Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 7
6 6. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Áhöfnin á Ársæli stímdi í næstu höfn með Svölu í eftirdragi:
Skútan var a› mestu komin í kaf
BJÖRGUN „Það var ekki annað að
gera en að fara með hana í næstu
höfn,“ segir Finnbogi Ólafsson,
stýrimaður á Ársæli, sem dró
skútuna Svölu til lands. Í fyrrinótt
maraði skútan að mestu í kafi og
brá áhöfnin á Ársæli á það ráð að
koma henni til hafnar í Þorláks-
höfn. Þangað voru Ársæll og
Svala komin um klukkan þrjú í
fyrrinótt.
Að sögn stýrimanns stóð stefni
skútunnar upp í loft þegar þeir
voru við Vestmannaeyjar en skút-
an er þannig hönnuð að hún er
ósökkvandi. Við athugun kom í
ljós að ekkert gat var á skútunni.
Líklegast er talið að hún hafi tekið
inn á sig sjó þar sem hún var mun
léttari að framan en venja er til
eftir að mastrið brotnaði af henni
í fyrradag.
Garðar Jóhannsson, einn eig-
enda Svölu, segir trygginga-
félagið vera að skoða skútuna, en
hann telur flest tæki hennar ónýt.
- jse
Suðurnes:
Ekki verkfall
á ljósanótt
KJARAMÁL Starfsmannafélag
Suðurnesja fer ekki í verkfall í
þessum mánuði og því verða
áreiðanlega ljós á Ljósanótt í ár.
Starfsmannafélagið vill leiðrétt-
ingar á nýju starfsmati sem gildir
í kjarasamningi félagsins.
Starfsmenn félagsins og launa-
nefndar sveitarfélaga nota helg-
ina til að fara yfir starfsmatskerf-
ið og funda svo á þriðjudaginn. Að
sögn Ragnars Arnar Ragnarsson-
ar, formanns Starfsmannafélags-
ins, eru menn vongóðir um að ná
saman. Félagsmenn eru ósáttir
við að um fimmtungur þeirra
lækkaði í launaflokki samkvæmt
nýja starfsmatskerfinu. - oá
Eiga Íslendingar að kaupa
Tívolí næst?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að fljúga milli
Íslands og Bretlands með
British Airways?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
43%
57%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLVELTA VIÐ VÍK Bíll valt í ná-
grenni Víkur í Mýrdal í gær-
morgun en engin slys urðu á
fólki. Ökumaður missti bifreið-
ina út af veginum svo hún valt
og fór á hlið. Bíllinn skemmdist
ekki mikið.
SKEMMTIFERÐASKIP Hjart-
veikur maður var sóttur um
borð í skemmtiferðaskipið
Bremen sem kom að Grundar-
fjarðarhöfn í gærmorgun. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var köll-
uð út um hálf níu og sótti hún
manninn í sjúkrabíl við Vega-
mót. Maðurinn, sem er erlendur
ferðamaður, var fluttur á Land-
spítalann.
Áætlun gegn hryðjuverkum:
Helstu
breytingar
Nýjar ástæður verða gildar til að
senda fólk frá Bretlandi eða neita að
hleypa því inn í landið. Slíkar ástæð-
ur eru meðal annars að hvetja til hat-
urs, eða hvetja til eða réttlæta vopn-
uð átök vegna trúarásetnings. Þetta
vald verður afturvirkt og nær til þess
sem þegar hefur verið sagt.
Samningur verður gerður við önnur
ríki, svo sem Jórdaníu, til að tryggja
að fólk geti verið sent til uppruna-
lands án þess að eiga það á hættu
að verða fyrir pyntingum eða illri
meðferð.
Lögum um mannréttindi verður
breytt, ef nauðsyn ber til, til að ekki
verði lagalegar forsendur gegn því að
ný lög um brottvísun taki gildi.
Innanríkisráðherra fær vald til að
ákveða hvort hver sá útlendingur
sem tengist bókabúðum, miðstöð-
um, samtökum eða vefsíðum sem
eru á skrá sem tengd öfgahópum,
verði sendur úr landi.
Að réttlæta eða lofsyngja hryðjuverk
verður ólöglegt.
Flóttamönnum verður sjálfkrafa neit-
að um hæli í Bretlandi, ef þeir hafa
einhver tengsl við hryðjuverk hvar
sem er í heiminum.
Mannréttindi víkja fyrir örygginu
Tony Blair tilkynnti í gær a› hann væri tilbúinn a› breyta lögum um mannréttindi til a› breg›ast vi›
breyttum a›stæ›um í Bretlandi vegna hry›juverkaógnarinnar. Hertar a›ger›ir voru bo›a›ar vi› a›
senda fólk úr landi e›a neita flví um a›gang, lofsyngi fla› e›a hvetti til hry›juverka.
LONDON Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, tilkynnti í gær að
hann væri tilbúinn að breyta lögum
um mannréttindi, standi þau í vegi
fyrir því að ríkisvaldið geti sent út-
lendinga úr landi hvetji þeir til
hryðjuverka. Bresk stjórnvöld geta
þegar neitað þeim um aðgang, eða
sent úr landi, sem teljast ógn við
þjóðaröryggi. Sumar þessar breyt-
ingar kalla einungis á reglugerðar-
breytingar. Blair sagði möguleika á
því að þingmenn yrðu kallaðir
snemma til þings úr sumarfríi til að
ræða lagabreytingar.
