Fréttablaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 16
16 27. maí 2005 FÖSTUDAGUR
Völlurinn skalf
í fagna›arlátunum
Þing- og forsetakosningar í Póllandi í haust:
Eineggja tvíburar til valda
Íslendingar sem voru á
vellinum í Istanbúl segj-
ast aldrei hafa upplifað
aðra eins stemmningu og
þá sem myndaðist þegar
Liverpool og AC Milan
áttust við í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu.
Íslenskir Liverpool-aðdáendur
upplifðu ótrúlega stemmningu á
Atatürk-vellinum í Istanbul í
fyrrakvöld, þegar úrslitaleikur
Meistaradeildar Evrópu fór
fram, en þar lagði Liverpool AC
Milan eftir vítaspyrnukeppni.
Torfi Jóhannsson, 28 ára gam-
all Ísfirðingur, sagði erfitt að
lýsa því sem fyrir augu bar. „Það
var ólýsanleg stemning á vellin-
um, sérstaklega þegar Xabi
Alonso jafnaði leikinn, þá skalf
allur völlurinn vegna fagnaðar-
látanna. Menn sem þekktust ekk-
ert föðmuðust og hoppuðu eins
og brjálæðingar,“ sagði Torfi,
sem var ennþá að ná sér eftir
fagnaðarlæti gærkvöldsins.
Ritari Liverpool-klúbbsins á
Íslandi, Jón Óli Ólafsson, var
einnig á leiknum og sagðist
aldrei hafa lent í öðru eins. „Í
hálfleik var ég nú ekkert glaður,
enda AC Milan 3-0 yfir, en sem
betur fer breyttist það nú. Það
sem gerðist þegar Dudek varði
frá Shevchenko var algjörlega
ólýsanlegt,“ sagði Jón Óli og
vitnaði þar til markvörslunnar
sem tryggði Liverpool sigurinn.
Tugir Íslendinga voru á leikn-
um og mátti sjá íslenska fánann
á áhorfendapöllunum í gær.
Þannig fögnuðu Liverpool-aðdá-
endur á Players innilega þegar
sást glitta í fánann á sjónvarps-
skjánum.
Liverpool á sér stóran hóp að-
dáenda á Íslandi, en meðlimir í
íslenskum aðdáendaklúbbi fé-
lagsins eru um 1500 talsins. Hall-
grímur Indriðason, varaformað-
ur klúbbsins, segir starfsemi
klúbbsins blómlega. „Það eru
þrjár stoðir í starfsemi klúbbs-
ins. Við gefum út stórt tímarit,
Rauða herinn, fjórum sinnum á
ári, síðan höldum við úti vefnum
Liverpool.is og skipuleggjum
ferðir á Anfield Road fyrir
klúbbsmeðlimi yfir keppnistíma-
bilið. Ferðunum á örugglega
eftir að fjölga í kjölfar þeirrar
ótrúlegu stemmningar sem
myndaðist á úrslitaleiknum,“
sagði Hallgrímur.
magnush@frettabladid.is
Í Póllandi fara fram þingkosning-
ar í september og forsetakosning-
ar í október. Og nú þegar bendir
allt til að tvíburarnir Jaroslaw og
Lech Kaczynski muni sem fulltrú-
ar stjórnmálaflokksins „Réttur og
réttlæti“ verða meðal sigurveg-
ara beggja kosninga, að því er
þýska vikuritið Der Spiegel grein-
ir frá.
Lech, sem er nú borgarstjóri
Varsjár, er um þessar mundir sá
þeirra sem vitað er að verði í
framboði í forsetakosningunum
sem langmests fylgis nýtur í skoð-
anakönnunum.
Bróðir hans, Jaroslaw, hefur
sem þingmaður einnig aflað sér
mikils persónufylgis, ekki síst
með harðri gagnrýni á ráðamenn í
Rússlandi sem um þessar mundir
er mjög til vinsælda fallið meðal
pólskra kjósenda.
Fari svo að þær vinsældir sem
bræðurnir njóta nú skili sér í kjör-
fylgi í haust er vel hugsanlegt að
Lech verði forseti en Jaroslaw
forsætisráðherra. Út á við kynni
það að valda nokkrum ruglingi –
tvíburarnir eru eineggja og því
nær ógerlegt að þekkja þá í sund-
ur.
- aa
UM ÞRJÚ PRÓSENT GRUNNSKÓLA-
NEMENDA HAFA ANNAÐ MÓÐUR-
MÁL EN ÍSLENSKU. PÓLSKA ER AL-
GENGASTA ERLENDA MÓÐURMÁLIÐ Í
GRUNNSKÓLUM.
Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfis-
ráðherra fær lítið frí í sumar. Unnið er
að mörgum stórum verkefnum í um-
hverfisráðuneytinu, sérstaklega þeim
sem snúa að náttúruvernd, en áform-
að er að stofna stóran Vatnajökuls-
þjóðgarð sem nær norður fyrir jökul-
inn til sjávar. Einnig er unnið að
skýrslu vegna Kyoto-bókunarinnar sem
skilað verður fyrir áramót og sér Sig-
ríður ekki fram á annað en að Íslend-
ingum takist að standa við sinn hluta
samkomulagsins.
