Fréttablaðið - 26.05.2005, Síða 77
Hljómsveitin Byltan heldur tónleika í kvöld ásamt hljómsveitunum
Jeff Who og Jan Mayen. Byltan hét áður Blúsbyltan og spilaði aðal-
lega blúsað rokk. „Við tókum blúsinn og færðum hann í rokk en
smám saman fór blúsinn úr tónlistinni og nú spilum við melódískt
rokk. Þetta eru fyrstu tónleikarnir okkar í langan tíma, við höfum verið
að æfa nýtt efni og erum því að frumflytja fullt af nýjum lögum þarna
á fimmtudaginn og ákváðum að fá með okkur tvö massív bönd,“ seg-
ir Birgir Ísleifur Gunnarsson en hann syngur og spilar á píanó með
Byltunni. Ásamt honum spila þeir Nonni Kjuði á trommur, Gismo á
bassa, Tobbi á hljómborð og Smári Blumenstein á gítar. „Við höfum
spilað saman í um tvö ár núna í sumar og spilum einungis frum-
samið efni. Ég sem lögin og textana og við vinnum svo lögin í sam-
einingu. Þetta byrjaði eiginlega allt þegar ég, Nonni og Smári unnum
saman að tónlist sem ég samdi fyrir leikrit í MH. Við ákváðum svo að
stofna bandið en nokkrar mannabreytingar hafa orðið síðan þá.“
Þeir hafa fengið eitt lag í spilun í útvarpinu og er það lagið Enginn
lúxus. „Það er annað lag á leiðinni í útvarpið, vonandi í næstu viku.
Við erum svo að vinna í upptökum og ætlum að reyna að gera eitt-
hvað úr þeim, við skulum vona að það sé ekki of langt í fyrstu plötuna okkar því við erum löngu komnir með
nóg efni.“
Tónleikarnir á fimmtudaginn eru haldnir á Gauk á Stöng, hefjast upp úr tíu og kostar einungis 500 krónur inn.
> Plata vikunnar ...
GORILLAZ:
Demon Days
„Damon Albarn reyn-
ir að gera hina full-
komnu poppplötu.
Niðurstaðan er persónulegt meist-
arastykki, það besta sem hann
hefur skilað af sér á löngum og
blómlegum ferli.“ BÖS
44 26. maí 2005 FIMMTUDAGUR
Weezer: Make Believe
„Weezer reynir að gera hina fullkomnu poppplötu.
Niðurstaðan er versta plata sveitarinnar frá upp-
hafi. Nördarnir eru því miður að eldast illa.“
BÖS
Nine Inch Nails: With Teeth
„Trent Reznor snýr aftur með þriðja meistarastykki
sitt í farteskinu. Skotheld plata sem ætti að festa
hann í sessi sem einn merkasta tónlistarmann
okkar tíma.“
BÖS
Garbage: Bleed Like Me
„Garbage skilar af sér sinni verstu plötu frá upp-
hafi. Hér er ekkert spennandi á ferð, sándið ná-
kvæmlega eins og áður og lögin alveg fáránlega
pirrandi. Hvað gerðist eiginlega?“
BÖS
Hildur Vala: Hildur Vala
„Það á greinilega vel við Hildi Völu að syngja róleg
lög þar sem gullfalleg rödd hennar nýtur sín svo
vel. Þó að lögin á plötunni séu ekki öll jafngóð híf-
ir Hildur Vala þau flest upp til skýjanna með söng
sínum.“
FB
Death From Above 1979:
You're a Woman, I'm a
Machine
„Það var frábær rokkdúett frá Kanada sem bjó til
þessa bráðskemmtilegu plötu, aðeins með tromm-
um, bassa, smá hljóðgervlum og söng. Virkilega
orkumikil og spennandi frumraun.“ BÖS
Hot Hot Heat: Elevator
„Önnur eiginleg breiðskífa Hot Hot Heat inniheld-
ur svipað magn af glaðlegum tónum, en ekki
sama magn af ferskleika og frumraun þeirra.
