Fréttablaðið - 27.05.2005, Síða 29
Engifer
Engifer er best að geyma eins og kartöflur, eða við stofuhita.
Engiferrótin myglar í ísskáp og ekki er ráðlagt að frysta hana
þar sem það breytir bragðinu. [ ]
S í m i : 5 6 8 6 4 4 0 | b u s a h o l d @ b u s a h o l d . i s
Stá lpottasett á góðu verði
Brúðhjónal istar og gjafakort
Alþjóðlegur veitingastaður
með spænsku ívafi
Á El Raco er frábær matur á
góðu verði, spænskur söngur
gleður gesti og stemningin er sér-
lega fjölskylduvæn.
Nýlega var opnaður nýr veitinga-
staður í Tryggvagötu 8. Veitinga-
staðurinn hefur hlotið nafnið El
Raco sem útleggst horn á íslensku,
en El Raco er katalónska. Eigand-
inn, Jose Garcia, er spænskur, ætt-
aður frá listaborginni Althea í
Alicante.
„Við opnuðum hér 20. apríl síð-
astliðinn,“ segir Jose, sem hefur
ýmislegt á prjónunum varðandi
staðinn.
„Aðaláherslan verður á góðan
mat á góðu verði, en mér finnst að
fólk eigi að geta veitt sér að fara út
að borða án þess að það kosti of
mikið. Við erum með fjölbreyttan
alþjóðlegan matseðil með spænsku
ívafi og meðalverð er um 1.200
krónur á mann. Dýrasti rétturinn á
matseðlinum er steik og hún kostar
um 2.000 krónur. Svo er ég með
sérstakan barnamatseðil, en súp-
urnar kosta frá 500 krónum og að
sjálfsögðu erum við líka með ham-
borgara og samlokur fyrir yngra
fólkið.“
Jose ætlar í náinni framtíð að
vera með tapasbar á staðnum og
bjóða upp á salsabar á kvöldin.
„Við erum með opið frá 11 á
morgnana til 11.30 á kvöldin og
þrjú um helgar. Eldhúsið er opið til
22 á virkum dögum og 23 um helg-
ar. Á hverju kvöldi er hér spænski
gítarleikarinn Don Felix sem er Ís-
lendingum að góðu kunnur, en
hann spilaði lengi með Los Para-
guayos og hefur samið tónlist fyrir
ýmsa þekkta listamenn. Þá hefur
Spánardrottning afhent honum
verðlaun úr sjóði prinsins af
Astura fyrir framlag sitt til menn-
ingar og lista. Felix spilar fyrir
gesti en leggur líka áherslu á að
virkja þá í söng og gleði þegar það
á við.“
Jose hefur búið á Íslandi í rúm
sjö ár, en hann er kvæntur ís-
lenskri konu og þau eiga þrjú börn.
„Ég byrjaði að vinna á Hard Rock
þegar ég kom til Íslands og hef
verið kokkur bæði á Vegamótum
og Kaffibrennslunni. Nú langar
mig að reka stað sjálfur þar sem
ungir og aldnir geta komið og átt
skemmtilegar stundir og notið
góðra veitinga eins og þekkist svo
vel á Spáni. Aðstaða til að taka á
móti hópum er líka sérlega góð.“
Jose lætur vel af landi og þjóð
en grettir sig þegar minnst er á
kuldann. „Það eina sem ég sakna er
sólin,“ segir hann og gnístir tönn-
um í maísnjókomunni. „En mér
finnst landið og fólkið yndislegt og
hér er frábært að vera með börn.“
Jose gefur lesendum Frétta-
blaðsins uppskriftir að tveimur
réttum. edda@frettabladid.is
Jose Garcia veitingamaður vill bjóða Íslendingum upp á sannkallaða Spánarstemningu.
Don Felix er á staðnum á hverju kvöldi og
spilar fyrir gesti.
Humar í forrétt.
