Fréttablaðið - 23.05.2005, Page 12

Fréttablaðið - 23.05.2005, Page 12
12 23. maí 2005 MÁNUDAGUR KRAFTVÉLAR EHF. · Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3509 · www.kraftvelar.is Sterkur leikur Nánari uppl‡singar á www.komatsu.is Fyrstir til a› tryggja kaupendum fast endursöluver› Hvert áfallið á fætur öðru – hefur þú séð DV í dag? Össur missti móður sína klukkutíma eftir að hann tapaði í formannskjöri SVONA ERUM VIÐ Fréttablaðið greindi frá því fyrir fjórum árum að Kópavogsbær væri að skoða þann möguleika að steypa þær götur sem tíu þúsund bílar eða fleiri aka um á degi hverjum. Það ár var lokið við að steypa breikkun Fífuhvammsvegar og Smárahvammsvegar. Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, sagði þá að þrátt fyrir meiri stofnkostnað miðað við malbik borg- aði það sig upp á áratug en ekki þurfi að gera við steyptan veg í fimmtán ár eða lengur. „Við erum búin að steypa töluvert mikið af götum og nú er að sjá hvern- ig þessu reiðir af,“ segir Gunnar en einhver hluti gatna, með tíu þúsund bíla umferðarþunga á dag, er malbik- aður til samanburðar. „Þetta er tilraun í fullri stærð,“ segir Gunnar, en um sex ár eru síðan byrjað var að steypa göt- ur í Kópavogi. Hefur slitlagið haldið sér vel en nokkrar skemmdir hafa að sögn Gunnars komið í götur vegna lélegs undirlags. Hann gerir ráð fyrir að eftir fimm ár verði komin reynsla á hvort sé hentugra, steypa eða malbik. Fyrir fjórum árum voru ein rökin fyrir steyptum götum þau að kostnaður við malbikun myndi hækka samfara hækkun olíuverðs. Gunnar segir að í dag sé orðið enn hagstæðara að steypa götur vegna þess. Ennflá hagstæ›ara í dag EFTIRMÁL: KÓPAVOGUR STEYPIR GÖTUR Golfi› hefur aldrei veri› vinsælla Um 30 þúsund Íslendingar stunda golf á hverju sumri og áhuginn eykst dag frá degi. Biðlistar í golfklúbba lengjast stöðugt og virðist sem gripið hafi um sig hálf- gert golfbrjálæði. Síðustu ár hefur áhuginn á golf- íþróttinni aukist gríðarlega. Þannig eru skráðir golfklúbbs- meðlimir orðnir 13.000 á lands- vísu og fer ört fjölgandi. Golfvell- ir eru úti um allt land, og eru þeir nú orðnir 60 talsins, sem gerir um einn golfvöll á hverja 5.000 íbúa á landinu. Hörður Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Golfsambands Ís- lands, segir fjölda golfvalla á landinu staðfesta þann mikla upp- gang sem átt hafi sér stað innan golfhreyfingarinnar síðustu ár. „Þrátt fyrir þennan fjölda er mikil þörf fyrir fleiri golfvelli, sérstaklega hér á höfuðborgar- svæðinu, þar sem biðlistar eftir því að komast í golfklúbba eru mjög langir,“ segir Hörður en leggur jafnframt áherslu á það að klúbbar í grennd við höfuðborg- arsvæðið geti tekið á móti fleiri félögum. Hinrik Gunnar Hilmarsson, þjónustustjóri Golfsambands Ís- lands, segir aukinn áhuga á golf- inu mega meðal annars rekja til stjórstjörnunnar Tiger Woods. „Tilkoma hans fram á sjónarsvið- ið fyrir nokkrum árum hafði gríð- arleg áhrif á golfið og það virðist sem hann hafi komið af stað mikilli vinsældabylgju sem ekki sér enn fyrir endann á, sem betur fer,“ segir Hinrik og nefnir að um 30.000 Íslendingar spili golf fimm sinnum eða oftar yfir sumartím- ann, sem sé ótrúlega há tala. Golfvertíðin fer annars vel af stað, þótt vellir mættu koma betur undan vetri. „Vellirnir eru ekki eins góðir og oft áður, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki gott að segja af hverju þetta er,“ segir Hinrik en tekur jafn- framt fram að vallarstjórar vinni gríðarlega gott starf. „Menntun vallarstjóra er komin í gott horf núna og er óhætt að segja að vall- arstjórar séu að vinna frábært starf við viðhald á völlunum, við nokkuð erfiðar aðstæður sem eru hér á Íslandi.“ Hinrik skorar á byrjendur að nýta sér frábæra aðstöðu til æf- inga sem nú hefur verið komið upp í Grafarholtinu og segir aldrei of seint að byrja. „Þetta er íþrótt fyrir alla fjölskylduna og ég skora á alla þá sem ekki hafa kynnt sér íþróttina að gera það, því þetta er íþrótt sem getur fylgt manni í gegnum allt lífið,“ segir Hinrik að lokum. ■ Í fyrra voru innfluttar vörur frá Kína 0,5 prósent af heildarinnflutningi Íslendinga. HEIMILD: HAGSTOFAN GUNNAR BIRGIS- SON Segir steyptu göturnar endast vel. HINRIK GUNNAR HILMARSSON Þjónustustjóri Golfsambands Íslands segist vel geta hugsað sér að spila meira golf, en hann reynir að halda sér við með því að pútta reglu- lega á skrifstofunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.