Fréttablaðið - 27.05.2005, Side 41
Það mátti vel greina spennu hjá
þeim sem komnir voru saman
við flugaðstöðu landgræðslu-
flugsins í gær, þegar flugvélin
Páll Sveinsson af gerðinni DC-3
var að lenda úr sínu síðasta
áburðarflugi. „Þetta er stór
dagur hjá öllu áhugafólki um
flugsögu og kannski sérstaklega
hjá þeim fjölmörgu sem tengj-
ast þessari tegund flugvél
beint,“ segir Tómas Dagur
Helgason, formaður Þristavina-
félagsins, sem er sérstakur fé-
lagsskapur áhugamanna um
þessa tegund flugvéla. „Merki-
legast við sögu Páls Sveinssonar
er þó að hún hefur verið notuð í
mikilli vinnu alla sína tíð, sem
er sjaldgæft með þetta gamlar
vélar, sem sýnir vel hversu
magnaðar þessar DC-3 vélar
eru,“ bætir Tómas Dagur við.
Bræðurnir Jóhannes og Snorri
Snorrasynir tengjast vélinni
tryggum böndum, en báðir flugu
þeir vélinni um árabil. „Í áætlun-
arflugi milli Reykjavíkur og
Keflavíkur árið 1948 var ég í
þjálfun hjá Flugfélagi Íslands og
var ekki kominn með full réttindi
ennþá, þá vantaði aðstoðarflug-
mann í skyndi, ég var bara kall-
aður til og hef alla tíð síðan
tengst þessari vél mikið,“ segir
Snorri.
Félag atvinnuflugmanna hefur
gefið vinnu sína við áburðarflug-
ið í þau 32 ár sem það hefur verið
í gangi, og segja félagsmenn það
alls ekki íþyngjandi verk. „Það er
einfaldlega slegist um að fá að
fljúga þessari vél,“ segir Snorri
og undrast það ekki að vélin skuli
enn þann dag í dag njóta mikilla
vinsælda.
Þristavinafélög eru starfandi
víða um heim. „Við höldum tengsl-
um við félögin í Skandinavíu en ég
veit til þess að þessi tegund flug-
véla á sér stóra aðdáendahópa um
allan heim,“ segir Tómas Dagur.
Flugvélin, sem er orðin 62 ára
gömul, verður ennþá notuð til
flugs í einhvern tíma þó hún muni
ekki sinna áburðarfluginu.
Landgræðslan, sem á flugvél-
ina, mun færa Þristavinafélaginu
vélina til umsjónar. „Vélin verður
áfram í eigu Landgræðslunnar en
Þristavinafélagið mun hafa um-
sjón með henni,“ segir Björn
Bjarnarson, umsjónarmaður
áburðarflugsins.
Vélin verður máluð og snyrt
fyrir sýningu sem haldin verður í
Duxford í Bretlandi 9. til 10. júlí,
en þangað verður henni flogið
nokkrum dögum fyrr. ■
28 27. maí 2005 FÖSTUDAGUR
HENRY ADAMS (1838-1918)
lést þennan dag.
Flugmenn slást um
að fljúga Þristinum
TÍMAMÓT: SÍÐASTA FLUG ÁBURÐARFLUGVÉLARINNAR PÁLS SVEINSSONAR
„Óreiða elur oft af sér líf, á meðan regla
skapar einungis vana.“
Henry Adams var bandarískur sagnfræðingur sem fékkst við bóka-
skrif og kennslu. Hann var prófessor við Harvard-háskóla og var
virtur fyrir greinargóð skrif sín um evrópska og bandaríska sögu.
timamot@frettabladid.is
VELUNNARAR ÞRISTSINS HEIÐRAÐIR Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri heiðruðu hóp
fólks fyrir stuðning við landgræðsluflugið.
Umfangsmikil leit hófst þennan
dag árið 1981 þegar flugvélin TF-
ROM með fjórum ungum mönn-
um innanborðs skilaði sér ekki á
áfangastað á Akureyri en þeir
höfðu lagt af stað frá Reykjavík
um kvöldmatarleytið. Fjöldi flug-
véla, þyrlur og björgunarsveitir
tóku þátt í leitinni en mikil þoka
olli erfiðleikum fyrstu dagana,
sem og snjóalög um mest allt
leitarsvæðið milli Reykjavíkur og
Akureyrar. Flugvélarinnar varð
hvergi vart og að lokum teygði
leitarsvæðið sig yfir næstum allt
landið.
