Fréttablaðið - 25.05.2005, Page 31
Með því að láta Póstinn sjá um
allan pakkann sparar þú rekstrar-
kostnað. Pósturinn kemur á
fyrirfram ákveðnum tíma, tekur
allar sendingar og skilar þeim
fljótt og örugglega til viðtakenda.
Hafðu samband við sölufulltrúa
í síma 580-1090 eða í netfangið
solufulltruar@postur.is og fáðu
nánari upplýsingar.
www.postur.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
78
64
03
/2
00
5
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2005 7
Ú T L Ö N D
United í verðsamráði
Tíu breskum íþróttafyrirtækjum gert að greiða
bætur eftir að upp komst um verðsamráð.
Samkeppnisyfirvöld í Bretlandi
hafa sektað knattspyrnufélagið
fornfræga Manchester United,
auk fjölda íþróttafyrirtækja,
fyrir að hafa haft verðsamráð um
sölu á keppnistreyjum.
Alls voru tíu aðilar sektaðir,
þar á meðal enska knattspyrnu-
sambandið, íþróttavörufram-
leiðandinn Umbro og íþrótta-
vörukeðjan JJB Sport. Fleiri
félög, á borð við stórveldin
Chelsea og Glasgow Celtic, voru
talin hafa óhreint mjöl í poka-
horninu, en sluppu með ávítur.
Sektirnar hljóðuðu samtals
upp á tvo milljarða króna.
Manchester United var gert að
greiða um 170 milljónir.
Sala á keppnistreyjum færir
félögunum umtalsverðar tekjur í
kassann og nýta þau tækifærið
með því að láta hanna nýjar
treyjur nánast á hverju ári.
Það voru þó ekki tíð skipti á
búningum eða margir varabún-
ingar sem fóru fyrir brjóstið á
samkeppnisyfirvöldum, heldur
það að samráð skyldi haft um
verð.
Síðan rannsóknin hófst árið
2000 hefur verð á treyjum lækk-
að um allt að 40 prósent. - jsk
FYRIRLIÐINN FAGNAR Roy Keane fær
sinn búning ókeypis.
Martin gagnrýnir stórfyrirtæki
Chris Martin, söngvari
bresku Íslandsvinanna í
Coldplay, gagnrýndi á
dögunum útgáfufyrir-
tæki sveitarinnar, EMI,
og hluthafa þess.
Martin sagði fyrirtæk-
ið setja of mikinn þrýst-
ing á Coldplay um að
klára nýju plötuna sem
væntanleg er í sumar, en
fyrirtækið hafði kvartað
undan því að kostnaður við plöt-
una ryki upp úr öllu valdi vegna
sífelldra frestana.
Martin telur stórfyrirtæki og
hluthafa þeirra hreinlega ill og að
þau séu ein stærsta hættan sem
steðji að heiminum í dag.
Hljómsveitin taki sér þann
tíma sem til þurfi og muni
ekkert senda frá sér fyrr
en hún sé fullkomlega sátt
við það.
,,Mér er alveg sama
hvað þeim hjá EMI finnst.
Það er nú hálf undarlegt að
eyða átján mánuðum í upp-
tökuveri og uppgötva svo
seint og um síðir að maður
er bara þræll einhvers stórfyrir-
tækis,“ sagði hann hundfúll.
Sveitin hefur áður sent frá sér
tvær plötur en nýja platan, sem
hlotið hefur nafnið X & Y, verður
sú fyrsta í þrjú ár. - jsk
CHRIS MARTIN
SÖNGVARI COLD-
PLAY Segir stór-
fyrirtæki og hluthafa
eitt stærsta vanda-
mál samtímans.
Evrópusambandið hefur gefið
forsvarsmönnum Microsoft-
tölvurisans frest til maíloka til að
uppfylla kröfur sambandsins um
bætta viðskiptahætti, að öðrum
kosti verði þeim gert að greiða
allt að 350 milljónir króna í sekt-
ir á dag.
Microsoft er gefið að sök að
hafa brotið samkeppnislög og
hefur Evrópusambandið farið
þess á leit við fyrirtækið að það
skili skýrslu um hvernig það
hyggist bæta ráð sitt:
,,Það er langt síðan við náðum
samkomulagi um hvernig ætti að
leysa málið. Nú erum við bara að
bíða eftir því að Microsoft vinni
heimavinnuna sína“, sagði Neelie
Kroes, forstöðumaður sam-
keppnismála innan Evrópusam-
bandsins. - jsk
Tekjur easyJet jukust á síðustu
sex mánuðum um 26 prósent frá
fyrra ári. Tekjur félagsins námu
553 milljónum punda fyrir skatta
eða 65 milljörðum króna.
Tap af rekstri fyrirtækisins á
sama tíma var 31 milljón punda
eða 3,7 milljarðar króna og jókst
milli ára.
Farþegum félagsins fjölgaði
um 25 prósent á tímabilinu og á
sama tíma batnaði sætanýting.
Í tilkynningu frá félaginu
kemur fram að vegna olíuverðs
og gengis sé áfram gert ráð fyrir
að hagnaður félagins verði minni
en í fyrra en í takt við væntingar.
Gengi hlutabréfa í easyJet
lækkuðu nokkuð í gær eftir að
sex mánaða uppgjör félagsins til
31. mars var tilkynnt.
FL Group á 10 prósent hlut í
easyJet og keypti félagið hlutinn
undir lok síðasta árs á í kringum
7,5 milljarða. Síðan hefur gengi
félagsins hækkað um 50 prósent
og hefur því félagið hagnast um
hátt í fjóra milljarða á fjárfest-
ingu sinni. - dh
Farþegum fjölgar en tap eykst
Stjórnendur easyJet gera ráð fyrir hagnaði á árinu.
Microsoft í vondum málum