Fréttablaðið - 27.05.2005, Síða 47
27. maí 2005 FÖSTUDAGUR34
Valsmenn ger›u gó›a fer› í Árbæinn í gær og unnu sannfærandi útisigur á Fylki, 1-2. fietta er í fyrsta sinn
sí›an 1993 a› n‡li›ar vinna flrjá fyrstu leiki sína í efstu deild.
Vörn Valsmanna vinnur leiki
FÓTBOLTI „Þetta var ekkert bylm-
ingsskot,“ sagði Andri Júlíusson,
hetja Skagamanna í leiknum gegn
Grindavík uppi á Skipaskaga í
gær. Hann skoraði sigurmark
leiksins með lokaspyrnu leiksins.
„Ég fékk boltann á vinstri kantin-
um og gaf inn á Jón Vilhelm sem
spólar sig nánast í gegnum vörn-
ina og ég er heppinn, fæ boltann
og næ að skjóta í markið. Það var
ótrúlegt að sjá boltann í netinu,“
sagði Andri.
„Við klikkuðum. Við gáfum
þeim leikinn eftir að hafa haft
hann í hendi okkar,“ sagði varnar-
maðurinn Óðinn Árnason, súr í
broti eftir leik eins og aðrir
Grindvíkingar. „Þetta var engu að
síður besti leikur okkar í sumar
og hefur verið góður stígandi í
leik okkar. Við áttum aldrei að
tapa þessum leik en við verðum að
halda í þá trú að við getum gert
betur.“
Leikurinn á Akranesvelli var
fremur kaflaskiptur. Grindvíking-
ar komust réttilega yfir í fyrri
hálfleik en greinilegt var að Ólaf-
ur Þórðarson hafði lagt sínum
mönnum vel línurnar í hálfleik
sem Skagamenn eiga ef frá eru
talin nokkur góð færi Grindvík-
inga strax eftir hlé. Hafþór Ægir
Vilhjálmsson og Hjörtur Hjartar-
son komu sínum mönnum yfir og
var mark Hjartar einstaklega
glæsilegt. Þrumufleygur í slána
og inn. En gestirnir hættu ekki og
jöfnuðu metin sem dugði þó ekki
til því að Andri skoraði sigur-
markið í blálokin.
Grindvíkingar mega vel við
una þrátt fyrir að hafa enn ekki
fengið stig í hús. Þeir leika sífellt
betri knattspyrnu og eru til alls
líklegir í næstu umferðum. Skaga-
menn virkuðu ekki sannfærandi í
fyrri hálfleik en tóku til sinna
mála í þeim síðari. Það er reyndar
áhyggjuefni hversu berskjaldaðir
þeir virðast vera á svæðinu fyrir
framan vörnina og betur má ef
duga skal. eirikurst@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
24 25 26 27 28 29 30
Föstudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
20.00 Fram og Þróttur mætast á
Laugardalsvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta..
20.00 Fjölnir og Víðir mætast á
Fjölnisvelli í 2. deild karla í fótbolta..
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
07.30 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
08.00 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
08.30 Olíssport á Sýn.
Endursýndur þáttur.
16.25 Þú ert í beinni! á Sýn.
Endursýndur þáttur.
16.45 Fótboltakvöld á Rúv.
Endursýndur þáttur.
17.25 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur.
18.40 Gillette Sportpakkinn á Sýn.
19.10 Motorworld á Sýn. Hjól og
hestöfl.
19.40 Lansbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá leik Fram og
Þróttar í Landsbankadeildinni.
21.55 HM í póker á Sýn.
*MAÐUR LEIKSINS
ÍA 4–3–3
Páll Gísli 7
Finnbogi 7
*Reynir 7
Gunnlaugur 7
Guðjón 6
Pesic 6
(58. Helgi Pétur 6)
Pálmi 6
Jón Vilhelm 6
Kári Steinn 5
Hjörtur 7
(88. Andrés –)
Hafþór 6
(74. Andri –)
GRINDAVÍK 4–4–2
Savic 7
Óðinn 6
Kekic 7
Óli Stefán 6
Eyþór Atli 6
Niestroj 7
Eysteinn 7
McShane 6
(75. Jack –)
Óskar Örn 6
Magnús 6
(90. Andri –)
Ahandour 6
3-2
Akranesv., áhorf: 682 Erlendur Eiríksson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–7 (10–6)
Varin skot Páll Gísli 3 – Savic 7
Horn 6–5
Aukaspyrnur fengnar 8–13
Rangstöður 1–1
0–1 Magnús Þorsteinsson (34.)
1–1 Hafþór Vilhjálmsson (53.)
2–1 Hjörtur Hjartarson (71.)
2–2 Mounir Ahandouer (76.)
3–2 Andri Júlíusson (90.)
ÍA Grindavík
FYRSTA MARK HAFÞÓRS Hafþór Ægir
Vilhjálmsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir ÍA
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
Skagamenn tóku á móti Grindvíkingum:
Stálheppnir Skagamenn
FÓTBOLTI „Við vitum hvar styrkleiki
okkar liggur og við reynum að
byggja okkar leikaðferð á honum.
