Fréttablaðið - 26.05.2005, Qupperneq 89
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Ferðafrelsi
Og Vodafone
Komdu í Og Vodafone verslun, smelltu þér á www.ogvodafone.is eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
Nú getur þú notað Frelsið þitt í útlöndum. Skráðu þig í Ferðafrelsi Og Vodafone
um leið og þú gengur frá vegabréfinu. Skráning í Ferðafrelsi er án aukagjalds.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
81
34
05
/2
00
5
VONIN
Oft heyri ég um fólk sem hefurfengið dóma af sérfræðingum. Og
mér finnst þetta alltaf jafn sorglegt að
heyra. Ég á vin sem var sagt að hann
ætti bara visst langan tíma eftir ólifað-
an með enga von um bata. Síðan eru
liðin mörg ár. Tíminn er löngu liðinn.
Honum hefur ekki versnað heldur
skánað mikið. Sá sem sagði honum
þetta hafði einfaldlega rangt fyrir sér.
OFT ER vonin það eina sem maður á.
Kannski ekki nema einn möguleiki á
móti milljón. Og hver dagur er mikil-
vægur. Hvert einasta andartak er allur
heimsins tími sem við þurfum til að
elska. Einn dagur getur verið mikil-
vægari en heilt ár.
Í VONINNI leynist kraftur. Hún er
jákvæð löngun í erfiðum aðstæðum.
Hún felur í sér afl sem er fært um að
skapa líf. Jafnvel þegar allt virðist von-
laust heldur vonin manni á floti. Hún
gefur fólki orku til að byggja sig upp
og takast á við mótlæti. Hetjur sem
bjóða örlögunum byrginn þrátt fyrir
bölssýnisspár og úrtölur og ná mark-
miðum sínum lifa oft eingöngu á von-
inni. Og hetjur verða öðrum fyrirmynd
og hvatning til að gera enn betur.
VONIN GEFUR LÍF. Hún er nær-
ing. Þegar vonin hefur verið tekin frá
fólki er ekkert eftir. Nema vonleysi.
Og vonleysi er dauði. Enginn hefur rétt
til að taka burtu vonina okkar, ekki í
nafni neins, ekki í krafti embættis,
menntunar, reynslu eða vísinda. Sá
sem á von á mikið. Sá sem gefur von
gefur meira en sá sem tekur hana. Því
sá sem tekur hana tekur allt.
ÞEGAR VIÐ gefum upp vonina þá
slökknar eitthvað innra með okkur en
ef við höldum í hana þá sköpum við
vettvang fyrir aðra hluti til að vaxa.
Það er eins og að halda loga á einu
kerti. Við getum alltaf kveikt á nýjum
og nýjum kertum og gert birtuna
meiri. En ef kertið slokknar er bara
myrkur.
MANNESKJAN ER meira en bara
skrokkurinn. Enginn veit fyrir víst
hvað á eftir að gerast. Það er alltaf
von. Vonin er jákvæð hugsun. Og ég
trúi því að kraftur jákvæðrar hugsun-
ar geti læknað með vegum sem við
fáum ekki skilið. Einu sinni var stað-
reynd í mínu lífi sem ég vonaði samt,
heitt og innilega, að mundi breytast.
Og einn daginn breyttist hún og þá var
allt í einu eins og hún hefði aldrei
verið til. Vonin mín sigraði raunveru-
leikann.
KRAFTAVERK gerast á hverjum
degi. Á hverju augnabliki.
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR