Fréttablaðið - 26.05.2005, Síða 48
GRÓÐURHÚS TIL
ÝMISSA HLUTA
NYTSAMLEG
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { HÚS & GARÐAR } ■■■ 9
Gróðursetja trjá-
plöntur allt sumarið
Mikilvægt er að gæta þess við gróðursetningu trjáplantna að
trén sem gróðursett eru hafi verið tekin upp fyrir laufgun.
„Það er fyrst nú þessa dagana sem
eitthvert vit er í því að setja niður
blóm því einu blómin sem þola
næturfrost eru stjúpur. Nú er loks að
renna upp sá tími að ekki er lengur
hætta á næturfrosti,“ segir Einar
Þorgeirsson, skrúðgarðameistari hjá
Birkihlíð í Kópavogi.
„Því má segja að rétti tíminn til að
gróðursetja blóm sé á næstu vikum.
En tré er hægt að gróðursetja allt
sumarið fram á haustið, svo fremi
sem plöntur hafa verið teknar upp
fyrir laufgun. Það er því alls ekkert
of seint að planta trjám núna eða
jafnvel síðar í sumar. Gæta verður
þess að vökva vel, bæði tré og blóm,
sérstaklega ef himininn hefur verið
spar á rigningar. Eftir gróðursetn-
ingu er mikilvægt að vökva vel
næsta hálfa mánuðinn, sérstaklega
berrótarplöntur. Æskilegt er að fá
leiðbeiningar um gróðursetningu hjá
garðyrkjufræðingum eða gróðrar-
stöðvunum. Passa verður einnig að
ekki sé notaður of mikill tilbúinn
áburður því hann getur hreinlega
drepið plönturnar.“ Mikilvægt er að vökva vel fyrsta hálfa mánuðinn eftir að blómum er plantað.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
Það er útbreiddur
misskilningur að það
sé kostnaðarsamt að
reisa og viðhalda
gróðurhúsi í garði
sínum eða mikla
kunnáttu þurfi til.
Gróðurhúsi fylgja ýmsir kostir.
Hægt er að vinna þar í öllum
veðrum allt árið um kring og
mögulegt að koma plöntum í
rækt sem áformað er að gróð-
ursettar verði í garðinum síðar.
Í stórum görðum er skynsam-
legt að afmarka gróðurhúsin
með runnum eða trjám en í
minni görðum er oft nauðsyn-
legt að beita útsjónarsemi við
staðsetningu gróðurhússins.
Það þarf að falla vel að skipu-
lagi garðsins og getur verið
leiðinlegt ef gróðurhúsið
skyggir á aðra hluti garðsins.
Mikilvægt er að staðsetja gróð-
urhúsið þannig í garðinum að
það falli vel að heildarsvip
hans og öllu skipulagi. Það þarf
að standa á skjólsælum stað en
í góðri birtu svo að plönturnar
í því nái örugglega að vaxa og
dafna. Mikilvægt er að gera sér
grein fyrir hlutverki gróður-
hússins í garðinum. Gróðurhús
sem einnig á að þjóna því hlut-
verki að vera garðskáli eða sól-
stofa, verður allt öðruvísi en
það sem eingöngu á að hýsa
plöntur.
Menn ættu að hafa það í huga
að gróðurhús þarfnast miklu
minna viðhalds og endast mun
lengur ef vel er gengið frá þeim
strax í upphafi. Undirstaða
gróðurhússins þarf að uppfylla
þrenns konar skilyrði. Hún þarf
að halda húsinu niðri í vindi og
vera svo traust að húsið verði
hvorki fyrir missigi né haggist
af völdum frostþenslu í jörð.
Víðast hvar á landinu er nægi-
legt að grafa 70-80 cm niður en
þó getur verið ástæða á stöku
stað til að fara enn dýpra, allt
að 120 cm.