Fréttablaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 16
S áttaumleitanir mátti greinaí setningarræðu ÖssurarSkarphéðinssonar, for- manns Samfylkingarinnar, við upphaf Landsfundar flokksins í gær. „Á þessum fundi snúum við bökum saman, á þessum fundi er lokið harðri baráttu um forystu í hreyfingunni og á þessum fundi tökum við þeirri niðurstöðu sem fengin er í atkvæðagreiðslu allra flokksmanna. Á þessum fundi leggjum við niður allar deilur, hvort sem við höfum komið hing- að sem liðsmenn Össurar eða Ingibjargar,“ sagði hann í upphafi ræðu sinnar. Hann rifjaði upp sundrungina sem einkennt hefur vinstri væng- inn í stjórnmálunum og sagði hana hafa dregið úr afli og áhrif- um þeirra flokka sem Samfylk- ingin á rætur sínar til. „Samstað- an er það afl sem ekkert fær stað- ist,“ sagði Össur. Ekki sár til langframa Hann sagði að kosningabaráttan í formannskjörinu hafi ekki vakið upp svo harkalegar deilur að þær skilji eftir sár til langframa. „Flokkadrættir hafa fráleitt verið slíkir að úr þeim geti ekki fljót- lega jafnast. Lokaáhrifin velta hins vegar nokkuð á okkur sem vorum í framboði. Það er ákaflega brýnt að sá okkar frambjóðend- anna sem ber sigur úr býtum kappkosti að verða formaður allr- ar Samfylkingarinnar,“ sagði Öss- ur. Hann sagði að flokkurinn og málstaður flokksmanna væri mik- ilvægari en persónuleg völd og vegsemd. „Skilaboð okkar til þjóðarinnar af þessum fundi eiga því að vera um samstöðu, eindrægni, sam- heldni. Hvernig sem fer mun ég leggja mig allan fram til að tryggja það og ég veit að sama gildir um Ingibjörgi Sólrúnu,“ sagði Össur og var þessum orðum hans fagnað með lófataki lands- fundarfulltrúa. Vantaði herslumuninn Össur sagði að Samfylkingin úti- lokaði ekki samstarf í ríkisstjórn við neinn núverandi stjórnmála- flokk en Samfylkingin hljóti hins vegar að stefna að því í næstu þing- kosningum að fella ríkisstjórnina sem þá hafi setið í tólf ár. Hann sagði að ekki hafi vantað nema herslumuninn til þess að ríkisstjórnin væri felld í síðustu kosningum. „Það var skrumskæl- ing á lýðræðinu að hrossakaup stjórnarflokkanna urðu til þess að augljós breytingavilji þjóðarinnar var hundsaður og ríkisstjórnin haltraði áfram,“ sagði Össur. Hann sagði að Samfylkingin ætlaði sér meira en að vera næst- stærsti flokkurinn. „Við ætlum okkur að verða ráðandi afl. Við ætlum okkur að verða stærsti flokkurinn í næstu kosningum Þessi fundur er upphafið að því,“ sagði Össur og var enn fagnað með lófataki. Samfylkingin engin skyndibóla Þá sagði Össur að andstæðingar Samfylkingarinnar hefðu lengi vel afskrifað flokkinn sem tíma- bundna bólu sem myndi hjaðna. „Bæði til hægri og vinstri biðu menn eftir því að þær systur sundrung og ósætti tækju völdin í okkar liði. En það hefur ekki gerst og það mun ekki gerast. Samfylk- ingin er engin skyndibóla. Sú kenning er fallin,“ sagði Össur. Hann sagði að tímabilið fram að næstu þingkosningum gæti reynst eitt hið mikilvægasta í stuttri sögu flokksins. Tvenns konar verkefni bíði forystumanna flokksins, annars vegar að styrkja innviði flokksins og hins vegar að ná góðum árangri í sveitarstjórn- arkosningunum 2006 og í þing- kosningunum 2007. Norræna módelið fyrirmynd Össur benti á að alþjóðlegir mæli- kvarðar sýni Norðurlöndin alls staðar í toppi. Einu gildi hvort lit- ið sé til tekna á mann, framleiðni í atvinnulífi, heilsufars, lýðræðis, samkeppnishæfni, umhverfisgát- ar eða heiðarleika í stjórnmálum og viðskiptum. Hann sagði það enga tilviljun. Norðurlöndunum hafi tekist betur en öðrum að ná hinu vandfundna jafnvægi milli samkeppni og samvinnu, milli gróðasjónarmiða og félagslegs öryggis, milli kapítalisma og