Fréttablaðið - 04.06.2005, Page 47

Fréttablaðið - 04.06.2005, Page 47
LAUGARDAGUR 4. júní 2005 31 DSC-T7 & 512 MB minniskort Stafræn myndavél • 3x optical Carl Zeiss linsa • 5,1 milljón pixlar • 2,5" skjár 4.995 krónur á mánuði vaxtalaust* 59.940 krónur staðgreitt Sumartilboð í Sony Center 512 MB minniskort fylgir! *Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann. 512 MB minniskort að verðmæti 10.995,- fylgir með! DSC-S90 & 512 MB minniskort Stafræn myndavél • 3x optical Carl Zeiss linsa • 4,1 milljón pixlar • 2,5" skjár 3.495 krónur á mánuði vaxtalaust* 41.940 krónur staðgreitt DSC-P200 & 512MB minniskort Stafræn myndavél • 3x optical Carl Zeiss linsa • 7,2 milljón pixlar • 2" skjár 4.495 krónur á mánuði vaxtalaust* 53.940 krónur staðgreitt Ragnheiður Gröndal söngkona og gítaristinn í Hjálmum, Guðmundur Kristinn Jónsson, völdu þrjá ómissandi hluti. Ragnheiður Gröndal heillaði alla upp úr skónum á frumsýningu verksins Móðir mín, dóttir mín í Hafnarfjarðar- leikhúsinu 1. júní, en hún sér um tón- listina í leiksýningunni. Næsta verkefni Ragnheiðar er djasshátíð í Kaup- mannahöfn þar sem hún kemurfram með átta manna hljómsveit. Geisladiskasafnið náttúrulega, ég get ekki verið án þess. Ég hlusta alltaf á diska í bílnum og alltaf þegar ég er ekki að gera eitt- hvað annað. Flygillinn minn er mjög mikilvægur. Ég spila á hann á hverjum degi og sem á hann og æfi mig. Ég gæti ekki verið án hans. Laptop-tölvan, þar hef ég allar upplýsingar, email, skjöl og nótur. Svo er ég með mikil- væg upptökuforrit á tölvunni og önnur tónlistarforrit. Kiddi í Hjálmum, eða Guðmundur Kristinn Jónsson eins og hann heitir fullu nafni, er að spila með hljómsveit- inni á Nasa í kvöld og svo er stefnan tekin á G-festival í Færeyjum í júlí. Kiddi vinnur nú að kántríplötu í sam- starfi við Baggalút sem á að koma út fyrir verslunarmannahelgina. Fyrsta lagið, Settu brennivínið í mjólkurglasið vina, er komið í spilun og lofar góðu. Pítsa í kassa. Ég fæ mér alltaf eina pítsu á dag. Ég reyni að gera það á hverjum degi, það tekst nú ekki alltaf. Ég fékk til dæmis enga pítsu í Rússlandi þó að ég hafi leitað mikið. Derhúfan mín. Það er af því að ég er að verða sköllóttur, þá verð ég að vera með derhúfu. Geislaspilarinn minn Ég er búinn að prufa að kaupa Ipod og svona ný- tískudót en það gengur ekki. Ég sef með eyrnatólin í eyrunum og spilarann við hliðina á mér. Þá get ég hlustað á tvö lög í morgunsárið. RAGNHEIÐUR GRÖNDAL OG GUÐMUNDUR JÓNSSON ÓMISSANDI Minn góði æskuvinur, Finnur Lárusson stærðfræðingur í Kanada, hafði bein áhrif þegar hann átti þátt í því að ég valdi vísindin fram yfir viðskipti. Við Finnur kynntumst í upphafi skóla- göngu við Melaskólann og urðum bestu vinir. Sjálfur tók hann mjög ákveðna stefnu á vísindi í barnaskóla og ætlaði sér að verða líffræðingur, en tók stefnuna á stærðfræði eftir tólf ára aldurinn og hefur stundað síðan. Finnur lagði mikið upp úr bóklegu námi og taldi rétt að kunna skil á því sem ætlast var til, og þá alveg upp á tíu, en ekki 9,5. Sú einkunn þýddi ekki að 95 prósent væru rétt, heldur að fimm prósent væru vitlaus, sem var al- varlegt mál. Finnur minnti mig því reglulega á að við- eigandi væri að kunna skil á því sem maður tæki sér fyrir hendur að læra. Trúlega höfum við nú spanað þetta hvor upp í öðrum og Finnur segði sjálfsagt það sama um mig, en þessi mótun fór fram strax í fyrstu bekkjum grunnskólans. Við tókum upp á ýmsu saman, þar á meðal skrifuðum við greinar í Moggann um trúarbrögð og þróunarkenninguna, sem voru hvorki uppfullar af hógværð né umburðar- lyndi gagnvart trúarbrögðum og sögð- um nánast umbúðalaust að trúarbrögð væru birtingarmynd fáfræði, sem ýms- um þótti ekki sniðugt. Ég hef alltaf verið veikur fyrir viðskipt- um, ekki síst þegar ég var yngri, en Finnur sannfærði mig um að vísindi væru verðugri viðfangsefni, sem ég er ekki endilega viss um að sé rétt. Hann taldi aðra geta sinnt viðskiptum, og stuðlaði að því að ég valdi vísindin. Reyndar þurfti ekki mikinn sannfær- ingakraft til, ég var veikur fyrir vísind- um og hafði frá barnæsku haft gríðar- legan áhuga á veðrinu. Það kitlaði valdið að lyfta stóra steininum: að geta náð tökum á lofthjúpnum. Hins vegar hefur heimurinn breyst síð- an þá. Standi maður sæmilega sterkur í fræðum eins og lofthjúpsfræðum spretta upp viðskiptatækifæri. Þau tækifæri fá farveg í Reiknistofu í veður- fræði sem ég á hlut í og reyndar er það svo að Reiknistofan styður við vís- indin ekki síður en vísindin við hana, þannig að á endanum komu viðskiptin og fræðin saman. ÁHRIFAVALDAR HARALDUR ÓLAFSSON VEÐURFRÆÐINGUR Finnur vísa›i vísindaveginn Flygill og pítsa FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R FINNUR LÁRUS- SON stærðfræðingur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.