Samkvæmt nýrri áætlun til að
berjast gegn hryðjuverkum, sem
Blair kynnti í gær, verður ólöglegt
að réttlæta eða lofsyngja hryðju-
verk. Þá verður hverjum þeim sem
á einhvern hátt tengjast hryðju-
verkum hafnað um hæli í Bretlandi.
Einnig á að kanna hvernig hægt
verður að loka moskum sem hvetja
til ofbeldisverka, og senda fólk úr
landi sem tengist ákveðnum bóka-
búðum eða vefsíðum. Charles Kenn-
edy, leiðtogi Frjálslyndra demó-
krata í Bretlandi, sagði að þessar
tvær síðastnefndur tillögur yrðu til
þess að auka spennu í landinu.
Kennedy sagði einnig að samvinna
stjórnmálaflokka til að berjast gegn
hryðjuverkum væri í hættu vegna
þessara tillagna Blairs. David
Davies, skuggaráðherra innanríkis-
mála fyrir Íhaldsflokkinn, sagðist
að mestu leyti ánægður með tillög-
urnar, sem sneru að því að senda
fólk úr landi eða meina því aðgang.
Hann sagði þetta vera tillögur sem
samræmdust því sem Íhaldsflokk-
urinn hefur kallað eftir. Davies
fannst þó sá tími sem gefinn er, einn
mánuður, vera of stuttur.
Ráð múslima í Bretlandi sagði
þessar breytingar vinna á móti til-
gangi sínum, sérstaklega ákvörð-
unin um að banna Hibz ut-Tahrir
samtökin. „Ef einhver samtök eru
talin brjóta gegn lögum okkar
eiga slík mál að fara í gegnum
réttarkerfið en ekki neyða sam-
tökin til þess að starfa í felum.
Það lítur út fyrir að með því að
banna samtökin séum við að grafa
undan lýðræðislegum gildum
okkar,“ sagði Inayat Bunglawala,
talsmaður Ráðsins.
svanborg@frettabladid
BÖNNIN BOÐUÐ Á síðasta blaðamannafundi sínum fyrir sumarfrí útlistaði Tony Blair hertar aðgerðir gegn hryðjuverkum í Bretlandi.
M
YN
D
/A
P
Viðbrögð við áætlunum Blairs:
Vara› vi› n‡ju lögunum
DR. IMRAN WAHEED Waheed er talsmaður samtakanna Hizb ut-Tahir, sem bresk stjórn-
völd hafa ákveðið að banna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
HRYÐJUVERK Talsmenn mannréttinda-
hópa í Bretlandi tóku í gær ekki vel
í tilkynningu Tonys Blair um hertar
aðgerðir gegn hryðjuverkum.
Shami Chakrabarti, fram-
kvæmdastjóri mannréttindahóps-
ins Liberty, sagði ómögulegt að
samþykkja hugmyndir Blairs um
að senda fólk til ríkja þar sem það
ætti á hættu að verða pyntað. Þá
sagði hann hættulegt af Blair að
gera það að lögbroti að réttlæta eða
tala vel um hryðjuverk, hvar sem
er í heiminum. Eric Metcalfe,
mannréttindahópnum Justice,
sagði að í frjálsu samfélagi væri
ekki barist gegn hryðjuverka-
mönnum með því að senda þá úr
landi, heldur ætti að ákæra þá í
Bretlandi.
Iqbal Sacranie, framkvæmda-
stjóri Ráðs múslima í Bretlandi,
segir að þrátt fyrir að samtökin
Hizb ut-Tahrir séu ekki sammála
Ráðinu um hvernig skuli taka þátt í
breskum stjórnmálum, sé ekki rétta
leiðin að banna samtökin. Ráð
múslima telji Hizb ut-Tahrir í Bret-
landi friðsamleg samtök.
Jákvæðustu viðbrögðin komu
frá talsmönnum Íhaldsflokksins og
Ken Jones, formanni félags lög-
regluforingja, sem sagði stjórnvöld
hafa verið í samstarfi við lögregl-
una um þessar hugmyndir og hann
væri þeim sammála. - ss
SVALA KOMIN Á LAND Svala var tekin upp á land í gær og ástand hennar kannað.
M
YN
D
/S
U
N
N
LE
N
SK
A
Tekin á 118 kílómetra hraða:
Reyndi a› fl‡ja
lögregluna
LÖGREGLUFRÉTTIR Lögreglan í
Borgarnesi handtók tæplega tví-
tuga stúlku eftir að hún reyndi
að stinga af þegar lögreglumenn
hugðust stöðva hana fyrir of
hraðan akstur. Bíll stúlkunnar
mældist á 118 kílómetra hraða
og lauk eftirför lögreglu ekki
fyrr en eftir 27 kílómetra akst-
ur. Stúlkan hafði þá læst bíl
sínum og þurfti lögregla að
brjóta rúðu til að komast að
henni. Hún reyndist með smá-
vægilegt magn fíkniefna í bíln-
um og er grunuð um akstur
undir áhrifum örvandi lyfja.
-rsg