Fréttablaðið - 26.05.2005, Síða 32
FIMMTUDAGUR 26. maí 2005
[ HOLLRÁÐ ]
Fossháls 1 • sími 525 0800 • www.badheimar.is
BLÓMÁLFURINN
Vesturgötu 4 sími 562 2707
Íslandsmeistari í blómaskreytingum
í i
Allt fyrir útskriftina
25% afsláttur
á sumarpakka frá
broste-copenhagen
Nánari upplýsingar
á www.bergis.is
Dádýrið er úr krossvið og raðað saman
eins og púsluspili.
Uppstoppað
viðarhöfuð
NÝSTÁRLEG HÖNNUN Á DÁDÝRS-
HÖFÐI SEM FER EKKI FYRIR BRJÓST-
IÐ Á DÝRAVERNDUNARFÓLKI.
Ungur hönnuður að nafni Augustin
Scott de Martinville hefur hannað
skemmtilegt dádýrahöfuð úr krossvið
sem vakið hefur athygli. Fyrirmyndin
er þau dýrahöfuð sem veiðimenn
hafa látið stoppa upp og hengja upp
á vegg til marks um góða veiði. Slík
höfuð hafa farið fyrir brjóstið á dýra-
verndunarsinnum, sem ættu að taka
höfðinu hans Augustin fagnandi þar
sem engin dýr eru sköðuð við fram-
leiðsluna. Sjálfur segist hann hafa
gert dádýrið til að leggja áherslu á
hversu alvarleg athöfn það er að af-
höfða bráðina og uppstoppa höfuðið
til að hengja á vegg. Ásamt dádýrinu
hannaði Augustin elg og má sjá
höfuðin á vefsíðunni www.vla-
emsch.be þar sem einnig er hægt að
kaupa þau.
Vel steytt krydd
Eigi að steyta krydd (karde-
mommu, pipar, engifer o.fl.)
reglulega vel er gott að hita
kryddið í ofninum áður en það er
steytt í mortéli. Þá verður það að
fíngerðu dufti.
Skökk steik
Oft er steikin skökk, það er að
segja hærri í annan endann, og er
því hætt við að hún brúnist ekki
jafnt í ofnsteikingunni. Þennan
vanda leysum við með pappír og
álþynnu, brjótum það saman
undir þynnri enda steikarinnar
og þá verður áferð hennar jöfn.
Steikt í olíu
Þegar steikt er í olíu þarf að
gæta þess að olían hitni ekki um
of. Besti steikingarhiti er um 170˚
C. Hafa ber plötuna einu þrepi
neðar en þegar steikt er í smjör-
líki.
Eggjahvítan í trekt
Auðvelt er að skilja að hvítu og
rauðu með því að hella egginu í
trekt. Hvítan rennur niður en
rauðan verður eftir.
Húð í kristalskönnu
Ef húð hefur myndast innan í
kristalskönnunni þarf að fara að
öllu með gát. Kristall er það
mjúkur að hann getur rispast.
Láttu mulið eggjaskurn í könn-
una, helltu síðan vænum ediks-
sopa í hana og gutlaðu því innan
um hana. Húðin hverfur eftir
smástund og er þá kannan skoluð
vandlega.
Úr 500 Hollráð heimilisins
Matarborðið er sá staður þar sem
mikið er að gerast og hlutirnir
breytast hratt. Borðdúkar eru
teknir af og nýir settir í staðinn,
hnífapör staldra stutt við og
klingjandi glös í bland við mas og
brakandi steikur skapa lifandi
heimilistóna sem lifna við og
fjara út eftir að borðhaldi lýkur.
Við matarborðið mætist fjöl-
skyldan og á góðri sitja þar vinir
og snæða dýrindis máltíð. Nú
þegar sumarið er á næsta leiti er
upplagt að taka því fagnandi með
skrautlegri sumarveislu við
matarborðið. Einfalt er að færa
borðstofuna eða eldhúsið í sumar-
búning þar sem tískan í borðbún-
aði er litrík, frísklega og sumar-
leg og með smá áherslubreyting-
um getur heimilið staðið í blóma á
svipstundu.
Matarborð í sumarblóma
Frísklegur og litríkur borðbúnaður er í tísku um þessar
mundir og tímabært að færa borðhaldið í sumarbúning.
SOMMAR kökubox 3 stk. í IKEA á 690 kr. Origo skálar í Kokku, verð frá 1.250 kr.
Origo grillhanski í Kokku á 1.650 kr. Skrautleg glös í Kokku, 4 saman á 2.500 kr.
Vörur úr Sipa.
Servíetta 600 kr.
Bakki á 990 kr.
Skálar 350 kr. stk.
Servíettuhringur á 990 kr.
Eldhúsáhöld úr Sipa.
Ausa og fiskispaði 490 kr.
Servíetta á 600 kr.
Vörur úr Sipa.
Kanna á 3.980 kr.
Glös á 1.200 kr.
Pipar og salt á 1.750 kr.
Bakki á 1.780 kr.
Vörur úr Sipa.
Kælibox í Sipa
á 2.900 kr.
Borðbúnaður úr Sipa.
Stór diskur á 990 kr.
Minni diskur á 790 kr.
Glas á 480 kr.