Sæmilegasta plata samt, sem vex við hverja hlust-
un.“ BÖS
Fischerspooner: Odyssey
„Týndu prinsarnir í bandarísku raftónlistarsenunni
snúa aftur eftir þriggja ára útgáfuþögn. Biðin var
þess virði, og platan það besta sem þeir hafa gert.“BÖS
Athlete: Tourist
„Breska sveitin Athlete tekur við kyndlinum þar
sem Snow Patrol lagði hann frá sér. Sæmilegasta
hljómsveitarpopp eftir bresku hefðinni, sem virkar
svo auðvitað sérstaklega leiðingjarnt við ítrekaða
hlustun.“
BÖS
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
[ TOPP 20 ]
X-IÐ 977 - VIKA 30
TRABANT
Nasty Boy
THE CORAL
In the Morning
BECK
Girl
U2
City of Blinding Lights
COLDPLAY
Speed of Sound
1
2
3
4
5
System of a Down er ein
merkasta rokksveit
heimsins í dag. Nýlega
kom út platan Mezmer-
ize, sú fyrri í tvíleik
sveitarinnar. Freyr
Bjarnason rifjaði upp
feril harðjaxlanna í
System of a Down.
Rokkararnir í System of a Down
ætla að taka tónlistarárið 2005
með trompi. Nýlega kom út þriðja
hljóðversplata sveitarinnar, Mez-
merize, og undir lok ársins er síð-
an væntanleg seinni platan í tví-
leik þeirra, Hypnotize, en báðar
plöturnar voru teknar upp á sama
tíma á síðasta ári.
Neðanjarðarfylgi í L.A.
System of a Down var stofnuð í
suðurhluta Kaliforníu um miðjan
tíunda áratuginn. Stofnmeðlim-
irnir, sem eru af armenskum upp-
runa, voru söngvarinn Serj Tank-
ina, gítarleikarinn Daron Malaki-
an, bassaleikarinn Shavo Odadji-
an og John Dolmayen sem lemur
húðir. Hljómsveitin fékk fljótt
umfangsmikið fylgi í neðanjarð-
arsenunni í Los Angeles og allir
virtust hafa nafn sveitarinnar á
vörum sér. Sveitir á borð við Korn
og Deftones minntust á System of
a Down í viðtölum og eftir að
þriggja laga demó-plata með
sveitinni var tekin upp fóru vin-
sældir hennar smám saman að
aukast víða í Bandaríkjunum,
Evrópu og á Nýja-Sjálandi.
Eitthvað nýtt
Sumarið 1998 kom út fyrsta plata
System of a Down, samnefnd
henni, sem hlaut mjög góðar við-
tökur. Strax var ljóst að þarna var
eitthvað nýtt á ferðinni og lögin
Sugar og Spiders voru góður vitn-
isburður um það. Þremur árum
síðar var komið að næstu plötu,
Toxicity, sem átti heldur betur
eftir að slá í gegn. Með lög á borð
við titillagið Aerials og að sjálf-
sögðu Chop Suey! að vopni varð
Toxicity að metsöluplötu um allan
heim og hefur hún nú selst í tæp-
lega sex milljónum eintaka.
Í nóvember 2002 gaf System of
a Down síðan út plötuna Steal This
Album sem hafði að geyma óút-
gefin og sjaldheyrð lög með sveit-
inni. Þótti hún ekki síður kröftug
en fyrri plöturnar.
Þrjátíu lög í sarpinum
Á síðasta ári fór System of a
Down í hljóðver á nýjan leik með
sama upptökustjóra og áður, hinn
þekkta Rick Rubin. Honum til að-
stoðar var gítarleikarinn Malaki-
an. Upptökurnar gengu svo vel
fyrir sig að þeir félagar höfðu úr
þrjátíu lögum að velja. Í stað þess
að gefa út tvöfalda plötu var
ákveðið að skipta útkomunni í
tvennt og gefa út tvær plötur með
um það bil hálfs árs millibili und-
ir nöfnunum Mezmerize og
Hypnotize.
