Fréttablaðið - 26.05.2005, Blaðsíða 27
Á húsnæðisláni eða yfirdrætti
Ef einhverjir héldu að með nýjum húsnæðis-
möguleikum og endurfjármögnun óhagstæðra
lána myndu Íslendingar ná stjórn á fjármálum
sínum, þá var það
misskilningur. Yfir-
drátturinn sem þurrk-
aður var út með end-
urfjármögnun hús-
næðislána er aftur
kominn í fyrra horf og
landinn lifir sem fyrr
um efni fram.
Á sama tíma eru bílar
auglýstir sem aldrei
fyrr og seljast vel og
var þó bílaeign á fólk á bílprófsaldri með því
hæsta sem gerist í heiminum. Þar sem fleiri en
einn bíll er á heimili hljómar nú: „Ég ætla að
skreppa á bílnum. Hvort á ég að fara á hús-
næðisláninu eða yfirdrættinum?“
KB banki orðaður við kaup
Hlutabréf í verðbréfamiðlunarfyrirtækinu WH
Ireland tóku stökk eftir að 8,17 prósenta hlutur
skipti um hendur. Grunur var á breska mark-
aðnum um að keppi-
nautur félagsins,
Charles Stanley, væri á
bak við kaupin. Næst-
ur á lista grunaðra var
svo Kaupþing banki,
en bankinn leitar að
verðbréfafyrirtæki til
þess að styrkja þann
þátt starfseminnar í
London.
WH Ireland er sjálf-
stætt miðlunarfyrirtæki og á að baki 150 ára
sögu í Manchester. Slíkum fyrirtækjum hefur
farið fækkandi. Teather and Greenwood var
keypt af Landsbankanum og ekki ólíklegt að KB
banki bæti einu slíku í safnið sitt fljótlega.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.008*
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 139
Velta: 2.158 milljónir
-0,11%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvar-
innar var haldinn í gær. Páll Þór
Magnússon og Kjartan Broddi
Bragason voru kjörnir nýir í stjórn. Þau
Geir Zoega, Guðbjörg M. Matthías-
dóttir og Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson voru endurkjörin.
Ragnar Marteinsson lætur af störf-
um sem framkvæmdastjóri Teymis í
lok mánaðarins. Við starfinu tekur Sig-
þór Samúelsson, sem hefur verið
framkvæmdastjóri félagsins.
Hlutabréf í Japan lækkuðu í gær.
Nikkei-vísitalan féll um 1,07 prósent í
Tókíó.
Verð á sjávarafurðum á heimsmark-
aði lækkaði um 0,8 prósent milli mars
og apríl. Áður hafði verðið hækkað
átta mánuði í röð. Greint var frá þessu
í Morgunkorni Íslandsbanka.
26 26. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Gjöld FL Group aukast
meira en tekjur félagsins
fyrstu þrjá mánuði ársins.
FL Group stefnir að því að
selja þrjár Boeing 757 flug-
vélar og leigja þær aftur.
Verðmæti þeirra er rúm-
lega þrír milljarðar króna.
Hagnaður FL Group nam 25 millj-
ónum króna fyrstu þrjá mánuði árs-
ins og var yfir væntingum meðal-
talsspá bankanna, sem gerði ráð
fyrir neikvæðri afkomu að upphæð
193 milljónir króna. Í tilkynningu
frá félaginu segir að þetta sé næst-
besta afkoman á þessum ársfjórð-
ungi í sögu félagsins. Bæði velta
félagsins og rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði er minni
en spár bankanna gerðu ráð fyrir.
Hagnaður af fjárfestingarstarf-
semi FL Group var 1,8 milljarðar
króna á fyrsta ársfjórðungi og
vega bréf félagsins í easyJet þar
þyngst. Gengishagnaður félagsins
af easyJet er orðinn meiri en millj-
arður á yfirstandandi ársfjórðungi.
Velta félagsins jókst um rúm-
lega sjö prósent á ársfjórðungnum
frá fyrra ári og voru rekstrartekj-
ur tæpir átta milljarðar króna.
Veltuaukningin er fyrst og fremst
tilkomin vegna aukningar í far-
þegaflugi Icelandair og starfsemi
Ferðaskrifstofu Íslands.
Rekstrargjöld jukust um tæp 11
prósent milli ára og orsakast fyrst
og fremst af hærri launakostnaði
og hærri eldsneytiskostnaði.
Rekstrargjöld félagsins námu tæp-
um níu milljörðum króna. Rekstr-
artap fyrir fjármagnsliði nam tæp-
um 1,6 milljörðum króna.
Flugvélakaup FL Group á fyrsta
ársfjórðungi breyta efnahags-
reikningi félagsins mikið og námu
eignir félagsins 61 milljarði króna í
lok mars. Áhrif af þessum kaupum
eru ekki komin inn í rekstrarreikn-
ing félagsins að neinu marki.
Handbært fé frá rekstri var 1,4
milljarðar króna á fyrstu þremur
mánuðum ársins og er handbært fé
í lok tímabilsins 9,3 milljarðar
króna. Að auki átti félagið mark-
aðsverðbréf fyrir tæpa 13 millj-
arða króna.