„Við erum einnig að fara yfir stefnuna
um sjálfbæra þróun,“ segir Sigríður en
hún fjallar um það að landinu sé skil-
að til afkomenda í ekki verra ástandi
en tekið var við því og helst betra. Í
haust verður haldið umhverfisþing þar
sem þessi mál verða til umfjöll-
unar.
Lífið er þó ekki eintóm vinna hjá
Sigríði. Síðla í ágúst ætla hún og
maður hennar að gifta yngstu
dóttur sína og af því tilefni koma
eldri dætur þeirra tvær í heim-
sókn með fjölskyldur sínar frá
Noregi og Þýskalandi. Sigríður
hlakkar mikið til þess en einnig
mun hún reyna að heimsækja
móður sína norður á Siglufjörð í
sumar. „Eflaust reyni ég að skjót-
ast um helgar í sumarbústaðinn
okkar á Snæfellsnesi,“ segir
Sigríður sem verður með annan
fótinn á erlendri grund í sumar á
ýmsum fundum á vegum um-
hverfisráðuneytisins.
Giftir dóttur sína í sumar
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR UMHVERFISRÁÐHERRA
Mikið er skeggrætt þessa dagana um
hvort Reykjavíkurlistinn eigi að bjóða sig
fram í borgarstjórnarkosningum á næsta
ári, eða hvort flokkarnir sem standa að
kosningabandalaginu eigi að bjóða sig
fram undir eigin merkjum.
„Þar sem ég bý í Hafnarfirði hef ég ekki
sterka skoðun á þessu, en almennt séð
er ég á því að flokkarnir eigi að bjóða
fram hver fyrir sig,“ segir Valdimar Hall-
dórsson viðskiptafræðingur. Valdimar
finnst vera farið að örla á þreytu í sam-
starfinu og telur að Reykjavíkurlistinn
hafi ekki staðið sig nógu vel í að tryggja
framboð á lóðum. „Ég held að það sé
líka kominn tími á nýjan meirihluta. Eng-
um er hollt að sitja of lengi við völd og
breytingar á meirihlutanum gætu verið
kærkomið tækifæri fyrir alla til að stokka
upp spilin og endurmeta stöðuna.“
Valdimar telur þó að sjálfstæðismenn
eigi við ramman reip að draga ætli þeir
að komast í meirihluta. „Ég hugsa að
þeir verði að gera breytingar á listanum
og hver veit nema Gísli Marteinn sé von-
arstjarnan sem þeir þurfa á að halda.“
VALDIMAR HALLDÓRSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
Komin flreyta
í samstarfi›
Á R-LISTINN AÐ HALDA ÁFRAM?
SJÓNARHÓLL
Fegurðardrottningin Margrét Elíza
borin út af sýslumanni:
Sögð vera
leigjendur
frá helvíti
– hefur þú séð DV í dag?
Hundaskítur
og hland um
alla íbúð
Vestfjarðavíkingurinn:
Aftur til
upprunans
Vestfjarðavíkingurinn snýr aftur til
upprunans í ár þegar þessi árlega
aflraunakeppni verður haldin á
sunnanverðum Vestfjörðum, í
B a r ð a s t r a n d a r -
sýslu þar sem hún
var haldin fyrstu
árin. Þar sem sjón-
varpað var frá leik-
unum var ákveðið
að hrókera stað-
setningum hverju
sinni til tilbreyt-
ingar.
Upphafsmaður keppninnar og
skipuleggjandi hennar, Guðmundur
Otri Sigurðsson, er fæddur og upp-
alinn á suðurhluta Vestfjarða-
kjálkans. Hann fékk hugmyndina að
keppninni sem leið til að auka ferða-
mannastraum á þetta svæði. Það
hefur tekist vel að hans sögn enda
hafa þættirnir verið sýndir víða um
heim. „Það héldu allir að ég væri
geðveikur,“ segir hann um það þeg-
ar hann kynnti hugmyndina að Vest-
fjarðavíkingnum fyrst, en keppnin
hefur verið haldin árlega frá árinu
1993.
Magnús Ver Magnússon hefur
hreppt titil Vestfjarðavíkingsins
síðustu fimm árin. Hann verður
einnig með þegar keppnin hefst á
Reykhólum 23. júní. Guðmundur
vill ekki vera með yfirlýsingar um
hvort Magnús verði sigraður í ár en
allt geti þó gerst, enda níu aðrir öfl-
ugir karlmenn með. - sgi
VINSÆLIR BRÆÐUR Lech Kaczynski, borgarstjóri Varsjár og hugsanlega næsti forseti
Póllands, við skyldustörf í borginni. Eineggja tvíburabróðir hans Jaroslaw gæti orðið for-
sætisráðherra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
STEMNING Í ISTANBUL Torfi Jóhannsson skemmti sér konunglega á áhorfendapöllun-
um í Istanbúl, en tugir Íslendinga fóru til Tyrklands til þess að sjá leikinn.
GUÐMUNDUR
OTRI