Fréttablaðið - 25.05.2005, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2005 MARKAÐURINN20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Heilsan
ræktuð með
hjólreiðum
Liðsmenn Hjólað í
vinnuna voru yfir fimm
þúsund í ár og tvöfald-
aðist þátttakan á milli
ára. 488 lið tóku þátt í
Hjólað í vinnuna, frá
254 vinnustöðum í 34
sveitarfélögum.
Ellert B. Schram, forseti Í-
þrótta- og Ólympíusambands
Íslands, Bjarni Ármannsson,
forstjóri Íslandsbanka, og
Steinunn Hlíf Sigurðardóttir,
markaðsstjóri Sjóvá, fluttu
stutt ávörp á verðlaunaafhend-
ingunni og veittu liðsstjórum
sigurliða verðlaun.
Tólf starfsmenn Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Siglufirði
gerðu sér lítið fyrir og hjóluðu
á verðlaunaafhendinguna en
liðið hlaut annað sætið fyrir
flesta hjólaða daga í flokknum
70-149 starfsmenn.
Þátttakan var nokkuð góð en
kalt veður í byrjun maí hefur
eflaust sett strik í reikninginn
hjá mörgum kappsfullum þátt-
takendum. - dh
Þú þarft ekki tölvudeild
Þú færð fulla þjónustu hjá ANZA
Rekstur ANZA er í samræmi við vottað öryggiskerfi sem byggist á staðlinum ISO 17799 um stjórnun upplýsingaöryggis.
Hornsteinn ANZA er starfsfólk með framúrskarandi þekkingu og hæfni.
ANZA · Ármúla 31 · 108 Reykjavík · Sími 522 5000 · Fax 522 5099 · www.anza.is
ANZA sér um öll tölvumál fyrir fjölda íslenskra
fyrirtækja. Það er sérgrein okkar.
ANZA sér um tölvukerfið þitt, allan sólarhringinn,
alla daga ársins. ANZA fer aldrei í sumarfrí og er
aldrei fjarverandi vegna veikinda.
Kynntu þér málið með því að hafa samband við
ANZA í síma 522 5000 eða anza@anza.is
AR
GU
S
- 0
5-
03
22
NÝSKÖPUN
Vara sem kominn er á innanlandsmarkað,
upplögð kaup fyrir fólk sem hefur áhuga á
nýsköpun, tilvalið til flutnings út á land.
SÖLUSKRÁ HÚSSINS ER Á VEF WWW.HUSID.IS
Salómon Jónsson • Löggiltur fasteignasali
Ingvaldur Mar Ingvaldsson viðskiptafræðingur
FRÁ VERÐLAUNAAFHENDINGU HJÓLAÐ Í VINNUNA Tólf starfsmenn Heilbrigðisstofnunarinnar á Siglufirði gerðu sér lítið fyrir og hjól-
uðu á verðlaunaafhendinguna.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ar
i
Einkennislag
Hjólað í vinnuna
Það er hressandi að hjóla í vinnu,
hreyfa skrokkinn og liðka í senn.
Og í buddunni bata þú finnur
því að bensínið hækkar víst enn.
Fyrir umhverfið umhyggju berðu
og þinn útblástur skaðar ei neitt.
Allt í nærmynd í náttúru sérðu
og nýtur lífsins, já alveg út í eitt.
Þó á hjóli þú ferðist í friði
framtakssemin á Netið er skráð,
því að nú er sko Ísland á iði,
út og suður er baráttan háð.
Hvort sem liðið þitt sigurinn sækir
er að sjálfsögðu ágóðinn vís.
Þú með hjólreiðum heilsuna rækir,
og hlýtur veglegan lífstíðarprís.
Lag: Undir bláhimni.
Texti: Unnur Halldórsdóttir
ÞÁTTTAKENDUR Í HJÓLAÐ Í VINNUNA Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri í
Reykjavík og Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó BS tóku þátt í hjólaátakinu af krafti.