Fréttablaðið - 26.05.2005, Page 74
FIMMTUDAGUR 26. maí 2005
■ MÁLÞING
Í SVÖRTUM
FÖTUM
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
...KLIKKA EKKI!!!
MIÐAVERÐ 2.500 KR. HÚSIÐ OPNAR KL.19.30
NÁNARI UPPLÝSINGAR
FÖSTUD. 27. MAÍ ‘05
LAUGARD 28. MAÍ ‘05
ÍSLENSKI
DANSFLOKKURINN
P
R
IM
U
S
M
O
TO
R
C
O
Listahátíð í Reykjavík 2005
RIALTO FABRIK
NOMADE
KALL INN
Á sunnudaginn koma saman
nokkrir listamenn og sýningar-
stjórar í Norræna húsinu til þess
að ræða svonefndar lýðhyggjutil-
hneigingar eða populisma í menn-
ingarmálum og stjórnmálum og
skoða hvernig þær tengjast sam-
tímalist.
Þátttakendurnir í umræðunum
tengjast allir sýningunni Populism
2005 sem nú stendur yfir í fjórum
borgum í Evrópu, það er Vilnius,
Frankfurt, Ósló og Amsterdam.
Á sýningunni er skoðað hvernig
lýðhyggjuhreyfingar, hvort sem
þær eru á vinstri eða hægri væng
stjórnmála, framsæknar eða aft-
urhaldssamar, ná til fjöldans með
því að höfða til fegurðarskyns
fólks.
Þátttakendur í umræðunum í
Norræna húsinu eru Jakob
Boeskov, Jakob Fenger og Jani
Leinonen sem taka þátt í Populism
sýningunni, einn sýningarstjór-
anna, Christina Ricupero og sýn-
ingarstjórinn Vanessa Muller,
sem átti sæti í ritstjórn fræðirits
sem var gefið út samhliða sýning-
unni. ■
List fyrir l‡›inn
Sirkus á
lei›inni
Einn þekktasti nýsirkus heims,
Cirkus Cirkör frá Svíþjóð, kemur
til Íslands í júní og verður með
fjórar sýningar í Borgarleikhús-
inu á nýjustu uppfærslunni sinni
„99% unknown“. Hingað kemur
Cirkör beint úr sýningarferðalagi
um Asíu, en sýning þeirra á 99%
unknown var framlag Svía á þjóð-
ardeginum á heimssýningunni í
Japan fyrir stuttu.
Cirkus Cirkör er nútímasirkus-
hópur sem var stofnaður í Stokk-
hólmi fyrir tíu árum. Leiðarljós
hópsins og innblástur hefur frá
upphafi verið að breyta heiminum
með list, leik og menntun.
Cirkus Cirkör gerir nokkrar
sýningar á hverju ári, sem eru
sýndar jafnt í Konunglega leik-
húsinu í Stokkhólmi sem á götu-
leikhúshátíðum. Að hverri sýn-
ingu hópsins kemur fjöldinn allur
af listamönnum og blandar saman
leikhúsi, söngleikjaformi, óperu,
dansi og sirkusbrögðum. ■
FRÁ SÝNINGUNNI POPULISM 2005
Verk eftir fréttaljósmyndarann Otto Snoek.
JPV útgáfa hefur sent frá sér nýjakiljuútgáfu af Alkemistanum eftir
Paulo Coehlo í þýðingu Thors Vil-
hjálmssonar. Alkemistinn er ein
þeirra bóka sem nú þegar hefur
hlotið verðugan sess sem sígilt
meistaraverk og hefur selst í yfir 30
milljónum eintaka.
Nýlega komu út sex nýjar bækurfrá Lafleur-útgáfunni. Þeirra á
meðal er ljóðasafnið Orð milli vina
eftir Gunnar Dal, úrval ljóða sem
ber sama nafn og ein ljóðabóka
Gunnars. Mörg þessara ljóða hafa
verið ófáanleg um árabil. Hinar
bækurnar eru Örfok, skáldsaga eftir
Eyvind P. Eiríksson, smásagnasafnið
Ugla sat á kvisti eftir Þorstein Ant-
onsson, ljóðabókin Rökrétt fram-
haldslíf eftir Kristján Hreinsson,
ljóðabókin Með mér er regn eftir
Hörð Gunnarsson og Sólris í hring-
hendingum, sem er spunasafn smá-
sagna, ljóða og hugleiðinga eftir
Benedikt S. Lafleur.
NÝJAR BÆKUR