Fréttablaðið - 10.07.2005, Blaðsíða 4
4 10. júlí 2005 SUNNUDAGUR
Fyrirhuguð bygging háhýsa við sjávarsíðuna í Reykjavík:
fiétting bygg›ar kostar fórnir
SKIPULAGSMÁL „Við fögnum því að
fá aukna íbúabyggð í miðborgina,“
segir Einar Örn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags mið-
borgarinnar. „Það styrkir verslun
og þjónustu þegar íbúum fjölgar og
eflir miðborgina.“
Skipulagsráð Reykjavíkurborg-
ar hefur samþykkt að reist verði tvö
háhýsi í Skuggahverfi til viðbótar
þess sem nú er. Einnig stendur til að
byggja íbúðahúsnæði á mörkum
Barónsstígs og Hverfisgötu.
„Það er ergilegt að missa útsýnið
til sjávar en þétting byggðar kostar
auðvitað fórnir,“ segir Pétur Ara-
son, verslunarmaður og íbúi við
Laugaveg. Pétur segist fylgjandi
þéttingu byggðar og fagnar sérstak-
lega uppbyggingu við Hverfisgötu.
Hann sér þó nokkuð eftir sjávarút-
sýninu. „Líklega voru mistök í upp-
hafi að byggja hæstu húsin næst
sjónum,“ segir Pétur. „Ákvörðun
um það var þó tekin fyrir tíu til
fimmtán árum og lítið við því að
gera núna.“ - ht
Á HVANNADALSHNÚKI Hér ætla Lars og
Jonas að standa undir kvöld, 19. júní.
Sænskir fjallgöngumenn:
Ganga á tinda
Nor›urlanda
FJALLGANGA Sænsku fjallgöngu-
mennirnir Lars Carlsson og Jonas
Eklund ætla að ganga á hæstu fjallt-
inda Norðurlandanna á innan við
viku.
Gangan hefst á Kebnekaise
(2.114 metrar) í Svíþjóð á miðviku-
dag og lýkur á Hvannadalshnúki
(2.119 metrar) 19. júlí. Í millitíðinni
hafa þeir viðkomu á Halti (1.328
metrar) í Finnlandi, þá á Möllehöj
(170 metrar) í Danmörku og á Gald-
höpiggen (2.469 metrar) í Noregi.
Þegar toppi Hvannadalshnúks
verður náð hafa þeir félagar gengið
eitt hundrað kílómetra og ferðast
drjúgan spöl á bílum og flugvélum.
Icelandair og Hertz styrkja förina.
- bþs
GAMLA BÍLANAUSTSHÚSIÐ Mikið hefur
verið deilt um reitinn sem þessi bygging
vermdi.
250 íbúðir á Bílanaustreit:
Samkomulag
sagt rofi›
BORGARMÁL Borgarráð samþykkti í
vikunni að heimila að byggðar verði
allt að 250 íbúðir á svokölluðum
Bílanaustsreit við Borgartún. Mikl-
ar deilur hafa ríkt um svæðið en
íbúar þar voru afar ósáttir við
fyrstu áætlanir borgaráðs, sem
meðal annars gerðu ráð fyrir 12
hæða byggingu. Í framhaldinu var
gert samkomulag við íbúa sem ger-
ir ráð fyrir lægri byggingum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hafa hins vegar áhyggjur af því að
borgarráð ögri því samkomulagi
með því að leyfa byggingu 250
íbúða.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir
að í mesta lagi sé hægt að byggja
tvöhundruð íbúðir á svæðinu ef
halda eigi samkomulaginu við íbúa.
-jse
MENNTAMÁL
VESTMANNAEYJAR
VEÐRIÐ Í DAG
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
PÉTUR ARASON Verslunarmaður og
íbúi við Laugarveg segir að líklega
hafi verið gerð mistök þegar ákveðið
var að byggja háhýsi næst sjónum
fyrir tíu til fimmtán árum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Sauðárkrókur:
Mikil fjölgun á
heimavistinni
MENNTAMÁL Mikil eftirspurn er eftir
plássi á heimavistinni við Fjölbraut-
arskóla Norðurlands vestra á Sauð-
árkróki og verða íbúendur þar
fimmtungi fleiri en í fyrra eða 125
talsins. Þó fjölgar nemendum við
skólann ekki að sama skapi en útlit
er fyrir að þeir verði 420 á næsta
skólaári eða aðeins níu fleiri en í
fyrra.
Tvær nýjar deildir hefja starfsemi
á næsta skólaári, Vélstjórabraut og
Verknámsdeild rafiðna.
Jón F. Hjartarson skólameistari
segir einnig að skagfirska mennta-
stofnunin leggi mikinn metnað í
námskeiðið um hestamennsku sem
þar er í boði. -jse
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,90 66,22
114,37 114,93
78,45 78,89
10,52 10,59
9,96 10,01
8,33 8,38
0,59 0,59
94,98 95,54
GENGI GJALDMIÐLA 08.07.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,4653 +0,30%
HRAÐBRAUT ÚTSKRIFAR Mennta-
skólinn Hraðbraut útskrifaði í gær
fyrstu stúdenta í sögu skólans.