Ráðgátan var síðan leyst hinn 10.
júní, um tveimur vikum eftir
hvarf vélarinnar. Flak vélarinnar
fannst í mörgum hlutum við
Þverárvötn í Borgarfirði, austur af
Fornahvammi. Voru nokkrir hlut-
ar vélarinnar úti á ísilögðu vatni.
Svo virtist sem flugvélin hefði
flogið af fullum krafti á jörðina
og sundrast þar með þeim af-
leiðingum að mennirnir fjórir lét-
ust samstundis.
Síðar á árinu spruttu aftur upp
miklar umræður um flugöryggis-
mál þegar Flugráð gaf út skýrslu
þar sem fram kom að af tólf þyrl-
um sem keyptar hefðu verið til
landsins frá upphafi hefðu hvorki
meira né minna en níu farist. Var
slæmum flugskilyrðum á Íslandi
kennt um en þó ekki talið ólík-
legt að þjálfun flugmanna væri
ábótavant.
27. MAÍ 1981
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1703 St. Pétursborg er nefnd
höfuðborg Rússlands.
1857 Danskir embættismenn
þurfa frá og með þessum
degi að þreyta íslenskupróf
áður en þeir taka við emb-
ættum á Íslandi.
1923 Fyrsti La Mans-kappakstur-
inn fer fram. Renee Leon-
ard fer með sigur af hólmi.
1933 Teiknimyndin Grísirnir þrír
er fyrst gefin út þennan
dag.
1983 Hús verslunarinnar í
Reykjavík er tekið í notkun.
Húsið átti að efla verslun
og auka samtakamátt
þeirra sem að henni koma.
1991 Landsbankinn tekur yfir
síðasta útibú Samvinnu-
bankans.
Flugvél ferst me› fjórum mönnum
Elskulegur eiginmaður og faðir,
Vu Van Phong
er látinn.
Minningarathöfn hefur farið fram, jarðaförin fer fram í Víetnam.
Þökkum ykkur öllum auðsýnda samúð og stuðning.
Viet Thanh Mac
Kristín Trang Linh Vu
Ættingjar og vinir.
Loi cam Ta
Toi xin chan Thanh cam on
ba con cong dong nguoi viet
nam dang song tai bang dao
da nhiet tinh den chia buon
phung vieng dam le tang chong
loi trong khi tang gia boi roi
co diei gi so suat mong ba
con rong long luong thu
goa phu
Mac Thanh Viet
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurður Björgvinsson
fyrrum bóndi á Neistastöðum,
sem lést að hjúkrunarheimilinu Víðinesi föstudaginn 20. maí sl., verður
jarðsunginn frá Selfosskirkju mánudaginn 30. maí kl. 13:30. Jarðsett
verður í kirkjugarðinum að Hraungerði.
Margrét Björnsdóttir
Björn Sigurðsson Sigríður Júlía Bjarnadóttir
Soffía Sigurðardóttir Sigurður Ingi Andrésson
Stefanía Sigurðardóttir Björn Jónsson
Guðbjörg Sigurðardóttir Stefán Hrafn Jónsson,
Sigurður B. Sigurðsson Þorbjörg Erla Sigurðardóttir
og barnabörn.
JAR‹ARFARIR
10.30 Steingerður Hólmgeirsdóttir,
Víðilundi 20, Akureyri, verður jarð-
sungin frá Glerárkirkju.
13.00 María Ágústa Benedikz, Sóltúni
2, áður Hrefnugötu 2, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvog-
skapellu.
13.00 Halldóra Árnadóttir, Kvistagerði
2, Akureyri, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju.
13.00 Erla Kristjánsdóttir, til heimilis á
Bakkastöðum 5a, áður Hjallalandi
22, verður jarðsungin frá Grafar-
vogskirkju.
14.00 Hjálmar Rúnar Hjálmarsson, vél-
stjóri, Lóulandi 2, Garði, verður
jarðsunginn frá Útskálakirkju.
