Fréttablaðið - 25.05.2005, Qupperneq 58
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Miðvikudagur
MAÍ
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn.
07.30 Olíssport á Sýn.
08.00 Olíssport á Sýn.
08.30 Olíssport á Sýn.
14.10 Úrslitakeppni NBA á Sýn.
Endursýndur leikur.
18.00 Liverpool – AC Milan á Sýn.
Bein útsending frá úrslitaleik
meistaradeildarinnar.
21.00 Tiger Woods á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.20 Formúlukvöld á RÚV.
23.15 Liverpool – AC Milan á Sýn.
Útsending frá úrslitaleiknum í
meistaradeildinni.
Reynsla á móti hungri
22 25. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Það verður gaman að sjá ...
... hvernig KSÍ tekur á ærumeiðandi
ummælum Ólafs Þórðarsonar í garð
dómarans Garðars Arnar Hinrikssonar.
Ólafur réðst harkalega að Garðari í gær
án þess að hafa nokkuð
til að styðja sitt mál og
verður það að teljast
ansi vafasöm hegðun
sem KSÍ hlýtur að
líta alvarlegum
augum.
sport@frettabladid.is
> Við fögnum ...
... því að dómarar í Landsbankadeildinni
taki virkan þátt í umræðunni. Þeir
eru stór hluti leiksins og eiga að
útskýra sitt mál þegar svo ber við.
Þeir koma oftast vel út úr slíkri
umræðu enda þora þeir flestir að
viðurkenna mistök sín. Það er líka
nauðsynlegt að fá þeirra sýn á
mörg stórmál. Vonandi verður
framhald á þessu.
Heyrst hefur...
... að körfuboltalið KR kynni til leiks
tvo nýja leikmenn í dag. Fastlega er
búist við því að annar þessara
leikmanna sé landsliðsmaðurinn
Pálmi Freyr Sigurgeirsson sem lék
með Snæfelli á síðustu leiktíð.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna í
Landsbankadeildinni, segir knatt-
spyrnudómarann Garðar Örn Hin-
riksson mæta hlutdrægan til leikja
með ÍA og sakar hann um að
hata ákveðna menn liðsins.
„Garðar hefur sagt að hann hati
ákveðna leikmenn ÍA. Það eru
nánar heimildir sem ég hef fyrir
þessu og þetta er saga sem er
búin að ganga á Akranesi í heilt
ár,“ segir Ólafur, án þess að vilja
nokkuð fara út í hvaðan hann
hefur þessar heimildir eða
hvaða leikmenn það eru sem
Garðar Örn á að hata. Garðar
Örn var dómari í leik Vals og
ÍA á mánudagskvöldið og
dæmdi þar meðal annars
vítaspyrnu á Skagamenn – dómur
sem Ólafur var allt annað en
ánægður með. „Garðar er ágætur
dómari en honum urðu á mistök í
leiknum gegn Val sem ég var
mjög ósáttur við.“
„Fásinna,“ var orðið sem Garðar
Örn notaði þegar Fréttablaðið innti
hann eftir svörum við ásökunum
Ólafs. Garðar Örn kom algjörlega af
fjöllum og kvaðst hafa orðið reiður
þegar honum bárust ummælin til
eyrna. „En reiðin rann nú fljótlega
af mér og nú er ég aðallega sár yfir
því að Ólafur skuli halda þessu
fram, án þess að fara nánar út í
það. Hann segir ekkert hvaðan hann
hefur þetta og mér finnst það kjána-
legt og barnalegt að Ólafur skuli
láta hafa þetta eftir sér. Ég vísa þessu
algjörlega á bug,“ segir Garðar Örn.
Þrátt fyrir að dómarinn sjálfur neiti
þessum ummælum staðfastlega hagg-
ast Ólafur hvergi og segist hann standa
við hvert orð. „Það sem ég vill benda á
er að þegar dómarinn gengur til vallar
þá eiga allir leikmenn að vera
jafnir fyrir honum.
Ég stend
ennþá í
þeirri
mein-
ingu að
það sé
rétt sem ég
er að segja.
Það er alveg á
hreinu.“
Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram í Istanbúl í kvöld en flá mætast
tvö af sigursælustu li›um Evrópu fyrr og sí›ar, AC Milan og Liverpool.
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON, ÞJÁLFARI ÍA: EKKI SÁTTUR MEÐ DÓMARANN GARÐAR ÖRN HINRIKSSON
FÓTBOLTI. Í kvöld er einn af há-
punktum knattspyrnuvertíðarinn-
ar þegar Liverpool og AC Milan
mætast í úrslitaleik Meistara-
deildar Evrópu. Milan varð síðast
Evrópumeistari fyrir tveimur
árum og hefur á að skipa gríðar-
lega reyndu liði, á meðan enska
liðið hefur ekki sigrað í keppninni
í 21 ár.
Carlo Ancelotti, þjálfari ítalska
liðsins, segir að reynt lið sitt geti
náð að brjóta skipulagða vörn
Liverpool á bak aftur og hefur
ekki áhyggjur af að slakt gengi
sinna manna í deildinni á Ítalíu í
síðustu leikjum sitji í liðinu þegar
í úrslitaleikinn er komið.
„Leikur Liverpool gengur út á
að hindra það að mótherjar þeirra
geti athafnað sig á þeim svæðum
sem þeir kjósa helst og þeir hafa
gert það vel alla keppnina. Ef við
hins vegar skorum snemma mun-
um við neyða þá til að falla frá
þeirri leikaðferð og sækja á okk-
ur. Það myndi opna leikinn og það
hentar okkur mun betur,“ sagði
Ancelotti.
Rafael Benitez, stjóri Liver-
pool, segir að sínir menn séu
hvergi smeykir við Milan. „Þeir
eru með mjög sterkt lið og mikla
reynslu, en við höfum hungrið
umfram þá og það mun tryggja
okkur sigurinn. Við þurfum bara
að passa að njóta dagsins, því við
höfum engu að tapa og allt að
vinna í þessum leik,“ sagði sá
spænski. baldur@frettabladid.is
MIG LANGAR Í ÞIG Þetta gæti Sami Hyypia, fyrirliði Liverpool, verið að hugsa er hann
horfir girndaraugum á bikarinn eftirsótta. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Hann hatar ákve›na leikmenn ÍA
GÓÐAR Anna Úrsúla Guðmundsdótttir og
Berglind Íris Hansdóttir í markinu voru
lykilmenn í vörninni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
MEÐ Á NÝ Kvennalandsliðið hefur endur-
heimt fyrirliðann sinn, Ásthildi Helgadóttur.
Landsliðsþjálfari Hollands:
Hældi Íslandi
FÓTBOLTI. Íslenska kvennalandsliðið
í handbolta tapaði þriðja vináttu-
landsleiknum gegn Hollandi með 3
mörkum, 23–26, í Garðabæ í gær.
Íslenska liðið stríddi gestinum þó í
leiknum, komst í 6–1 og náði að
jafna leikinn í 19–19 eftir að hafa
unnið 8 mínútna kafla 6–2.
Hollenska liðið hafði þó betur á
endanum og vann sinn þriðja leik á
þremur dögum en naumt þó.
„Þetta voru mjög góðir leikir
fyrir okkur því að íslenska liðið
lagði sig mikið fram, gafst aldrei
upp og sá til þess að þetta voru þrír
erfiðir og nytsamir leikir fyrir
mínar stelpur. Íslenska liðið er
ungt, það býr margt í þessu liði og
það getur orðið sterkara á næstu
árum,“ sagði Sjors Röttger, þjálf-
ari hollenska landsliðsins, og var
mjög sáttur með ferðina.
„Við höfum fengið lof erlendis
og við erum komin nálægt bestu
liðinum en við viljum komast nær.
Í kvöld spiluðum við góðan
varnarleik og Berglind var frábær
í markinu en það vantaði bara
meiri skynsemi í sóknina,“ sagði
Stefán Arnarson, þjálfari íslenska
liðsins. Berglind Íris Hansdóttir
átti stórleik og varði 22 skot en
Hanna Guðrún Stefánsdóttir var
markahæst með 5 mörk og
Hrafnhildur Skúladóttir bætti við
fjórum mörkum. -óój
Ásthildur Helgadóttir:
Byrjar frammi
FÓTBOLTI. Íslenska kvennalands-
liðið í knattspyrnu mætir því
skoska í vináttuleik í Skotlandi í
dag klukkan 18.30 en þetta verður
fyrsti landsleikur fyrirliðans
Ásthildar Helgadóttur síðan hún
sleit krossbönd. Jörundur Áki
Sveinsson stjórnar liðinu í fyrsta
sinn síðan 2003 og ætlar að setja
Ásthildi í framlínuna við hlið
Margrétar Láru Viðarsdóttur en
Ásthildur hefur jafnan spilað á
miðjunni með landsliðinu. -óój