Fréttablaðið - 31.05.2005, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 31.05.2005, Blaðsíða 43
Undanfarin ár hafafreknur almennt þótt mikil andlitsprýði en því er táningastjarnan Lindsay Lohan greinilega ekki sammála. Þegar hún sló fyrst í gegn sem barnastjarna var hún með eldrautt hár og fullt andlit af freknum. Núna eru freknurnar hins vegar horfnar og telja menn að hún hafi farið í sérstaka geislaaðgerð til að losna við þær. Britney Spears hefur losað sig viðeinn af hundunum sínum, Lucky, vegna þess að hvuttinn hvumpni vildi ekki hætta að bíta eiginmann hennar Kevin Federline. Svo virðist sem hundurinn hafi ekki getað tekið Kevin í sátt, sem endaði með því að Kevin setti hnefann í borðið. Britney tók þetta mjög nærri sér en veit að Lucky er í góðum höndum þar sem einn af aðstoðar- mönnum hennar fékk tíkina í fóstur. Leikarinn JakeGyllenhaal er sá allra heitasti í Hollywood í dag. O.C. stjarnan Mischa Barton er víst yfir sig hrifin af honum en hún hætti nýlega með kærastanum sínum til nokkurra ára, Brandon Davis. Mischa hefur hitt leikarann nokkrum sinnum og talar víst um hann öllum stundum. En Mischa er ekki sú eina sem hefur augastað á honum því ungpían Lindsay Lohan hefur einnig verið dugleg að tjá sig um aðdáun sína á Jake. Það lítur því út fyrir að Barton og Lohan þurfi að berjast um drenginn. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.