14.00 Gísli Torfason, Lágmóa 11,
Reykjanesbæ, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Ottó Níelsson, Hrafnistu, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju.
FÆDDUST fiENNAN DAG
1794 Cornelius Vanderbilt, auðjöfur
1882 Josef Joachim Raff, tónskáld
1923 Henry A. Kissinger, fyrrverandi
ráðherra í Bandaríkjunum
1975 Jamie Oliver, kokkur án klæða
ANDLÁT
Þórarinn Pálsson bóndi, Seljalandi,
Fljótshverfi, lést þriðjudaginn 24. maí.
Guðmundur Sæmundsson tæknifræð-
ingur, Álftamýri 25, Reykjavík, lést á
heimili sínu mánudaginn 23. maí.
Kristín Laufey Guðjónsdóttir andaðist
mánudaginn 23. maí.
Sesselja Ólafsdóttir, Kirkjuvegi 6,
Hvammstanga, lést á sjúkrahúsi
Hvammstanga þriðjudaginn 24. maí.
Anna Clara Sigurðardóttir, Lindargötu
57, Reykjavík, lést þriðjudaginn 24. maí.
Sigríður Ingibjörg Claessen kennslu-
meinatæknir, Sæviðarsundi 82, Reykja-
vík, lést á krabbameinsdeild Landspítala-
Háskólasjúkrahúss mánudaginn 23. maí.
Margrét H. Randversdóttir, Lindarsíðu
3, Akureyri, lést á gjörgæsludeild FSA
föstudaginn 20. maí.
Steinunn Þ. O. Nielsen, Seljahlíð,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 25. maí.
AFMÆLI
Guðný Skaptadóttir Fisher verður 60
ára þann 30. maí. Hún er stödd á Íslandi
og býður vinum og vandamönnum til
kaffisamsætis að Funafold 79 á milli kl.
15 og 18, sunnudaginn 29. maí.
Þórey Aðalsteinsdóttir leikkona er 67
ára.
Karl Steinar Guðnason, fyrrverandi al-
þingismaður, er 66 ára.
Hjördís Rut Sigurjónsdóttir fréttakona
er 30 ára.
Næstkomandi sunnudag er flug-
messa í Grafarvogskirkju og
verður hún fyrsta guðsþjónusta
sinnar tegundar hér á landi. Að
sögn séra Vigfúsar Þórs Árnason-
ar sóknarprests átti Björn Þver-
dal, flugvirki og gæðastjóri hjá
Flugfélagi Íslands, frumkvæðið
að messunni. „Björn var í alfa-
námskeiði hjá okkur og kom að
máli við mig og nefndi þessa hug-
mynd. Við ákváðum að taka slag-
inn og nú er fyrsta flugmessan að
verða að veruleika.“
Fjölmargir sem tengjast flugi
koma að messugjörðinni; Benóný
Ásgrímsson flugstjóri flytur hug-
leiðingu og flugfreyjukórinn
syngur ásamt félögum úr kvartett
flugstjóra. Þá leikur fjöldi flug-
manna og flugfreyja á hljóðfæri.
Signý Pétursdóttir flugumferðar-
stjóri flytur ritningarlestur og
Hertvig Ingólfsson flugvirki og
Rafn Jónsson flugstjóri lesa bæn-
ir. Þá les Björn Þverdal lokabæn.
Fyrir messu lendir þyrla við
kirkjuna, sem og fallhlífar-
stökkvarar. Að messu lokinni
verður boðið upp á kaffi og
kirkjugestir geta notið listflugs á
meðan. Flugfólk sem á og notar
einkennisbúninga í starfi sínu er
beðið um að mæta í þeim. Flug-
messan hefst klukkan 11.00 en
fallhlífarstökkvararnir lenda upp
úr klukkan 10. ■
Fyrsta flugmessan á Íslandi
SÉRA VIGFÚS ÞÓR ÁRNASON
Fólk úr fluggeiranum sér um allan tón-
listarflutning og bænalestur í mess-
unni. Að lokinni guðsþjónustu verður
boðið upp á kaffi og listflugssýningu.