Fréttablaðið - 27.05.2005, Page 26
Herraþjóðin smáa
Útflutningsráð Íslands situr ekki auðum höndum.
Ráðið stóð fyrir ferðinni miklu til Kína með 150
manna viðskiptanefnd.
Menn þar á bæ eru varla búnir með tollinn sinn
þegar lagt verður af stað í næstu ferð. Sú verður
reyndar ekkert í líkingu við Kínaferðina og bara 20
sendir í þetta sinn.
Hætt er við að eftir að hafa heimsótt hið ógnar-
stóra Kína þyki mönnum Danmörk smá og lítil-
fjörleg. Hins vegar hafa íslensk fyrirtæki náð
ágætum árangri í landinu og hagsmunir Ís-
lendinga í landinu eru töluverðir. Innkoma
KB banka á danska markaðinn gerir það lík-
legra að Íslendingar eigi eftir að fjárfesta frekar
í Danmörku.
Innrásin útskýrð
Á viðskiptaráðstefnu sem haldin verður í
ferðinni verður margt góðra gesta. Fyrr-
verandi utanríkisráðherra Dana, Uffe
Ellemann-Jensen, mun ávarpa samkomuna. Þá
munu Hreiðar Már Sigurðsson og Jón Ásgeir
Jóhannesson væntanlega reyna að útskýra fyrir
Dönum hvaðan afl Íslendinga til stórra fjárfestinga
í Danmörku er sprottið.
Danskir fjölmiðlar hafa velt því mikið fyrir sér og
haft á köflum býsna sérkennilegar hugmyndir um
íslenskt fjármálakerfi í ætt við þær sem Jónína
Benediktsdóttir hefur varpað fram. Þorsteinn Páls-
son sendiherra hefur talið sumar þeirra hug-
mynda komnar héðan til danskra fjölmiðla.
Til að tryggja aukinn skilning danskra blaða-
manna á frumkvöðlakrafti og styrk íslensks
viðskiptalífs er brugðið á það ráð að hafa tvo
blaðamenn leiðandi fjölmiðla í Danmörku
á háborði í umræðum eftir fyrirlestr-
anna. Hvort það verður til að
breyta umræðum um Molbúana í
norðri sem eru að kaupa djásn
Dana verður svo tíminn að leiða
í ljós.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.010*
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 93
Velta: 390 milljónir
+0.36%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Framboð til stjórnar SH var til-
kynnt í gær og sjálfkjörið verður í
stjórn. Nýir inn koma Hreggviður
Jónsson, Jón Kristjánsson og
Þór Kristjánsson.
Úr stjórn SH hverfa Gunnlaug-
ur Sævar Gunnlaugsson, Eiríkur
S. Jóhannsson og Guðmundur
Kristjánsson.
Á hluthafafundi SH 30. maí
næstkomandi verður einnig ósk-
að eftir heimild til að kjósa fimm
menn í varastjórn. Þeir sem skipa
þá stjórn verða Finnbogi Jóns-
son, Egill Tryggvason, Páll Þór
Magnússon, Sigurður Ágústsson
og Skúli Valberg Ólafsson.
Í dag greiðir Bakkavör fyrir
breska matvælafyrirtækið Geest
og lýkur þá yfirtökuferlinu.
26 27. maí 2005 FÖSTUDAGUR
HB Grandi hagnaðist um
763 milljónir fyrstu þrjá
mánuði ársins. Uppgjörið
er yfir væntingum og
framlegðarhlutfall hækkar.
HB Grandi hagnaðist um 763
milljónir króna á fyrsta ársfjórð-
ungi sem er mikil aukning frá
sama tímabili í fyrra þegar hagn-
aðurinn var aðeins 52 milljónir
króna. Þetta er besti ársfjórðung-
ur félagsins í langan tíma en
fyrstu mánuðir ársins eru að jafn-
aði bestir í rekstrinum. Hagnað-
urinn er tæplega helmingi meiri
en meðaltalsspá bankanna.
Rekstrarhagnaður fyrir af-
skriftir er 852 milljónir króna eða
25,5 prósent af tekjum og hækkar
hlutfallið úr 24,1 prósentum frá
fyrra ári. Er það vel yfir spám
greiningardeildanna. Rekstrar-
tekjur vaxa úr 2.531 milljónum
króna í 3.343 milljónir og skýrast
auknar tekjur og meiri rekstrar-
hagnaður aðallega af „samruna
HB Granda hf. við Tanga hf. og
Svan RE-45 ehf., betri árangri af
loðnuvertíð og meiri karfaveiði en
árið áður,“ eins og segir í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu.
Fjármagnsliðir batna mikið
milli þessara tveggja árshluta-
uppgjöra. Í uppgjörinu eru þeir
hagstæðir um 355 milljónir króna
en voru neikvæðir um 286 millj-
ónir á síðasta ári. Styrking á gengi
krónunnar skilar HB Granda
miklum gengishagnaði af erlend-
um skuldum. Arðsemi eigin fjár á
ársgrundvelli er um 31 prósent.