sósí- alisma. „Það er sérlega athyglisvert, ekki síst fyrir okkur jafnaðar- menn, að meðan norræna módel- ið nýtur vaxandi athygli og virð- ingar á alþjóðavettvangi er æ minna talað um bandaríska frjálshyggjumódelið, sem hefur mjög smitað inn í áherslur núver- andi ríkisstjórnar. Áhersla bandaríska módelsins á síngirni, hámarksgróða, markaðstrú, rík- isfjandskap og skattleysi stenst ekki dóm reynslunnar,” sagði Össur. Hann sagði að norræna módel- ið væri skilgetið afkvæmi jafnað- arflokkanna og verkalýðshreyf- ingarinnar á Norðurlöndunum. Það spinni úr þráðum hinna gömlu og góðu gilda klassískrar jafnaðarstefnu nýjar lausnir á nýjum vandamálum þar sem samábyrgð og félagslegt velferð- arnet ýti undir skapandi afl ein- staklingsins. Fimm meginmarkmið Össur sagði að vöxt þjóðartekna á næstu árum ætti að nýta til þess að ná fram fimm megin- markmiðum sem byggja eigi upp í anda jafnaðarstefnunnar og norræna módelsins. Þau séu í fyrsta lagi efling velferðarþjón- ustunnar, þar sem sérstök áhersla verði lögð á að útrýma launamisrétti í samfélaginu. Í öðru lagi stórefling á fjárfest- ingu í menntun og heilbrigði. Í þriðja lagi leiðrétting á hlut sveitarfélaganna og undirbún- ingur að frekari tilfærslu á verk- efnum til þeirra. Í fjórða lagi að búa frumkvöðlum, sprotafyrir- tækjum, smáfyrirtækjum og ein- yrkjum skilyrði eins og best þekkjast í heiminum og í fimmta lagi umsköpun samfélagsins í sátt við landið okkar til þess að bregðast við yfirvofandi um- hverfisvá. Hann sagði að vissulega ríkti velsæld á Íslandi. „En við höfum vaxandi áhyggjur af því hve margir verða útundan í velsæld- inni á Íslandi,“ sagði Össur. Hann sagði að láglaunafólk, aldraðir og öryrkjar hafi dregist aftur úr í kjörum á valdatíma núverandi ríkisstjórnar miðað við aðra hópa í samfélaginu. „Við höfum mótað tillögur um hvernig bæta eigi úr því,“ sagði hann. Erum á réttri leið Að lokum hvatti hann landsfund- arfulltrúa til að vinna vel og vera virk á þessum þriðja landsfundi Samfylkingarinnar. „Við erum á réttri leið og við skulum ekki láta persónukjör hér á fundinum trufla um of þau mikilvægu verk sem hér þarf að vinna. Höfum það hugfast að við eigum innan skamms brýnt erindi við kjós- endur. Við erum hér á næstu þremur dögum að leggja drögin að komandi sigrum. Það eru mál- efnin, sannfæringin og samstað- an sem munu færa okkur sigr- ana,“ sagði Össur. „Sýnum samstöðu og ein- drægni. Það eru mín helstu skila- boð til ykkar í upphafi þessarar sögulegu samkomu íslenskra jafnaðarmanna,“ sagði hann að lokum og var fagnað með stand- andi lófataki. ■ MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS Birta er komin út Blaðauki um snyrtivörur Hvað er í kremunum? Förðunin í sumar Persónuleikapróf og stjörnuspá Öflugasta sjónvarpsdagskrá landsins Herdís Þorgeirsdó ttir prófessor ræðir um hugsjón ir og mannréttind i Leggjum niður allar deilur ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON FORMAÐUR SAM- FYLKINGARINNAR Á LANDSFUNDI Í GÆR „Á þessum fundi leggjum við niður allar deilur, hvort sem við höfum komið hingað sem liðsmenn Öss- urar eða Ingibjargar,“ sagði Össur í setningarræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar í gær. SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR Á VETTVANGI SETNINGARRÆÐA ÖSSURAR SKARPHÉÐINSSONAR Á LANDSFUNDI SAMFYLKINGARINNAR Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingarinnar, talaði fyrir sáttum fylk- inga innan flokksins að loknum formanns- slagnum. Tímabilið fram að næstu kosn- ingum verði hið mikilvægasta í sögu flokksins. Flokkurinn ætli sér að verða stærsti flokkurinn í næstu kosningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.