Við erum sterkir varnarlega og
svo erum við fljótir upp völlinn og
auðvitað reynum við að nýta okkur
það,“ sagði Willum Þór Þórsson,
þjálfari Valsmanna, í samtali við
Fréttablaðið eftir leikinn. Vel valin
orð þar hjá Willum því þeirra
taktík í leiknum í gær gekk full-
komlega upp og náðu Fylkismenn
aldrei að ógna marki Vals að neinu
viti. Mark þeirra kom úr horn-
spyrnu, einni af ellefu slíkum í
leiknum sem allar voru Fylkis-
manna, og var það nánast aðeins í
þeim sem einhver hætta skapaðist
upp við mark gestanna.
Willum stillti upp sama liði og
hann hefur gert í fyrstu tveimur
leikjunum að undanskildum Garð-
ari Gunnlaugssyni, sem á við
meiðsli að stríða. Í fjarveru hans
ákvað Willum að setja Matthías
Guðmundsson í fremstu víglínu og
kom Baldur Aðalsteinsson inn í lið-
ið í stað Matthíasar á hægri kantin-
um. Matthías reyndist betri en
enginn í framlínunni og þakkaði
fyrir sig með tveimur laglegum
mörkum.
„Mér er svo sem alveg sama
hvar ég spila og mér líður alveg
jafn vel frammi og á kantinum.
Mér líður bara vel í þessu liði
núna,“ sagði Matthías í sigurvímu í
leikslok. „Það skiptir engu máli
hver skorar mörkin. Ég náði að
setja tvö sem er auðvitað ánægju-
legt en bestur er samt sigurinn,“
bætti markaskorarinn við en hann
var mjög sprækur í framlínunni
framan af leik og olli varnarmönn-
um Fylkis miklum vandræðum
með hraða sínum.
Ekki er hægt að segja að leikur-
inn í gær hafi verið vel leikinn.
Heimamenn voru ívið meira með
boltann nánast allan leiktímann en
Valsmenn vörðust gríðarlega
skpulega og beittu einstaklega vel
útfærðum skyndisóknum. Það var
einmitt úr einni slíkri sem Matthí-
as skoraði sigurmarkið en arki-
tektinn að því var vinstri bakvörð-
urinn Bjarni Ólafur Eiríksson.
Hann, ásamt hinum þremur í varn-
arlínu Vals, myndaði múr upp við
vítateig Vals sem heimamenn voru
aldrei nálægt að brjóta og var á
köflum vandræðalegt að fylgjast
með sóknartilburðum Fylkis. Og
jafnvel þrátt fyrir að hafa verið
manni fleiri síðustu 20 mínúturnar
héldu Fylkismenn áfram að beita
löngum sendingum fram völlinn,
þar sem smávaxnir sóknarmenn
máttu síns lítils gegn turnunum í
vörn Vals.
„Við spiluðum langt undir getu
og vorum ekki að skapa okkur
sömu færin og í fyrstu tveimur
leikjunum. Það er erfitt að segja af
hverju en Valur spilar mjög öfluga
vörn og það hefur aldrei gengið
hjá okkur að dæla háum bolta
fram. Ég veit ekki af hverju við
gerðum þetta svoleiðis en við þurf-
um að rífa okkur upp, það er ljóst,“
sagði Guðni Rúnar Helgason.
„Við erum með markmiðin á
hreinu og það fyrsta er að tryggja
tilverurétt okkar í deildinni. Þessi
sigur var skref í áttina að því,“
sagði Willum enn fremur og er
með fæturna á jörðinni þrátt fyrir
óskabyrjun Vals á Íslandsmótinu.
vignir@frettabladid.is
1-2
Fylkisvöllur, áhorf: 1285 Gísli H. Jóhannsson (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–4 (1–2)
Varin skot Bjarni Þórður 0 – Kjartan 0
Horn 11–0
Aukaspyrnur fengnar 11–13
Rangstöður 0–0
0–1 Matthías Guðmundsson (17.)
1–1 Helgi Valur Daníelsson (25.)
1–2 Matthías Guðmundsson (50.)
Fylkir Valur
FULLT HÚS HJÁ VALSMÖNNUM
Valsmaðurinn Guðmundur Benediktsson
sést hér brjótast framhjá Fylkismann-
inum Ragnari Sigurðssyni í leik liðanna á
Fylkisvellinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
*BESTUR Á VELLINUM
FYLKIR 4–3–3
Bjarni Þórður 5
Helgi Valur 6
Ragnar 5
Valur Fannar 5
Gunnar Þór 5
Finnur 6
Guðni Rúnar 5
Viktor Bjarki 5
Eyjólfur 4
(56. Jón Björgvin 4)
Sævar Þór –
(18. Albert 5)
Björgólfur 4
(70. Björn Viðar –)
VALUR 4–4–2
Kjartan 5
Steinþór 6
Atli Sveinn 7
Grétar 7
Bjarni Ólafur 7
Baldur 6
(77. Sigurður S. –)
Sigurbjörn 6
Stefán Helgi 5
Sigþór 5
*Matthías 7
Guðmundur 5
(63. Kristinn 5)