Eigið fé Granda er komið upp í
10,5 milljarða króna og heildar-
eignir eru komnar yfir 29 millj-
arða króna. Eiginfjárhlutfall er
því rétt um 36 prósent.
HB Grandi er með mestan
kvóta allra útgerðarfélaga en
hlutdeild fyrirtækisins er um 11
prósent af heildarkvótanum. Fé-
lagið gerir út fimm frystitogara,
fjóra ísfisktogara og fimm upp-
sjávarskip auk nýja uppsjávar-
frystiskipsins Engeyjar. - eþa
Peningaskápurinn…
Actavis 42,50 +0,24% ... Atorka 5,96
– ... Bakkavör 33,80 +0,60% ... Burðarás 14,00 – ... FL Group 14,35 -
0,35% ... Flaga 5,00 – ... Íslandsbanki 13,15 – ... KB banki 524,00
+0,77% ... Kögun 61,80 +0,16% ... Landsbankinn 16,00 – ... Marel
56,50 – ... Og fjarskipti 4,12 – ... Samherji 12,10 – ... Straumur 11,80 –
... Össur 79,00 -
Mikill rekstrarbati
hjá HB Granda
Grandi 1,86%
SÍF 0,82%
KB banki 0,77%
FL Group -0,35%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur
var tæpir tveir milljarðar króna á
fyrsta ársfjórðungi, miðað við 340
milljónir fyrir sama tímabil í fyrra.
Rekstrarhagnaður Orkuveitunn-
ar, fyrir afskriftir og fjármagns-
kostnað, var hins vegar 1,8 millj-
arður króna.
Mismunur hagnaðar og rekstr-
arhagnaðar helgast af gengishagn-
aði af erlendum skuldum.
Tekjur félagsins námu fjórum
milljörðum króna og jukust um 400
milljónir milli ára.
Eignir Orkuveitunnar eru metn-
ar á 77,8 milljarða króna. - jsk
Mun Baugur selja
hlut sinn í LXB?
Bresk fasteignafélög hafa sýnt
breska fasteignaþróunarfélaginu
LXB Group, sem er í eigu Baugs
Group, Halifax Bank of Scotland
og Skotans Tom Hunters, áhuga
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins. Baugur eignaðist tíu
prósenta hlut í LXB fyrir einn
milljarð árið 2003.
Breska fasteignafélagið Land
Securities hefur verið nefnt til
sögunnar sem hugsanlegur kaup-
andi. Eignir LXB eru meðal
annars verslunarmiðstöðvar fyrir
utan borgirnar, sem gætu verið
mjög eftirsóttar þar sem treglega
gengur að fá leyfi fyrir byggingu
nýrra verslunarmiðstöðva.
Land Securities er skráð í
bresku kauphöllina og hefur stað-
ið í yfirtökum á öðrum fasteigna-
félögum. Nýlega keypti það Tops
Estates til að styrkja stöðu sína í
verslunarmiðstöðvum. - eþa
VERSLUNARMIÐSTÖÐVAR EFTIRSÓTTAR Talið er líklegt að bresk fasteignafélög renni
hýru auga til LXB, sem er að hluta í eigu Baugs Group. Land Securities er nefnt til sögunnar.
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Hagnaður á
fyrsta ársfjórðungi nam tveimur milljörðum
króna.
ENGEY, SKIP HB GRANDA Rekstur HB Granda batnaði verulega á milli ára en félagið
hagnaðist um 763 milljónir á fyrsta ársfjórðungi. Margt skýrir þennan bata, til dæmis sam-
runi við útgerðirnar Tanga og Svan sem hefur aukið rekstrartekjur umtalsvert.
Verksmi›ja
Samherja seld
Samherji hefur selt fiskimjölsverk-
smiðju sína í Grindavík til Síldar-
vinnslunnar á Neskaupstað. Rekstur
verksmiðjunnar hefur legið niðri
síðan í febrúar þegar mikill bruni
kom þar upp. Samherji á tæpan
fjórðungshlut í Síldarvinnslunni og
verður því áfram aðili að rekstrin-
um í Grindavík. Mikil hrognavinnsla
hefur farið fram í verksmiðjunni.
Samherji áætlar að hagnaður af
sölunni verði um 400 milljónir en
óvíst er hvaða áhrif þetta hefur á
rekstur félagsins, það er rekstrar-
tekjur og framlegð, til frambúðar.
- eþa
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Tveggja milljar›a gró›i
ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON,
FORSTJÓRI SAMHERJA Samherji hefur
selt fiskimjölsverksmiðju sína í Grindavík
til Síldarvinnslunnar.
SPÁR OG AFKOMA HB GRANDA
HAGNAÐUR 763
Spá Íslandsbanka 96
Spá KB banka 794
Spá Landsbanka 662
Meðaltalsspá 517
* Tölur frá 15,40 í gær.
Nýjustu tölur á Vísi.