Fréttablaðið - 27.05.2005, Síða 55
42 27. maí 2005 FÖSTUDAGUR
Fullorðið fólk Dags Kára
GRAFFÍTÍLISTAMAÐURINN DANIEL Er með allt á hælunum en líf hans tekur miklum breytingum þegar hann kynnist bakarastelpunni
Franc.
„He’s more
machine now
than man;
twisted and
evil.“
- Það vefst ekki fyrir Obi-Wan Kenobi að lýsa erki-
fjanda sínum, Svarthöfða, í The Return of the Jedi
enda er það hann sjálfur sem heggur hinn unga
Anakin svo illa í spað í nýju Stjörnustríðsmyndinni
að það er ekkert eftir annað en illur skrokkur í
ógnvekjandi öndunarvél.
bio@frettabladid.is
Það eru komin fimmtán ár síðan Jane Fonda
lék síðast í kvikmynd. Það var í kvikmyndinni
Stanley & Iris þar sem hún lék á móti Robert
DeNiro. Hún giftist í kjölfarið fjölmiðlakóngn-
um Ted Turner og í sameiningu byggðu þau
upp fjölmiðlaveldi hans og Fonda hvarf af
sjónarsviðinu sem leikkona. Turner og Fonda
skildu fyrir fjórum árum síðan en halda að
hennar sögn góðu sambandi. Fonda hefur á
undanförnum árum helgað krafta sína trúnni
og baráttunni gegn ofbeldi gagnvart konum
en snýr nú aftur á hvíta tjaldið í kvikmyndinni
Monster in Law.
Það má með sanni segja að kvikmyndirnar
séu henni í blóð bornar enda er hún dóttir
eins virtasta kvikmyndaleikara Hollywood fyrr
og síðar, Henry Fonda. Hún ætlaði sér þó
aldrei að leggja kvikmyndirnar fyrir sig en
fékk bakteríuna eftir að hafa kynnst hinum
goðsagnakennda Lee Strasberg. Eftir það leit
hún aldrei um öxl og á þessum fyrra hluta ferils síns uppskar hún
sjö tilnefningar til Óskarsverðlauna og hlaut
tvenn, þau fyrri árið 1972 fyrir leik sinn í
myndinni Klute þar sem hún lék á móti Don-
ald Sutherland í leikstjórn Alan J. Pakula og
þau seinni sjö árum síðar fyrir leik sinn í
Coming Home. Þar lék Fonda konu sem
berst gegn veru Bandaríkjahers í Víetnam eft-
ir að maðurinn hennar kemur heim lamaður.
Efni myndarinnar var Fonda hugleikið enda
var hún mjög hávær mótmælandi gegn Ví-
etnamstríðinu.
Jane Fonda var þó meira til lista lagt en bara
að leika því hún varð hálfgert tákn níunda
áratugsins eftir að hún gaf út bókina The
Jane Fonda Workout Book. Hún segist í dag
sjá mikið eftir þessu tímabili og kallar það
sína mestu niðurlægingu.
Fleiri úr Fonda-fjölskyldunni hafa lagt kvik-
myndirnar fyrir sig með ágætis árangri og
nægir þar að nefna bróður hennar Peter
Fonda og frænkuna Bridget Fonda.
EKKI MISSA AF...
Sideways á DVD. Það er að segja ef
þú hefur ekki þegar séð hana. Það
er óvenjumikið í handrit myndar-
innar spunnið og það eru fyrst og
fremst kostuleg
samtöl sem
keyra myndina
áfram en ekki
spillir fyrir fanta-
góð frammi-
staða allra aðal-
leikaranna. Það er einhver óræð
snilld fólgin í því að geta gert bráð-
skemmtilega gamanmynd um tvo
einstaklega óaðlaðandi menn sem
eiga varla skilinn snefil af samúð
áhorfenda en Paul Giamatti og
Thomas Haden Church fara hins
vegar létt með að gæða leppalúð-
ana sem myndin snýst um lífi.
Sideways er gullmoli sem gleymist
seint.
Komin aftur eftir fimmtán ára hlé
Náðu
þínum hlut
í ferðaveltu
sumarsins
Sérblað u
m
Norðurla
nd
31. maí
Þann 31. maí fylgir
Fréttablaðinu blað um
Norðurland og þá
fjölbreyttu ferðamögu-
leika sem þar bjóðast.
Þeir sem vilja auglýsa
í þessu blaði er bent
á að hafa samband við
Hinrik Fjeldsted
í síma 515 7592 eða
hinrik@frettabladid.is
Kvikmynd Dags Kára,
Voksne Mennesker, verður
frumsýnd í kvöld. Myndin
var sýnd í Un Certain Reg-
ard-flokknum á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes.
