an í Berlín. Við fundum flugvöll- inn á korti og þeystum í áttina þangað, sáum flugturn og flugvél- ar og töldum okkur örugga. Eftir því sem við nálguðumst fór nú allt að minnka og þegar við komum sáum við að þetta var módelflug- völlur, vélarnar pínulitlar og flug- turninn tæpir tveir metrar. Þetta minnti á atriði úr kvikmyndinni Spinal Tap. Sem betur fer fundum við svo hinn flugvöllinn og náðum vélinni heim.“ Hrólfur er nú virðulegur Sum- aróperustjóri og innan skamms hefjast æfingar á Galdraskytt- unni eftir Weber, sem sýnd verð- ur í Þjóðleikhúsinu í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. „Ég verð samt alltaf rokkari. Og hver veit nema Stingandi strá leggi land undir fót í sumar...“ ■ Ævintýraborgin Barcelona EIN FALLEGASTA OG SÉRSTÆÐASTA BORG EVRÓPU ER LÍKA AUÐVELD OG AÐGENGILEG. Barcelona er ein vinsælasta ferða- mannaborg í Evrópu og kemur þar ýmislegt til. Auðvelt er að komast þangað, flugvöllurinn stór og al- þjóðlegur og flugmiðar ekki mjög dýrir. Svo er Barcelona borg menn- ingar og lista, iðandi mannlífs og óvenjulegra bygginga. Það er ekk- ert mál að eyða heilli viku í það að rölta um Barcelona með öll skiln- ingarvit á útopnu. • Það er til dæmis gaman að ráfa um ranghala gamla bæjarins í kringum Römbluna, aðalgötuna í Barcelona. Þar er alltaf eitthvað að gerast og frábær kaffihús þar sem hægt er að tylla sér og fá sér einn kaldan bjór eða kaffi og „churros“, dísæta spænska kleinuhringi. Namm! • Líka er nauðsynlegt að skoða eitt furðulegasta og stórkostlegasta byggingalistaverk allra tíma, kirkj- una Sagrada Familia eftir Gaudi, einn merkasta listamann allra tíma, sem hefur verið í byggingu í hundrað ár og verður sennilega aldrei alveg lokið. Þetta mannvirki þarf að berja eigin augum til að trúa að það sé til. • Mánudaga, miðvikudaga, föstu- daga og laugardaga er frábær flóa- markaður við Placa de les Glories Catalanes þar sem dýrgripir bíða þeirra sem hafa auga fyrir þeim. • Gangið um hinn óviðjafnanlega Guell-garð eftir Gaudi þar sem furðuleg listaverk og sérstakur landslagsarkítektur skapa saman óviðjafnanlegt ævintýraland. Tónleikaferðalag Hrólfs og félaga í Stingandi strá minnti um margt á kvikmyndina Spinal Tap. Byggingar eftir Gaudi setja mark sitt á borgina, eins og Casa Mila-íbúðarhúsið. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Lífsaugað Þriðjudagskvöld 22-24 32-33 (04-05) Ferðir 18.5.2005 17.11 Page 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.