Fréttablaðið - 04.06.2005, Page 44

Fréttablaðið - 04.06.2005, Page 44
Finnbogi Pétursson var ekkinema átta ára þegar hannfór að fikta með rafmagn bak við luktar dyr heima í Nökkvavogi. Hann tengdi nagla við straumbreyti, straumbreyti við hátalara, og úr hátalaranum kom ægifagurt hljóð sem Finn- bogi kallar hjartslátt rafmagns- ins. Drengurinn fékk vitanlega rafstuð við fiktið og sjokk í kjöl- farið. Kom ekki nálægt rafmagni fyrr en mörgum árum síðar. „Allt sem ég geri í listinni er af- leiðing þessarar lífsreynslu og ég skynjaði að þarna lágu ókannaðar og spennandi brautir. Stuðið gerði að verkum að ég beið með frekari tilraunir þar til ég hafði hugrekki til en mörgum árum síðar hafði ég skilið hvaða fagri tónn þetta var: semsagt fimmtíu riða tónn raf- magnsins,“ segir Finnbogi dreym- inni röddu, enda enn að kynnast töfrum frumkraftanna. Tími tækifæra Það er margt að gerast í lífi Finn- boga þessa dagana. Verk hans Hringur var vígt í húsakynnum Orkuveitu Reykavíkur nú í maí og í tengslum við Listahátíð sýnir Finnbogi nýtt verk í vatnstönkun- um við Háteigsveg til 5. júní. Þann 18. júní verður svo afhjúpuð innsetning Finnboga við Vatns- fellsvirkjun og sjálfur hefur hann verið tilnefndur til Carnegie-list- verðlaunanna 2006, sem afhent verða í Noregi í lok september, auk þess sem hann var valinn til að taka þátt í Carnegie-sýning- unni sem ferðast milli höfuð- borga Norðurlanda í heilt ár og endar í Lundúnum. „Hlutir hafa tilhneigingu til að hlaðast upp á ákveðin móment og slíkt móment er núna hjá mér,“ segir Finnbogi sem vinnur verk sín einkum úr tónum sem hann varpar úr hátölurum á fleti sem mynda teikningar eða skúlptúra úr lofti. „Ég hef alltaf kallað mig myndlistarmann í stað hljóðlista- manns, enda ekkert sem mælir mót því að þessi tegund listar eigi heima í myndlist. Ég er ekki held- ur að finna þetta upp. Vatn hefur verið notað öldum saman til að sýna hljóðbylgjur; hringgárur myndast þegar steinn er látinn detta ofan í vatn og þannig haga hljóðbylgjur sér líka, eins og menn fyrri alda uppgötvuðu fyrir löngu,“ segir Finnbogi sem sjálf- ur byrjaði að gera tilraunir með vatn og vatnsgárur þegar hann frumsýndi Hringinn í Nýlista- safninu árið 1991, verk sem þótti nýstárlegt og íslenska þjóðin fjöl- mennti til að sjá. Dagdraumabylgjur Finnbogi segir vatn og rafmagn vinna fallega saman og að lista- verkin snúist líka um tímann. „Eftir að ég var sleginn út af rafmagnspúkanum, svo lítill búkur og brá auðvitað mikið, greiptist þessi fallegi raftónn í vitund mína. Eftir nám í myndlist var því eðli- legt framhald að byrja að vinna með þennan grunntón, en í dag tefli ég einnig saman lægri tónum og fæ frá hverju pari sterkari millibylgju. Þá tækni nota ég í verkinu sem í haust keppir til Carnegie-listverðlaunanna,“ segir Finnbogi en sú innsetning tilheyrir sömu fjölskyldu og innsetningin sem hann setti upp í Ásmundarsal árið 1993 og var keypt af austur- rískri barónessu. „Verkið nú verður minna í snið- um og í stað eins tóns nota ég tvo fimm til átta riða millitóna sem í raun eru pheta-bylgjur, þær sömu og finnast í svefnstigum manns- ins. Pheta-bylgjur eru fyrsta stig dáleiðslu, stundum kallað dag- draumaástand, eins og á við um þorra bílstjóra í umferðinni þegar þeir keyra vanabundna leið ann- ars hugar og vita ekki af tíma sín- um fyrr en á áfangastað.“ Líf listamannsins Á uppvaxtarárum Finnboga kom ekki til greina annað en að verða listamaður. „Ég fullyrti við kennara mína í barnaskóla, þegar þeir reyndu að beina mér á þær brautir að vera duglegur að læra, að ég hefði lítil not fyrir námið þar sem ég ætlaði í myndlistarskóla,“ segir Finnbogi sem alltaf hefur haft lifandi ímyndunarafl. „Ég á auðvelt með að fá hug- myndir, en maður þarf að gera meira en að hugsa. Það þarf að hrinda hlutunum í framkvæmd. Verk sem þessi eru dýr í uppsetn- ingu, en nú í fyrsta sinn fékk ég Burðarás til að styrkja mig fjár- hagslega til verksins við tankana og Orkuveitan lánaði mér vatnstank- ana. Fyrir vikið gat ég ráðið fólk til að vinna fyrir mig vissa hluti sem annars hefðu kannski verið ófull- komnari, tekið mun lengri tíma og sett fjölskylduna á hausinn,“ segir Finnbogi, en síðustu tvö ár hefur hlutskipti hans verið fátæki hug- sjónalistamaðurinn, þar sem hon- um var ekki úthlutað