6 kjúklingabringur
Salt og pipar
Salatblanda í poka að eigin vali
Sósa
1 dós kókosmjólk
1 bolli salthnetur
1/2 ferskt chili
2 msk. sítrónugras, fínt saxað
5 hvítlauksgeirar
salt eftir smekk
2 msk sojasósa
1 bolli púðursykur
1/2 búnt kóriander
3 lauf kaffilime (fæst í austurlenskum búð-
um)
kanilduft á hnífsoddi
1/2 paprika, smátt skorin
fennelduft á hnífsoddi
1/2 rauðlaukur. smátt skorinn
cayenne pipar á hnífsoddi
AÐFERÐ
Kjúklingabringurnar eru skornar í
strimla, kryddaðar með salti og pipar
og steiktar á pönnu. Því næst er allt
hráefnið í sósuna sett í pott ásamt 2
dl af vatni og soðið í hálfa klukku-
stund. Í lok suðutímans er maukað
eilítið með töfrasprota, sem er með
hnífi á endanum og saxar niður hnet-
urnar og laukinn.
Salatblöndunni er síðan skipt á sex
diska og kjúklingastrimlunum raðað
ofan á. Að síðustu er sósunni hellt
yfir. Kjúklingasalatið er borið fram
með brauði.
SÍTRÓNUOSTAKAKA
Deig
400 g smjör
200 g sykur
4 eggjarauður
500 g hveiti
2-3 msk. vanilludropar
Blandið og hrærið saman. Setja því
næst í form.
FYLLING
9 stór egg
375 g sykur
300 ml rjómi
4 sítrónur / raspaðar
AÐFERÐ:
Egg og sykur hrært saman í ca. 5
mín. Þá er rjóma og sítrónum bætt í
og allt hrært saman í 10 mín. Hella
fyllingu í form og baka í ca. 90 mín.
við 150˚ C.
Kjúklingasalat
að hætti El Raco
FYRIR 6 MANNS
Heimalöguð súkkulaðimús í eftirrétt.
CYPRESS og MONISTROL:
Ódýr og fersk sumarvín
Freyðivín eru ómissandi þáttur í brúðkaupum og öðrum
veislum en það er ekki alltaf auðvelt að finna góð freyðivín
á hagstæðu verði. Spánverjar eru mjög framarlega í gerð
freyðivíns og bestu vín þeirra etja kappi við gæðakampavín
á alþjóðamarkaði þótt ekki megi kalla þau kampavín, ein-
ungis vín frá héraðinu Champagne í Frakklandi mega bera
það heiti. Um 95% af allri freyðivínsframleiðslu Spánar fer
fram í héraðinu Penedes og þaðan kemur vínið Marques
De Monistrol Semi Seco Cava. Öll framleiðsla fyrirtækis-
ins á cava-vínum fer fram eftir „método champanés“ eða
að kampavínshætti. Vínið lækkaði um 200 kr. í verði um
síðustu mánaðamót.
Verð í Vínbúðum 890 kr.
Blush eða roðavín hafa lengi notið mikilla vinsælda,
sérstaklega sem samkvæmisvín. Cypress White Zin-
fandel er úr zinfandel-þrúgunni, sem er óvenjulegt
fyrir ljóst vín en vínið hefur ferskleika hvítvíns,
karakter rauðvíns og lífleika rósavíns. Fallega laxa-
bleikt að lit með ilm af jarðarberjum og rifsberjum.
Aðeins freyðandi með vott af sætu. Í eftirbragði er
skemmtileg sýra sem gerir það að verkum að vínið er
ekki bara gott til drykkjar eitt og sér heldur fer ljóm-
andi vel með grilluðum fiski og þá sérstaklega laxi.
Einnig koma ýmiss konar salöt vel til greina, þá gjarn-
an með furuhnetum, sólþurrkuðum tómötum og grill-
uðum laxi.
Verð í Vínbúðum 990 kr.