Pólitískir textar
Með Mezmerize er ljóst að Syst-
em of a Down hefur fest sig ræki-
lega í sessi sem ein fremsta og
jafnframt framsæknasta rokk-
sveit heimsins í dag. Eins og áður
er þar í aðalhlutverki hratt en
kaflaskipt rokkið, sem hægist á
með jöfnu millibili svo hlustendur
fái tíma til að andai. Einnig býr
sveitin enn yfir þeim hæfileika að
geta komið á óvart, sem er eitt-
hvað sem fáar rokksveitir geta
státað af.
Textarnir eru pólitískir og
fjalla m.a. um misrétti gagnvart
minnihlutahópum í Bandaríkjun-
um og stríðsrekstur. Í B.Y.O.B.
(Bring Your Own Bombs) spyrja
þeir til að mynda hvers vegna þeir
fátæku séu ávallt sendir í stríð og
í Lost in Hollywood gagnrýna þeir
kvikmyndaborgina harðlega fyrir
að svíkja fólk hvað eftir annað og
gera lítið úr því.
Tónleikaferð System of a
Down um Evrópu hefst annað
kvöld í Lissabon í Portúgal og í
byrjun ágúst fer sveitin síðan í
tónleikaferð um Norður-Ameríku,
þar sem liðsmenn The Mars Volta
verða sérstakir gestir hljómsveit-
arinnar. ■
Andfélagslegur kraftur
SYSTEM OF A DOWN Platan Mezmerize kom nýverið út og hefur hlotið góðar viðtökur.
tonlist@frettabladid.is
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Lokbrá: Army of Soundwaves, Hot Damn!: The
Big'n Nasty Groove O'Mutha, System of a Down:
Mezmerize, Gorillaz: Demon Days, Antony and the
Johnsons: I am a bird Now, Queens of the Stone
Age: Lullabies to Paralyze, Oasis: Don't Believe the
Truth og Eels: Blinking Lights and Other Revelations.
>
Lo
kb
rá
>
H
ot D
am
n!
Byltan rokkar á n‡
> Popptextinn ...
„Everybody's going to the party,
have a real good time.
Dancing in the desert blowing
up the sunshine.“
Liðsmenn System of a
Down láta andúð sína
á Íraksstríðinu í ljós á
kaldhæðinn hátt í lag-
inu B.Y.O.B af plötunni
Mezmerize.
Tónleikar bandaríska rapparans
Snoop Dogg verða haldnir í
Egilshöll þann 17. júlí, eins og
Fréttablaðið greindi frá fyrir
rúmum tveimur mánuðum. Sögu-
sagnir hafa verið um að ekkert
myndi verða af tónleikunum.
Töluverð óvissa hefur verið
um hverjir muni standa að tón-
leikunum og nú virðast allar lík-
ur vera á að Þorsteinn Stephen-
sen og félagar hjá Hr. Örlygi
verði ekki með í dæminu. Aftur á
móti er öruggt að tónleikarnir
verða haldnir og aðeins á eftir að
ganga frá nokkrum lausum end-
um, m.a. hvort einhverjir fleiri
listamenn komi með Snoop til Ís-
lands, en fyrr verður opinber til-
kynning um tónleikana ekki gef-
in út.
Tónleikar Snoop á Íslandi eru
liður í tónleikaferð hans um Evr-
ópu til að fylgja eftir nýjustu
plötu hans, R&G: The Masterpi-
ece, sem hefur hlotið mjög góðar
viðtökur. Snoop hefur gert garð-
inn frægan með lögum á borð við
Gin & Juice, What's name, Drop
it like its hot, Beautiful og
Murder Was The Case. Íslenskir
tónlistaráhugamenn eiga vafalít-
ið eftir að flykkjast á tónleika
hans í Egilshöllinni í sumar. ■
BYLTAN Strákarnir í Byltunni spila á
Gauk á Stöng í kvöld ásamt hljómsveit-
unum Jeff Who og Jan Mayen.
SNOOP DOGG Rapparinn heimsfrægi heldur tónleika í Egilshöll 17. júlí.
TRABANT Hljómsveitin Trabant heldur
efsta sæti X-listans með lag sitt Nasty
Boy.
Baráttunni um
Snoop a› ljúka