Það þarf ekki að hafa mörg
orð um það hversu mikill heiður
slíkt er fyrir ungan, íslenskan
leikstjóra og myndin fékk glimr-
andi viðtökur áhorfenda á frum-
sýningunni í Cannes. Voksne
mennesker hefur fengið mis-
jafna dóma gagnrýnenda en Berl-
ingske Tidende segir að annað
hvort elski fólk hana eða hati.
Voksne Mennesker er önnur
mynd Dags Kára en hann gerði
hina rómuðu mynd Nóa albínóa
sem fór sigurför um Evrópu.
Dagur Kári segist ekki kunna
við það að hafa einhvern einn
söguþráð.
Hann reynir að fá sem mest af
hugmyndum og setja þær síðan
saman. Þetta kemur heim og
saman við Voksne Mennesker
þar sem úir og grúir af skraut-
legum persónum.
Engu að síður er ein aðalper-
sóna sem leiðir myndina áfram.
Líkt og Nói er Daniel heldur
óvenjulegur drengur. Hann er
graffítílistamaður með allt á
hælunum.
Öll yfirvöld eru á eftir honum
en svo virðist sem Daniel lifi í
einhverjum öðrum heimi, sé á
annarri bylgjulengd. Þetta
breytist þó allt þegar hann
kynnist bakarastelpunni Franc,
sem nýlega hefur verið rekin úr
vinnunni. Saman hitta þau
margvíslegar persónur sem á
einn eða annan hátt gera Daniel
það ljóst að hann þarf að taka
ákvörðun um lífið sitt. Undir-
tónninn í myndinni eru mann-
eskjurnar sem passa ekki inn í
fjöldann
Það er Jakob Cedergren sem
leikur graffítílistamanninn
Daniel. Cedergren ætti að vera
Íslendingum að góðu kunnur en
hann hefur leikið í Erninum,
sem sýndur var við miklar vin-
sældir hérlendis, og Nikolaj og
Julie. Nicolas Bro, sem leikur
besta vin Daniels, Morfar, lék í
Krónikunni.
Þá leikur Nikolaj Kopernikus
einnig í myndinni en hann lék í
einni vinsælustu mynd Dana
fyrr og síðar, Kongekabale. ■
JANE FONDA SEM BARBARELLA Á
sjöunda og áttunda áratugnum varð Jane
Fonda kyntákn sinnar kynslóðar og var á
dögunum valin ein af 100 kynþokkafyllstu
konum kvikmyndanna.
Breskar glæpamyndir hafa
lengi átt upp á pallborðið hjá ís-
lenskum kvikmyndahúsagestum.
Vinsældir Lock, Stock & Two
Smoking Barrels, Snatch og Sexy
Beast eru ágætis sönnun þess. Það
má því búast við því að kvikmynd-
in Layer Cake komi til með að
njóta mikillar hylli enda er henni
leikstýrt af Matthew Vaughn, sem
framleiddi einmitt Lock, Stock...
og Snatch. Reyndar er þetta
fyrsta myndin sem hann leikstýr-
ir en hún hefur engu að síður
verið að fá fína dóma erlendis.
Myndin segir frá nafnlausri
hetju sem lítur út eins og hver
annar sölumaður í heiðarlegum
rekstri. Hann klæðist fínum
jakkafötum og gengur um með
skjalatösku. Það sem aðskilur
hann frá hinum venjulega skrif-
stofumanni er að hann verslar
með kókaín og alsælutöflur. Við-
skiptin hafa blómstrað að undan-
förnu og hetjan sér fyrir sér að
eitt verk í viðbót komi til með að
sjá honum farborða það sem eftir
er. Það verkefni á að vera einfalt
og byggist á því að finna útúrdóp-
aða dóttur glæpaforingjans Eddie
Temple. Þar að auki þarf hann að
finna milligöngumann sem gæti
keypt fíkniefni af heldur brjáluð-
um innflytjenda sem kallar sig
The Duke. Þetta ætti að vera ein-
falt ef ekki væri fyrir serbneskan
herstjóra og fullt af aumingjum
sem gera í því að þvælast fyrir
honum.
Það er Daniel Craig sem leikur
hetjuna en hann kom lengi vel til
greina sem næsti James Bond en
Craig lék meðal annars Alex West
í Lauru Croft-myndinni Tomb
Raider. Kenneth Graham leikur
The Duke en hann er um þessar
mundir að leika í Oliver Twist sem
Roman Polanski er að gera.
Þokkagyðjan Sienna Miller leikur
dótturina en hún er ein allra
heitasta leikkona Breta um þessar
mundir. Þess má svo til gamans
geta að Hafdís Huld syngur aðal-
lag myndarinnar ásamt hljóm-
sveit sinni, FC / Kahuna.
Glæpasaga af breskri ger›
DANIEL CRAIG Var lengi vel talinn mjög
líklegur til þess að hreppa hlutverk James
Bond.