Fréttablaðið - 16.07.2005, Síða 24
HÁSTEFLINGAR
Í fornhandritunum er mikið
um að tvöfaldir samhljóðar
eins og nn, gg, rr, tt og ss séu
táknaðir með hásteflingum
sem eru lágir hástafir, t.d. N, G.
Hásteflingar voru algengir í
skrifum Rómverja en Íslend-
ingar nýttu sér þá á nýjan hátt
og létu þá tákna tvöfalda sam-
hljóða. Þessi tegund styttinga
er dæmigerð fyrir íslenska
stafsetningu á miðöldum.
MiscuN miskunn
aNan annan
þeSom þessum
beGia beggja
SKAMMSTAFANIR
Skammstafanir voru algengar
á tímum Rómverja sem og í ís-
lenskum handritum. Hver
stafur, eða rún, gat haft ótal-
margar þýðingar og staðið
fyrir öll föll og skar samheng-
ið úr um það.
b. borg, búar eða bróður
d. dróttinn, dómandi,
dagur, dóttir
s. sonur, svaraði eða
segir
Skammstöfunum fylgdu oft
ýmist punktur eða lárétt strik
sem sett var fyrir ofan stafinn
eða í gegnum hann, t.d.
„hann“, „maður“.
Til að tákna fleirtölu var
fyrsti stafur orðsins tvöfald-
aður í skammstöfuninni:
mm menn, manna eða
mönnum
kk konungar
Í lagatextum voru staðlaðir
lagafrasar mikið skamm-
stafaðir, til dæmis þýddi
t.f.b.s. ‘til fjörbaugssaka.’
Skammstafanir eru
mikið notaðar bæði í
SMS og MSN en þær eru oftast
enskar. Þær algengustu eru:
OMG oh my god
BTW by the way
LOL laughing out loud
ROFL rolling on the floor,
laughing
ASAP as soon as possible
CU see you (sjáumst)
BRB be right back
GN „góða nótt“
VS „við sjáumst“
Fyrir mörgum eru forn-
handritin ímynd hreins máls
en þar má samt sem áður finna
fjölda „slettna“ úr erlendum
málum, sérstaklega latínu. Oft
voru latneskar skammstafanir
notaðar í fornhandritunum,
ekki ósvipað enskum skamm-
stöfunum í SMS/MSN:
n non= eigi
l vel = eða
FELLT ÚR ORÐUM
Mjög algengt var að skrifa
einungis fyrsta og síðasta staf-
inn í orðum og tákna úrfelling-
una með striki fyrir ofan ann-
an stafinn:
gþ guð
gþe guði
Kgr konungur
Mm mönnum
Einnig var hægt að setja
stafi í hærra veldi, það er að
segja í yfirskrift, til að spara
pláss:
Ti til
va var
moþr mánuður
Skemmtilegar samsetning-
ar gátu þá litið dagsins ljós, til
dæmis:
drótteN drottinn
aNr annar
Yngsta GSM-kynslóðin
kannast við styttingar á
borð við THX, „takk“, þar sem
fellt er úr miðju orðsins. Önn-
ur dæmi um úrfellingar eru e-
ð fyrir ‘eitthvað’ og e-n fyrir
‘einhvern’ en að öðru leyti er
þessi tegund styttinga ekki
mikið notuð í SMS/MSN heldur
eru skammstafanir notaðar
meira. Hér er sóknarfæri fyrir
GSM-notendur og er hægt að
ímynda sér eitthvað á borð við:
KæI kærasti
KæAn kærastan
Skl skóli, skólanum o.s.frv.
NASALSTRIK
Ein algengasta styttingaleiðin
voru svokölluð nasalstrik. Í
stað þess að skrifa stafina m og
n fullum fetum voru sett strik
fyrir ofan stafinn á undan:
Ollo öllum
Í stað -ng var því stundum
skrifað g, t.d. tgl ‘tungl’. Fyrst
í stað táknaði nasalstrikið m
en síðar n og með tímanum
stóð það fyrir meðfylgjandi
sérhljóða að auki.
BÖND
Bönd (eintala: band) kallast
ýmis tákn sem stóðu fyrir tvo
stafi, oftast sérhljóða og sam-
hljóða, t.d. -ar, -er/-ir, – us og -
ra. Ef orð innihélt runu sem
þessar, t.d. fleirtöluendinguna
-ar, var einfaldlega hægt að
sleppa þeim og setja táknið
fyrir ofan stafinn á undan eða
eftir.
Eitt þessara tákna líktist
tölustafnum 2 á hlið en það var
sett í yfirskrift til að tákna -ur:
sp~ðe ‘spurði
Nútímamenn nota gjarna &
fyrir ‘og’ en forfeður okkar
táknuðu orðið með tákni sem
líkist zetu (z).
