Fréttablaðið - 04.06.2005, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 04.06.2005, Blaðsíða 48
32 4. júní 2005 LAUGARDAGUR F æra má rök fyrir því í flest-um tilfellum að verðsam-keppni sé ríkjandi í miðbæ Reykjavíkur, sé tekið mið af verð- könnun Fréttablaðsins sem gerð var í vikunni. Kemur þar í ljós að verð á kaffidrykkjum er áþekkt meðal þeirra rúmlega 30 staða sem kannaðir voru en munurinn jókst þegar kom að heitum réttum eins og samlokum og súpum. Kannað var verð á ellefu vöru- tegundum. Þar á meðal voru fimm tegundir kaffidrykkja en úrval slíkra drykkja fer vaxandi á kaffi- stöðum borgarinnar og reyndar víða um land. Enn fremur var kannað verð á einfaldri samloku sem flestir staðirnir buðu upp á, sem og súpu dagsins sem einnig er víða í boði. Hellingur á útleið Fyrst er til þess að taka að hið gamla – og ekki svo mjög góða – könnukaffi eða uppáhellingur er víðast hvar á útleið og mjög mis- jafnt er þessa dagana hvað neyt- andinn fær í bollann þegar beðið er um venjulegt kaffi. Margir þeirra staða sem þátt tóku bjóða sínar eigin blöndur, sem geta ver- ið breytilegar dag frá degi. Eins er munur á hvernig kaffið er framreitt. Bollastærð getur verið misjöfn og á stöku stað fær við- komandi sinn eigin brúsa sem dugar auðveldlega í tvo til þrjá bolla. Algengast er að ein ábót fylgi með hverjum bolla en á því eru þó undantekningar. Séu kaffi- og tedrykkir teknir sér reyndist kaffihús Súfistans á efri hæð Máls og menningar dýr- ast í öllum flokkum nema einum. Reyndist það eini staðurinn sem seldi kaffibolla dýrar en 300 krón- ur og munaði þannig 110 krónum á Súfistanum og þeim þremur stöðum sem seldu bollann á 200 krónur. Almennt verð yfir línuna var 250 krónur. Verð var einnig svipað víðast þegar kom að capuccino, latte, espresso eða mocca. Einfaldur espresso var 150 krónum ódýrari á Cafe Rosenberg en á Galileo, þar sem verðið var 300 krónur. Capuccino fékkst á verði frá 250 til 340 og latte frá 250 til 350. Swiss mocca var dýrast á Súfistanum á 370 en ódýrast á Angelo aðeins ofar á Laugaveginum á 280 krónur. Ekki er kálið sopið Langflestir staðirnir í könnuninni buðu gestum sínum upp á léttmeti með kaffinu og var þá algengast að í boði væri súpa, samlokur eða í einhverjum tilfellum vel útilátn- ir hamborgarar. Var í könnuninni litið til þess að um snarl eða léttan hádegisverð væri að ræða og bjóða margir staðanna mun meira úrval af slíkum réttum og öðrum sem ekki eru teknir fyrir hér. Sex aðilar bjóða súpu á 490 krónur og fylgdi í öllum tilfellum brauð með. Dýrast reyndist súpan vera á 900 krónur á Svarta kaff- inu. Samlokur voru víða fáanlegar og miðaðist könnunin við hina klassísku með skinku og osti. Hún fékkst víða en munur var á hvort hún var framreidd köld, ristuð eða grilluð. Á stöku stað fylgdi salat og jafnvel skammtur af frönskum kartöflum með og minnst þrír staðir buðu þannig samlokur á tveimur eða þremur hæðum. Í þeim tilvikum sem margar tegundir af samlokum voru á matseðli miðast verðið við þá ódýrustu hverju sinni. Kaffihúsið Cultura í Alþjóða- húsinu reyndist bjóða dýrustu samlokuna, á 1.250 krónur, meðan Ömmukaffi á Lækjargötu bauð sams konar samloku á 250. Þó er stór munur á enda samloka Ömmukaffis köld og án meðlætis meðan samlokan á Cultura getur sannarlega kallast máltíð. Einna mest frávik reyndust þannig vera á verðlagningu á samlokum og eru aðrir staðir alls staðar þarna á milli. Aðeins tæpur helmingur stað- anna bauð upp á hamborgara og reyndust þeir ódýrastir á Prikinu á 700 krónur en tæpar 1.500 á Thorvaldsen. Sex staðir banna reykingar alfarið Reykingar reyndust alfarið bann- aðar á alls sex stöðum af þeim 33 sem kannaðir voru. Á öllum öðr- um var skýr skipting milli reyk- svæða og reyklausra. Hið reyk- lausa Segafredo á Lækjartorgi býður reykingafólki borð úti und- ir beru lofti og fylgir þá hlýtt teppi með kjósi menn að nota það. Höfðu nokkrir veitingamenn á orði að hugmyndir þingmanna um að banna alfarið allar reykingar á samkomustöðum væru út í hött enda væru nú þegar nokkrir reyk- lausir veitingastaðir til