Fréttablaðið - 26.05.2005, Síða 72
FIMMTUDAGUR 26. maí 2005 39
Íslensk/kanadíska djasstríóið
Cold Front heldur útgáfutónleika
á Hótel Borg á föstudaginn í til-
efni af útkomu sinnar fyrstu
plötu. Cold Front er skipað þeim
Birni Thoroddsen gítarleikara,
Steve Kirby bassaleikara og Ric-
hard Gillis trompetleikara.
„Ég hef verið að spila mikið
undanfarin fjögur ár í Kanada og
þetta samstarf kom út úr því,“
segir Björn. „Þetta eru þunga-
vigtarmenn sem eru með mér og
ég tel mig vera kominn í góðan
félagsskap. Þessir menn eru eig-
inlega í meistaraflokki og það er
æðislegt að fá að vera með þeim.
Þetta er það lengsta sem ég hef
komist á mínum ferli.“
Björn Thoroddsen hefur á
undanförnum árum verið með
annan fótinn vestan hafs og nýt-
ur mikillar virðingar þar. Hann
er nú af mörgum talinn vera einn
af betri djassgítarleikurum Evr-
ópu og hefur vegur hans farið
vaxandi. Steve Kirby er banda-
rískur kontrabassaleikari sem
hefur leikið með mörgum af
fremstu djasstónlistarmönnum
heimsins, m.a. Elvin Jones og
Wynton Marsalis.
Richard Gillis trompetleikari
er Kanadamaður sem stjórnar
stórsveit Winnipeg-borgar.
Platan Cold Front inniheldur
þekkta standarda í bland við
vandað frumsamið efni. Hún er
þegar komin út í Kanada og hef-
ur fengið mjög góðar viðtökur.
Var hún m.a. valin á spilunarlista
kanadíska ríkisútvarpsins CBC,
bæði hjá ensku- og frönskumæl-
andi stöðvunum í Toronto og
Montreal. Í kjölfarið fylgdi já-
kvæð umsögn í fréttablaði CBC
sem er dreift til allra útvarps-
stöðva ríkisins í Kanada. Yfir-
maður tónlistardeildar
kanadíska ríkisútvarpsins
hreifst mjög af Birni og kallaði
hann: „the amazing guitar player
from Iceland“.
Björn segir markaðinn í
Kanada spennandi. „Þetta er stór
markaður og margfaldur á við
Ísland. Ég er búinn að vera að
vinna í þessu í fimm ár og þetta
er afrakstur af því,“ segir hann.
Tónleikarnir á Hótel Borg
hefjast klukkan 21.00. ■
Edith Piaf
fer austur
Dagana 1. og 2. júní næstkomandi
gefst íbúum Austurlands tæki-
færi til að upplifa ógleymanlega
túlkun Brynhild-
ar Guðjónsdótt-
ur á Edith Piaf,
einni frægustu
söngkonu heims.
Söngdagskrá
úr samnefndri
sýningu Þjóð-
l e i k h ú s s i n s
verður sýnd í
Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum. Flytj-
endur ásamt
Brynhildi verða
leikarinn Baldur
Trausti Hreins-
son og tónlistarmennirnir Jóhann
G. Jóhannsson, sem leikur á pí-
anó, Birgir Bragason á kontra-
bassa, Hjörleifur Valsson á fiðlu,
Jóel Pálsson á tenórsaxófón og
klarinett, og Tatu Kantomaa á
harmoniku.
Brynhildur „Piaf“ Guðjóns-
dóttir hefur heillað landann með
túlkun sinni á Edith Piaf, ein-
hverri ógleymanlegustu söngkonu
síðustu aldar, en Brynhildur hlaut
Grímuna – Íslensku leiklistar-
verðlaunin, fyrir túlkun sína á Ed-
ith Piaf.
Sýning Þjóðleikhússins á Edith
Piaf eftir Sigurð Pálsson hefur
gengið fyrir fullu húsi í liðlega 75
skipti og virðist ekkert lát á vin-
sældunum. ■
ÚR HÍBÝLUM VINDANNA Sýningum
lýkur í kvöld.
Híb‡lin
kve›ja
Í kvöld verður síðasta sýning á
Híbýlum vindanna í Borgarleik-
húsinu. Leikgerð Bjarna Jónsson-
ar er eftir rómaðri skáldsögu
Böðvars Guðmundssonar sem er
hin fyrri af tveimur er segja frá
Íslendingum sem yfirgáfu ætt-
jörðina á síðari hluta nítjándu ald-
ar og leituðu að nýrri framtíð
fyrir sig og sína vestanhafs.
Ólafur Jensson Fíólín er fátæk-
ur bóndi og heimilið er barn-
margt. Hann og Sæunn kona hans
neyðast til sundra fjölskyldunni
þegar þau ákveða að freista gæf-
unnar í nýja landinu. Híbýli vind-
anna er leikrit um drauma,
brostnar vonir og söknuð, en fjall-
ar síðast en ekki síst um þraut-
seigju og fórnir fólks í leit að nýj-
um samastað í tilverunni.
Það er tuttugu manna leikhópur
sem fer með fjölmörg hlutverk í
sýningunni, en aðalhlutverkin eru í
höndum Björns Inga Hilmarssonar
og Kötlu Margrétar Þorgeirsdótt-
ur. Þórhildur Þorleifsdóttir er leik-
stjóri sýningarinnar. ■
BRYNHILDUR
GUÐJÓNSDÓTT-
IR Syngur lög úr
sýningunni Edith
Piaf á Austurlandi.
COLD FRONT Hljómsveitin er skipuð þeim Birni Thoroddsen, Steve Kirby og Richard Gillis.
Kominn í gó›an félagsskap