listamanns- launum á því tímabili. „Það væri brjálæðislega skemmtilegt að selja verkin, en hefði maður gróðasjónarmiðin eingöngu að leiðarljósi hefði ég aldrei farið þá leið að gera verk mín eins og raun ber vitni, því þau eru nánast vonlaus í sölu. Hins vegar hafa augu og eyru æ fleiri beinst að mér að undanförnu og í útlöndum er heill heimur listunn- enda sem safna innsetningum af ástríðu. Því er margt spennandi í farvatninu og margir sem fylgjast grannt með, en reynslan hefur kennt mér að halda logninu og ýfa ekki upp áhugann fyrr en eitthvað fast er í hendi,“ segir Finnbogi sem síðastliðin tvö ár hefur marg- sinnis fundið sig knúinn til að blaða í atvinnuauglýsingum dag- blaðanna. „Frá 1997 hef ég eingöngu unnið við myndlistina, en hafði áður unn- ið fulla vinnu meðfram listsköpun minni. Það er auðvitað frábært að hafa tækifæri til að sinna listinni áhyggjulaust, en líf listamanna er ekkert auðvelt þótt oftast sé það ótrúleg upplifun. Inn á milli koma tímabil streitu og svefnleysis vegna fjárhagsáhyggna og lista- verk sem þessi hafa lítið að segja við kassann í Bónus eða fataversl- unum barnanna. Sem betur fer sýnist mér þessir óvissuþættir á góðri leið með að hverfa með fyrir- tækjum eins og Burðarási sem kemur svo myndarlega að þessum styrk, og er vonandi það sem koma skal því ég er viss um að fyrirtæki sem leggja listamönnum lið og list- viðburðum fjármagn, fá það marg- falt til baka.“ Tilraunamennska List Finnboga má gjarnan líkja við tilraunamennsku, enda prófar hann oftar en ekki splunkunýjar leiðir og úrræði, eins og í vatns- tönkunum við Háteigsveg núna. „Þar nota ég eld í fyrsta skipti og hef lært að ætli maður að storka eðlisfræði þarf maður að beita ákveðnum aðferðum. Ég vil hafa stjórnina, láta vatn og eld haga sér samkvæmt mínum skipunum, en í vatnstönkunum tók eldurinn yfir- höndina og sló út margra mánaða vinnu, rétt viku fyrir opnunina. Í ljós kom að verkið varð betra með þessari óvæntu beitingu og miklu nær því konsepti sem ég hafði reynt að ná í áföngum, en tankarn- ir eru tveir og verkin tvö, þótt þau spili saman. Maður horfir á eldinn og heyrir í loftinu. Horfir á vatnið og heyrir í jörðinni. Ég varð því að sætta mig við vopnin slegin úr höndum mínum og taka gjöfinni fagnandi því það gerist ekki á hverjum degi að maður fái heila innsetningu gefins frá eldinum,“ segir Finnbogi brosmildur, sáttur við samvinnu frumkraftanna. 28 4. júní 2005 LAUGARDAGUR Þann 18. júní verða afhjúpuð ný verk Finnboga Péturssonar og Gjörninga- klúbbsins við Vatnsfellsvirkjun í Þjórsárdal, en verkin sigruðu í sam- keppni Landsvirkjunar. Í gegnum virkjunina rennur vatn sem býr til rafmagn á 50 riða tíðni, sem Finnbogi kallar hjartslátt raf- magns. Í verðlaunaverki Finnboga notar hann 20 metra löng göng sem vísa frá norðri til suðurs. Göngin eru manngeng í fjögurra metra lofthæð sem lækkar smám saman niður í tvo og hálfan metra, en aftast mjókkar rörið niður í hálfs metra breiðan gang, þar sem norðanvindurinn mun blása í gegnum göngin og senda 50 riða gnauð í gegnum orgelpípu. Það er sama tíðni og heyrist í spennum virkjunarinnar, en 50 riða tónn er lágstemmdur og inngreiptur í vitund Íslendinga þar sem öll rafmagnstæki í umhverfinu ganga á þeirri tíðni. Verkið virkar aðeins á Íslandi vegna spennutíðnar og er hugsað sem ljóð frá norðanvindinum til sunnanvinds- ins í hliðinu á milli átta. MYNDLISTARMAÐUR MEÐ MARGT Í GANGI Finnbogi Pétursson kallar sig myndlistarmann þótt mestmegnis vinni hann listaverk sín með tónum á mismunandi tíðnisviði, ásamt frumkröftunum eldi og vatni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA TAK TU ÞÁT T! Taktu þátt þú gætir unnið: Meet the fockers Lemony Snicket´s A Series Of Unfortunate Events • Meet the parents SE • Aðrar DVD myndir Kippur af Coke og margt fleira! D3 Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið HA HA HA HA HA! GÖNGIN við Vatnsfellsvirkjun í vinnslu HJARTSLÁTTUR RAFMAGNS Hlusta› á tímann Rafstu› í æsku opna›i vitund Finnboga Péturssonar myndlistarmanns fyrir ókönnu›um brautum listar- innar en allar götur sí›ar var drengurinn sta›rá›inn í a› gerast listama›ur a› ævistarfi. fiórdís Lilja Gunnarsdóttir átti samtal vi› Finnboga undir eldhnetti himins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.