Bandanotkun hélst allt
fram á 19. öld, en mest var um
bönd í uppskriftum af fornum
textum.
LÍMINGARSTAFIR
Í stað þess að fella niður stafi
úr orðum er líka hægt að líma
tvo stafi saman í einn. Hand-
ritaskrifarar létu stundum tvo
stafi renna saman til að flýta
fyrir, en þannig er æ orðið til
úr a og e. Algengustu líming-
arnar voru samsetningar af a
og fylgjandi samhljóða, t.d. an,
af og ar.
Broskarlar og svipuð
tákn eru mikið notaðir í
MSN/SMS. Í nýju símaskránni
er að finna lista yfir sms orða-
forða þar sem meirihlutinn er
einhvers konar broskarlar, t.d.:
:-@ öskrar
:-)) mjög glaður
:-C niðurdreginn
Í fornhandritununum voru
ekki notuð tákn fyrir heil orð
eða hugmyndir, eins og
SMS/MSN-málið gerir með
broskörlunum, þó má finna
hliðstæður í notkun merkisins
sem stóð fyrir ‘kross’. Það
sést í samsetningum á borð við
marc ‘krossmark’.
Heimildir:
Hreinn Benediktsson, 1965.
Early Icelandic script, í
Íslensk handrit. Reykjavík:
Handritastofnun.
Handritin heima, vefsíða um
íslensk handrit, unnin af
Laufeyju Guðnadóttur
og Soffíu Guðnýju
Guðmundsdóttur.
Vefsóð: http://am.hi.is/
handritinheima/index.html
24 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Or›alag og styttingar ‡miss konar í SMS-skilabo›um og á MSN fá hárin til a› rísa á
mörgum spekingnum. fia› ver›ur jú a› var›veita ástkæra, ylh‡ra tungumáli› sem hefur
fylgt okkur frá landnámi. Færri vita hins vegar a› styttingar voru mjög algengar í
skrifum forfe›ra okkar og komst Rósa Sign‡ Gísladóttir a› flví a› fornhandritin og
SMS/MSN-máli› eiga margt sameiginlegt.
BÖND OG STYTTINGAR Hringur 1. N hásteflingur, „einne“ 2. band fyrir
–vi með q (k), „quisl“ 3. band fyrir –er, „hverr“ 4. ur/yr-band, „fyrr“ 5. og-
band 6. ar-band, „þar“ 7. band fyrir –ra, „fra“ 8. band fyrir –at, „þat“
9. nasalstrik, „heimilt“. 10. límingarstafur fyrir a og hásteflinginn N, „þann“.
Hin mikla notkun styttinga er einkennandi fyrir skrif Ís-lendinga á fyrri öldum,“ skrifaði málfræðingurinn Hreinn
Benediktsson í Early Icelandic Script árið 1965. Styttingar í
handritum voru sjaldséðar á 8., 9., og 10. öld en á 11. öld og
sérstaklega 12. öld urðu þær fleiri og fjölbreyttari. Handrita-
skrifarar notuðu ýmsar leiðir til að spara kálfskinnið og var
notkun styttinga nokkuð kerfisbundin. Sumar tegundir stytt-
inga má finna í ritum frá tímum Rómverja enda voru skrifar-
arnir undir áhrifum frá ritum á latínu og notuðu latínuletur.
„Styttingakerfi miðalda nær aftur í forneskju,“ skrifaði Hreinn,
en Íslendingar þróuðu einnig með sér nýjar leiðir til að spara
tíma og skinn.
Samkvæmt könnun Þorbjörns Broddason-ar, prófessors í félagsfræði við HÍ, jókst
farsímanotkun tíu til sextán ára barna úr
þremur prósentum árið 1997 í 90 prósent
árið 2003. Þessi sprengja í notkun far-
síma helst í hendur við vinsældir SMS-
skilaboða. Yngsta farsímakynslóðin
vandist SMS/MSN-styttingunum frá
byrjun og notar þær óspart, en fólk yfir
tvítugu notar þær minna. Oftast nær er
um enskar skammstafanir að ræða
sem eru fengnar að láni úr erlendum
SMS/MSN-hefðum. Í nýrri símaskrá
Símans má sjá lista yfir farsímaorða-
forða sem bendir til þess að notkun
styttinga í SMS sé mikil.
STYTTING FYRIR „MÖNNUM“ MEÐ STRIKI.
konungar & konur
MSN MESSENGER er forrit sem
gerir manni kleift að spjalla við
vini og kunningja á netinu. MSN-
spjall gengur hraðar fyrir sig en
spjall um SMS og því er
meira um styttingar
í MSN. Einnig er
auðveldara að nota
broskarla og önnur
merki í MSN.
M
YN
D
: S
TO
FN
U
N
Á
R
N
A
M
AG
N
Ú
SS
O
N
AR
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
AD
Ó
TT
IR