Nemendurnir sem útskrifuðust
voru 36 talsins og hófu nám sitt árið
2003. 140 nemendur hefja nám í
skólanum næsta haust.
ENDURBYGGJA LANDNÁMSBÆ
Herjólfsbæjarfélagið hefur kynnt
Vestmannaeyingum hugmyndir sín-
ar um að endurbyggja hluta Herj-
ólfsbæjar, Herjólfsbær er býli
fyrsta landnámsmannsins í Eyjum,
Herjólfs Bárðarsonar. Eyjafréttir.is
greindu frá.
Kaspíahaf:
Tugir hafa
drukkna›
ÍRAN, AP Rúmlega 32 einstaklingar
drukknuðu í Kaspíahafi þegar
þeir voru á sundi undan norður-
strönd Írans. Lík 32 einstaklinga
fundust á sjö stöðum á ströndinni
við Kaspíahaf á föstudag að sögn
þeirra sem skipulögðu hjálpar-
starf.
Hundruð sumarfrísgesta
drukkna í Kaspíahafi ár hvert.
Slökum sundhæfileikum og slæm-
um aðstæðum er kennt um. ■
BORGARSTJÓRN „Þetta er breyting
því langt er síðan fylgi Sjálfstæð-
isflokksins og R-listans hefur
mælst svo jafnt sem nú,“ segir
Ólafur Þ. Harðarson prófessor í
stjórnmálafræði.
Niðurstöður nýrrar
fylgiskönnunar benda
til þess að fylgi Sjálf-
stæðisflokksins og R-
listans sé nánast
jafnt. „Sjálfstæð-
isflokkurinn virt-
ist vera kominn
niður í um það bil
40 prósenta fylgi
í borginni
þannig að þetta
eru nokkur tíð-
indi,“ segir
Ólafur.
Um skýr-
ingar á vax-
andi fylgi
Sjálfstæðis -
flokksins í höf-
u ð b o r g i n n i
segir Ólafur
að ákveðinnar óánægju hafi gætt
með R-listann. „Nokkuð hefur
borið á deilum. R-listinn hefur
verið í vandræðum og flokkarnir
þrír, sem að honum standa, hafa
ekki ákveðið hvort þeir ætli að
bjóða sameiginlega fram enn
á ný undir merkjum R-
listans. Hins
vegar hefur
Sjálfstæðis-
flokkurinn
spilað út
n ý j u m
hlutum.
M e n n
h a f a
t e k i ð
e f t i r
n ý j u m
h u g -
m y n d u m
frá honum
um skipu-
lagsmál.“
Ólafur bend-
ir á að megin-
tilgangur R-lista
samstarfsins hafi í
upphafi verið að ógna
veldi Sjálfstæðisflokks-
ins í stjórn borgarinnar.
„Ef þeir ætla nú að
bjóða fram hver í
sínu lagi getur
Sjálfstæðis-
flokknum
n æ g t
46 til 47 prósenta fylgi til þess að
ná hreinum meirihluta. Ef fylgi
Sjálfstæðisflokksins færi sífellt
minnkandi væri sjálfsagt æ
minni ástæða fyrir flokkana í R-
listanum að halda áfram sam-
starfinu. Vaxandi fylgi Sjálfstæð-
isflokksins ætti þarafleiðandi að
auka líkurnar á áframhaldandi
samstarfi,“ segir Ólafur Þ. Harð-
arson.
Á ellefu ára valdatíma R-list-
ans í Reykjavíkurborg hefur
Sjálfstæðisflokkurinn aðeins í fá-
ein skipti mælst með meira fylgi
en hann í könnunum. Að líkindum
varð munurinn mestur í apríl
1996 þegar fylgi Sjálfstæðis-
flokksins mældist 54 prósent á
móti 46 prósenta fylgi R-listans.
R-listinn hefur í fáeinum fylgis-
könnunum náð allt að 10 pró-
sentustiga forskoti á Sjálfstæðis-
flokkinn í valdatíð sinni. Gallup
spurði til dæmis um ánægju
kjósenda með meirihluta víða um
land skömmu fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar 2002. Þá
vildu tæplega 59 prósent borgar-
búa áfram meirihluta R-listans
næsta kjörtímabil á eftir.
Viðræður um áframhaldandi
samstarf flokkanna sem standa
að R-listanum hafa ekki borið ár-
angur, en viðræðunefnd á vegum
þeirra kemur næst saman til
fundar á mánudag.
johannh@frettabladid.is
ÓLAFUR Þ. HARÐARSON PRÓFESSOR Í
STJÓRNMÁLAFRÆÐI: „Sjálfstæðisflokkurinn
virtist vera kominn niður í um það bil 40
prósenta fylgi í borginni þannig að þetta
eru nokkur tíðindi.“
46 prósenta fylgi gæti
fært lista meirihluta
Ólafur fi. Har›arson segir jafnt fylgi R-lista og Sjálfstæ›isflokksins í höfu›borg-
inni nokkur tí›indi. Ef R-lista flokkarnir bjó›a fram hver í sínu lagi getur Sjálf-
stæ›isflokki nægt 46 til 47 prósenta fylgi til a› ná meirihluta í borgarstjórn.