staðar. Þeim færi eðlilega fjölgandi í takt við eftirspurn en hún hefur ekki verið til staðar í þeim mæli sem þingmenn virðast halda að mati veitingamannanna. Sama verð úti og inni Lofsvert er að enginn þeirra staða sem könnunin tók til og bjóða gestum sínum aðstöðu undir beru lofti hefur hækkað verðskrá sína vegna þess, eins og algengt er er- lendis. Þar er venjan að greitt sé aukagjald fyrir þau forréttindi að sitja úti í sól og hita. Tveir veit- ingamenn sem rætt var við sögðu hugmyndina góðra gjalda verða en sökum þess hve fáa daga sé um að ræða þar sem slíkt sé mögulegt vegna veðurs ár hvert sé það ekki á dagskránni. Virk samkeppni Gróflega má segja að niðurstaðan bendi til að virk verðsamkeppni sé milli kaffi- og veitingahúsa í mið- bæ Reykjavíkur. Að Súfistanum undanskildum sker enginn einn staður sig úr hvað verð varðar. Þó ber að taka tillit til að Súfistinn er einnig í ýmsu tilliti bókasafn enda geta gestir þess blaðað í bókum og blöðum Máls og menningar meðan kaffið er sötrað. Samanburður milli kaffi- og veitingastaða verður aldrei með þeim hætti að allir sætti sig við. Hver og einn staður notar sér- stakt hráefni. Allmargir staðanna flytja til að mynda inn sínar eigin kaffibaunir eða kaffiblöndur og er úrvalið eðlilega mun meira á þeim stöðum en öðrum. Aðstaða og áherslur eru einnig mismun- andi og hver og einn staður hefur sína sérstöðu. albert@frettabladid.is LÍF EFTIR VETRARDVALANN Skólum er nú flestum lokið og þúsundir komnar í sumarfrí. Þá eykst til muna aðsókn á kaffihús í miðbæ Reykjavíkur, verðlag er víðast hvar skaplegt og ljóst að samkeppnin er rík. Rík ver›samkeppni í mi›bænum Ver›könnun Fréttabla›s- ins me›al 33 kaffista›a og veitingahúsa í mi›bæ Reykjavíkur lei›ir í ljós a› ver›samkeppni er rík- jandi. Æ fleiri reyna a› skapa sér sérstö›u me› sérinnflutningi á kaffi og vi›skiptavinir grei›a ekki hærra ver› kjósi fleir a› sitja undir beru lofti. Kaffi Cappucino Expresso Latte Swiss Te Súpa Samloka Gos Bjór Hamborgari Reykingar Mocca dagsins leyfðar Cultura 240 270 220 300 320 220 550 1250 220 600 1150 Já Kofi Tómasar frænda 250 280 220 280 300 250 490 450 250 550 Já Prikið 250 290 200 250 300 490 690 300 600 700 Já Ari í Ögri 250 300 250 350 250 890 490 250 600 1190 Já Kaffi Sólon 250 300 250 300 300 250 550 890 300 600 1150 Já Kaffitár 250 280 240 300 340 250 300 Nei Kaffihús Kökumeistarans 250 300 250 300 350 220 650 590 250 600 Nei Cafe Rosenberg 250 300 150 300 350 250 400 500 Já Hressó 250 290 250 290 350 250 1190 350 600 990 Já Ömmukaffi 220 260 250 300 300 600 250 190 Nei Apótekið 250 300 240 260 310 250 670 890 270 630 Já Kaffibrennslan 250 260 220 280 300 220 750 690 300 600 950 Já Póstbarinn 270 300 270 300 350 270 550 270 600 1190 Já Café Paris 250 300 250 300 320 250 580 550 250 650 Já Thorvaldsen 250 300 250 300 250 690 790 700 1490 Já Cozy 270 300 220 300 340 270 490 490 270 500 Já Cafe Victor 250 300 250 300 250 590 900 250 990 Já Galileo 270 320 300 320 320 650 270 700 Já Segafredo 290 220 310 340 270 290 250 600 Nei Kaffi Vín 250 280 200 280 330 250 550 350 250 500 890 Já Svarta Kaffið 250 300 250 300 350 250 900 800 250 500 Já Cafe 17 200 250 200 200 150 150 Nei Café Bakhúsið 200 300 200 330 300 200 590 350 200 600 Já Dillon 200 300 300 250 200 200 550 Já Tíu dropar 250 300 200 200 330 250 490 450 250 Já Te & Kaffi 250 260 200 270 320 250 650 490 650 Nei Angelo 250 270 240 290 280 250 650 1190 600 1190 Já Tuttugu og tveir 250 280 280 320 250 490 850 250 500 950 Já Pasta Basta 250 300 250 300 250 770 250 600 750 Já Kaffi Oliver 250 280 250 280 300 280 490 790 300 550 990 Já Kaffi Hljómalind 250 280 250 290 320 250 650 Nei Vegamót 220 270 240 280 300 200 490 690 250 600 1190 Já Súfistinn 310 340 290 350 370 310 510 480 280 Nei FRÉTTAB LAÐ IÐ /G VA Séu kaffi- og tedrykkir teknir sér reyndist kaffihús Súfistans á efri hæð Máls og menn- ingar dýrast í öllum flokk- um nema einum. ,, Reykingar reyndust alfarið bannaðar á alls sex stöðum af þeim 33 sem kannaðir voru. ,,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.