Fréttablaðið - 27.05.2005, Síða 12
27. maí 2005 FÖSTUDAGUR
Umboðsmaður Alþingis:
Rá›herra endursko›i gjaldskrá
UMBOÐSMAÐUR Umboðsmaður
Alþingis hefur í úrskurði sínum
beint þeim tilmælum til
menntamálaráðherra að endur-
skoða gjaldskrá fyrir Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra.
Í máli sem umboðsmaður
hefur tekið til meðferðar kvart-
aði maður yfir úrskurði
menntamálaráðherra þar sem
staðfest var ákvörðun Sam-
skiptamiðstöðvar heyrnar-
lausra og heyrnarskertra um að
synja beiðni hans um túlkaþjón-
ustu án endurgjalds fyrir hús-
fund í fjöleignarhúsi þar sem
hann á íbúð. Taldi maðurinn að
hann ætti rétt til þessarar þjón-
ustu án endurgjalds á grund-
velli laga um sammskiptamið-
stöðina.
Umboðsmaður telur að við
setningu gildandi laga hefði
einungis verið ætlunin að gjald-
taka tæki til hluta þeirrar þjón-
ustu sem samskiptamiðstöðin
veitti og að ekki yrði um gjald-
töku að ræða vegna þjónustu
sem veitt væri heyrnarlausum
og heyrnarskertum. - jss
BARÁTTA
Heyrnarlausir hafa lengið barist fyrir
réttindum sínum.
fiurrkar koma í veg
fyrir gró›ursetningu
Ekki er hægt a› hefja gró›ursetningu í Hei›mörk vegna langvarandi flurrka. Fyrir-
huga› er a› setja ni›ur á anna› hundra› flúsund trjáplöntur, en fla› verk getur
ekki hafist fyrr en jör›in hefur fengi› gó›a vætu. Plöntur frá flví í fyrra eru í hættu.
6.888 kr.
Tæki sem auðvelda vorverkin
ALTO háþrýstidælur
R
V
20
34
Tilbo
ð
maí 2
005
ALTO
háþr
ýstidæ
lur á
tilboð
sverð
i
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 120 bör
Vatnsmagn: 440 l/klst
Nilfisk ALTO Compact
Þrýstingur: 100 bör
Vatnsmagn: 300 l/klst
15.888 kr.
Nilfisk ALTO Excellent
Þrýstingur: 135 bör
Vatnsmagn: 500 l/klst
28.888 kr.
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Opn
unar
tími
í ve
rslun
RV:
KÍKTU Á WWW.BTNET.IS
OPNUM KLUKKAN
VIÐ MUNUM
SKEMMTA ÞÉR!
00:00 SKÓGRÆKT Um 15 þúsund skógar-plöntur bíða nú rigningar í Heið-mörk, svo hægt verði að setja þærniður, að sögn Ólafs Erlings Ólafs-
sonar skógarvarðar á svæðinu.
Eftir helgina koma rúmlega 100
þúsund plöntur til viðbótar. Þá kem-
ur líka fyrsti vinnuhópurinn, 20
manns, á mánudag. Ætlunin var að
fara að setja niður plöntur af full-
um krafti, en útilokað er að hefja
gróðursetningu nú því jarðvegur-
inn er orðinn svo þurr eftir
langvarandi þurrkatíð, að sögn
Ólafs.
„Þrír hópar sjá um gróðursetn-
inguna fyrir okkur í sumar, svo og
göngustígagerð á svæðinu“ sagði
hann. „Það eru veraldarvinir, ung-
lingavinna Landsvirkjunar og
Vinnuskóli Reykjavíkur, samtals
160 manns þegar flest verður.
Yfirstandandi þurrkatíð veldur
því að það er ekki hægt að hefja
gróðursetningu. Ef sett er niður
planta, þá þornar hún um leið þótt
hún hafi verið rennandi blaut. Jarð-
vegurinn er orðinn alveg skrauf-
þurr niður á 10-15 sentímetra dýpt.
Við verðum bara að vökva plönt-
urnar og láta huga að göngustíga-
gerð meðan tíðin er svona.“
Þær 15 þúsund plöntur sem bíða
gróðursetningar nú eru birkiplönt-
ur. Fyrirhugað er að setja einnig
niður greni og furu í Heiðmörkinni
í sumar.
Ólafur sagði vel merkjanlegt
hve slæm áhrif veðráttan hefði haft
á gróðurinn í Heiðmörk í vor.
Aspirnar væru „gular og ljótar“ og
gróðurinn væri almennt mun seinni
til heldur en venjulega.
„Í svona þurri norðanátt er lítill
hiti í loftinu á daginn og nánast
frost á nóttunni,“ sagði Ólafur. „Það
sést mikill munur á birkinu niðri
við Elliðavatn og uppi í Heiðmörk-
inni, hvað gróðurinn sem stendur
lægra er kominn miklu betur áleið-
is. Það gæti farið svo að smáplönt-
urnar sem settar voru niður í Heið-
mörkinni í fyrra drepist í svona
þurrkum. Við gróðursettum um 115
þúsund plöntur á síðasta ári. Þær
virðast sleppa enn sem komið er, en
svona veðurfar þola þær ekki til
lengdar.“ jss@frettabladid.is
SKÓGARVÖRÐURINN Ólafur Erling Ólafsson, skógarvörður í Heiðmörk, við plöntubakkana.
Ekki er hægt að setja plönturnar niður vegna þurrka. Um 15 þúsund bíða nú gróðursetn-
ingar og eftir helgina bætast svo rúmlega 100 þúsund plöntur við.