FL Group stefnir að því að selja
fjórar 757 Boeing flugvélar til fé-
laga sem verða að hluta til í eigu fé-
lagsins sjálfs. Þrjár af fjórum
verða svo leigðar aftur til FL
Group. Ragnhildur Geirsdóttir, for-
stjóri FL Group, segir söluna þó
ekki fullfrágengna. Ráðgert er að
selja þrjár eldri flugvélar sem nú
þegar eru í eigu FL Group og að ein
vél verði keypt til viðbótar. Vélarn-
ar eru metnar á rúma þrjá millj-
arða í efnahagsreikningi félagsins.
dogg@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 42,50 -1,16% ... Atorka 5,96 -
0,67% ... Bakkavör 33,80 -0,59% ... Burðarás 14,00 -0,71% ... FL Group
14,40 +0,70% ... Flaga 5,00 – ... Íslandsbanki 13,15 – ... KB banki
523,00 +0,19% ... Kögun 61,70 -0,16% ... Landsbankinn 16,10 – ... Mar-
el 56,50 +0,89% ... Og fjarskipti 4,12 -0,96% ... Samherji 12,10 – ...
Straumur 11,75 +0,43% ... Össur 79,00 -
Gengishagnaður
vegur upp rekstrartap
Marel 0,89%
FL Group 0,70%
Straumur 0,43%
Actavis -1,16%
Og fjarskipti -0,96%
Burðarás -0,71%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Greiningardeild Íslandsbanka
segir í Morgunkorni í gær að
fréttir af hugsanlegum stóriðju-
framkvæmdum muni hafa áhrif á
aðgerðir Seðlabankans í peninga-
málum. Líklegast er að bankinn
hækki stýrivexti meira en áður
var búist við.
„Spurningin er hvernig en
ekki hvort væntanlegar stóriðju-
framkvæmdir hafi áhrif á pen-
ingastjórnunina á næstunni,“
segir í Morgunkorninu. Seðla-
bankinn mun þó ekki reikna með
slíkum framkvæmdum í spám
sínum fyrr en allri óvissu um þær
hefur verið eytt. Hins vegar hafa
væntingar um framkvæmdirnar
áhrif á hegðun annarra á markaði,
eins og þegar hefur komið fram í
um fjögurra prósenta gengis-
hækkun krónunnar frá því í upp-
hafi síðustu viku.
Ingólfur Bender, forstöðumað-
ur greiningardeildar Íslands-
banka, segir að áframhaldandi
stóriðjuframkvæmdir hafi bæði
jákvæðar og neikvæðar afleiðing-
ar fyrir hagkerfið. „Við höfum
margoft bent á að hið neikvæða í
þessu er að raungengi krónunnar
stendur hátt og það skerðir veru-
lega samkeppnisstöðu íslenskra
fyrirtækja sem keppa við erlend,“
segir hann.
Hann segir hættuna við áfram-
haldandi stóriðjuframkvæmdir
meðal annars felast í því að út-
flutningsiðnaðurinn veikist með-
an á þeim standi og það geti orðið
til þess að við lok slíkra fram-
kvæmda ríki atvinnuleysi og sam-
dráttur í efnahagslífinu.
- þk
Fleiri fjármálafélög kynnu að
hafa áhuga á að eignast Skandia
að öllu leyti eða að hluta til en eins
og kunnugt er á Old Mutual í við-
ræðum við stjórn Skandia. Talið
er að Nordea, stærsti banki Norð-
urlandanna, hafi áhuga að eignast
starfsemi Skandia á Norðurlönd-
unum, einkum líftryggingahlut-
ann og jafnvel Skandia-bankann,
en bæði Old Mutual og Friends
Provident líta girndaraugum á
bresku starfsemina. Fjármála-
starfsemi Skandia á Bretlandseyj-
um er sögð vera um 180 milljarða
króna virði, samkvæmt heimild-
um Reuters-fréttastofunnar, en 60
prósent af hagnaði Skandia koma
þaðan.
Einnig er orðrómur á kreiki um
að Morgan Stanley sé að vinna að
skýrslu fyrir Skandia um þrjú
meginsvið fyrirtækisins. Gæti
það bent til þess að stjórn Skandia
ætli sér að búta félagið niður.
Björn Wahlroos, forstjóri
Sampo, hefur útilokað það við
finnska dagblaðið Kauppalehti að
Sampo hafi áhuga á að eignast
Skandia. - eþa
Meiri vaxta-
hækkanir líklegar
Áframhaldandi stóriðjuframkvæmdir myndu hafa
veruleg áhrif á efnahagslífið.
INGÓLFUR BENDER Forstöðumaður
greiningardeildar Íslandsbanka segir
áframhaldandi stóriðjuframkvæmdir hafa
bæði jákvæð og neikvæð áhrif.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
FLEIRI ÁHUGASAMIR Talið er að fleiri en Old Mutual hafi áhuga á að eignast Skandia
að öllu leyti eða að hluta til. Þar hefur Nordea verið nefnt til sögunnar.
Vilja fleiri Skandia?
SPÁR OG AFKOMA
FL GROUP
Hagnaður 25
Spá Íslandsbanka -11
Spá KB banka -341
Spá Landsbanka -226
Meðaltalsspá -193
RAGNHILDUR GEIRSDÓTTIR FORSTJÓRI FL GROUP Næstbesta afkoma FL Group á
fyrsta ársfjórðungi í sögu félagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
* TÖLUR FRÁ 15,40 Í GÆR. NÝJUSTU TÖLUR Á VÍSI.