Fréttablaðið - 26.05.2005, Síða 70
37FIMMTUDAGUR 26. maí 2005
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ FÓLK
Eva Longoria , leikkonan vinsælaúr Desperate Housewives þátt-
unum, segir að stór galli fylgi frægð-
inni: karlmenn eru orðnir hræddir
við hana. Hún heldur að
hlutverkið í þáttunum geri
það að verkum að hinu
kyninu finnist hún of
ógnandi. „Það er miklu
minna reynt við mig eft-
ir að þátturinn byrjaði. Ég
held að kannski haldi
þeir að ég sé alveg eins
og Gabrielle svo þeir
verða hræddir. En það
er mjög auðvelt að um-
gangast mig, ég er til-
tölulega vingjarn-
leg,“ segir
þokkadísin. Þetta
virðist þó ekki valda henni miklum
vandræðum því hún hefur verið
orðuð við nokkra karlmenn upp á
síðkastið, meðal annars Hayden
Christensen.
En Hayden Christensen læturástamálin ekki trufla sig, né vin-
sældirnar sem fylgja nýju Star Wars
myndinni þar sem hann leikur
Anakin Skywalker.
Christensen hefur
nefnilega hug á því
að gerast arkitekt.
„Kannski verður
nýja Star Wars
myndin mín síð-
asta,“ tilkynnti leik-
arinn, aðdáendum
sínum til mikilla vonbrigða. The Sun
segir að Christensen haldi að hönn-
un bygginga verði skemmtilegri en
að leika í bíómyndum. „Mér finnst
Hollywood ekki áhugaverð, svo ég
er að hugsa um að læra arkitektúr í
staðinn. Bíómyndir eru bara vörur
og sem leikari geturðu bara selt þær
ef þú selur sjálfan þig,“ sagði þessi
metnaðarfulli maður sem vill ekki
selja sálu sína bíómyndabransanum.
Götubörn í Mexikóborg ollu Pen-elope Cruz miklu hugarangri
þegar hún var við tökur á nýju
myndinni sinni Bandidas á dögun-
um. Cruz varð svo um að
sjá aðbúnaðinn á börnun-
um að hún tók nokkra
heimilislausa krakka með
sér í hádegismat og fór
svo í verslunarleiðangur
með fimm önnur götu-
börn til að kaupa handa
þeim ný föt og skó. „Einn
strákanna vildi ekki máta
skóna af því að sokkarnir
hans voru með götum
og lyktuðu hræðilega og
hann skammaðist sín. Maður sér
svona hluti og það er svo sárt,“
sagði spænska fegurðardísin.
Jay Leno hefur verið kallaður semvitni af verjendum Michael
Jackson í réttarhöldunum sem nú
standa yfir gegn Jackson vegna
ásakana um kynferðislegt ofbeldi.
Leno á að hafa fengið símtal frá
einum af drengjunum sem hafa
kært Jackson en verjendur eru að
reyna að sýna fram á að hann hafi
spunnið upp misnotkunarsöguna til
að kúga pening út úr poppstjörn-
unni. Leno fjallaði um hugsanlegan
þátt sinn í réttarhöldunum á mánu-
dagskvöld í þætti sínum „The To-
night Show“. „Ég var
kallaður fyrir af verj-
endum Jackson.
Þeir hafa greini-
lega aldrei séð
þáttinn,“ sagði
Leno enda hef-
ur hann óspart
gert grín að
poppstjörn-
unni.
Trúarkreddu Cruise
Tom Cruise hefur opinberlega
gagnrýnt leikkonuna Brooke
Shields fyrir að taka þunglyndis-
lyfið Paxil við fæðingarþung-
lyndi. Í nýútkominni bók, „Down
Came the Rain,“ lýsir Shields
baráttu sinni við þunglyndi sem
kom í kjölfar fæðingu sonarins
Rowan árið 2003. Saga Shields er
átakanleg en hún skrifaði bókina
til þess að vekja fólk til meðvit-
undar um þennan sjúkdóm.
Þunglyndislyf komu henni yfir
mesta svartnættið en á tímabili
vildi Shields ekki lifa lengur.
Cruise gefur lítið fyrir lyfjameð-
ferð af þessu tagi því hann er
meðlimur í Vísindakirkjunni,
sem er andvíg henni. „Svona
þunglyndislyf eru hættuleg. Ég
hef reyndar hjálpað fólki að
hætta á þeim,“ segir Cruise. Og
hvað vill hann að konur með
fæðingarþunglyndi geri? Taki
vítamín. Cruise er greinilega
ekki vel að sér í líffræði. „Það er
eitthvað hormónatengt í gangi,
það er hægt að sanna það vís-
indalega. En þegar þú ert að tala
um sálfræðilegt og efnafræði-
legt ójafnvægi í fólki, þá eru
engin vísindi á bak við það. Það
er hægt að nota vítamín til að
hjálpa konum í gegnum svona.“
Nú verður Cruise bara að vona
að konur séu ekki í markhópi
nýjustu myndarinnar hans, War
of the Worlds, því þessi heimsku-
legu orð gætu haft áhrif á miða-
söluna. ■
TOM CRUISE Myndi hann brosa
svona breitt ef hann kynntist
þunglyndi af eigin raun?