Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 9
1Hversu hár er Hvannadalshnúkur?
2Hvaða lið leika til úrslita í bikar-keppni karla í fótbolta?
3Hversu lengi voru Bjarki og Guð-brandur að ganga hringinn um landið?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 6. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Milljónatjón þegar háspennustrengur í Hallsteinsdal var sagaður í sundur:
Íhuga a› kæra skemmdarverk
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Egils-
stöðum rannsakar skemmdar-
verk sem unnin voru á há-
spennustreng sem verið er að
leggja í Hallsteinsdal.
Steinar Frigðeirsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs hjá
RARIK, segir að einn leiðari í
háspennustrengnum hafi verið
sagaður í sundur og annar særð-
ur. „Hópur mótmælendanna í
Kárahnjúkum fékk inni á Vaði í
Skriðdal, þaðan sem háspennu-
strengurinn liggur. Það er mjög
líklegt að þetta sé þeirra verk.
Við erum að velta því fyrir
okkur hvort við kærum, því
þetta er tjón upp á nokkrar
milljónir,“ segir Steinar. Hann
telur að skorið hafi verið á
strenginn um verslunarmanna-
helgina, þá var ekki búið að
grafa hann í jörð og einungis
búið að sanda yfir hann. Streng-
urinn er ætlaður fyrir byggðina
í Reyðarfjörð en ekkert sérstak-
lega fyrir álverið, segir Steinar.
„Ég frétti af þessum rafstreng
fyrir tíu mínútum síðan. Við
höfum engan áhuga á einhverj-
um byggðarlínum og rafmagni
sveitanna á þessu svæði. Við
stundum ekki skemmdarverk,
það eru hins vegar Alcoa og
Impregilo sem það gera,“ sagði
Ólafur Páll Sigurðsson, tals-
maður mótmælenda á virkjana-
svæðinu. - rsg
Hersveit NATO í Afganistan:
Taka vi› a› ári
KABÚL, AP Alþjóðleg hersveit undir
stjórn NATO verður reiðubúin að
taka við stjórn öryggismála í
Afganistan á næsta ári, að sögn
Gerhard Back hershöfðingja. Við
það munu margir þeirra 17.600
bandarísku hermanna sem eru í
landinu verða fluttir til annarra
starfa.
Bandarísk stjórnvöld hafa lengi
hvatt NATO til að fjölga hermönn-
um sínum í Afganistan og að þeir
verði í meiri mæli fluttir til suður-
og austurhluta landsins, þar sem
átökin hafa verið mest. Enn er
óljóst hvort Bandaríkjamenn muni
halda sérstakri hersveit í Afganist-
an til að halda áfram leitinni að
Osama bin Laden, sem talinn er í
felum við landamæri Pakistan. ■
Í báðum vélum:
Lyftigeta á framskóflu 3.500 kg í fulla hæð.
Perkins 1104-44T. 86KW/117 hp.
Vinnuþyngd 8.500 kg.
Lyftigeta á framskóflu 3.000 kg í fulla hæð.
Perkins 1104-44T. 77KW / 105 hp.
Vinnuþyngd 8.800 kg.
Lyftigeta á gröfuarmi í fulla hæð á dipper enda 1.500 kg.
Mótor staðsettur þversum í miðju vélar undir ökumannshúsi.
Fullkomið jafnvægi vélar með mótor undir miðju húsi.
„Vökva Servo“ fyrir gröfuarm og mokstursarm.
„Boch Rexroth Hydrostatic transmission“ stiglaus skipting.
„Speed reduction“ stillanlegur ökuhraði óháður snúningshraða mótors.
„Inch pedal“ Skipting slær út við hemlun vélar.
Vökvahraðtengi fyrir framskóflu.
Brettagafflar á lyftaraplani.
Tregðulæsing fyrir fram- og afturdrif.
Liðstýrð traktorsgrafa VF- 9.23
Fjórhjólastýrð traktorsgrafa VF 10.33B
Traktorgröfur
Loftsæti fyrir ökumann.
Yfirstærð af rafgeymi og alternator.
Opnanleg framskófla með skera.
Gúmmíplattar undir stuðfótum.
Öryggisventill fyrir gröfuarm.
Lagnir fyrir brothamar og vökvabor.
Skotbóma, mesta grafdýpt 5.800 mm.
„Vökva Servo“ fyrir gröfuarm.
„Vökva Servo“ fyrir mokstursgálga.
4 stk. grafskóflur. 45 cm – 60 cm – 90c m – 130 cm.
– handsmíðaðar gæðavélar
Vélar og þjónusta hefja innflutning á frábærum vinnuvélum frá Venieri. Venieri er einn
virtasti framleiðandi vinnuvéla í Evrópu, ítalskt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir um 900 vélar
á ári. Vélarnar eru ekki settar saman í fjöldaframleiðslulínu heldur er hver og ein handsmíðuð
af sérþjálfuðum starfsmönnum. Venieri-vélarnar hafa reynst framúrskarandi við íslenskar
aðstæður og eru á mjög góðu verði.
Eigum Venieri-vélar á lager - komdu og kynntu þér þær!
LÆKNISFRÆÐI Inntaka vítamína eða
steinefna dregur ekki úr sýking-
um hjá eldra fólki sem býr í
heimahúsum, samkvæmt niður-
stöðum úr nýrri rannsókn sem
birt var í Breska læknablaðinu.
Einn af hverjum tíu eldri borg-
urum í Bretlandi þjáist af
vítamínskorti, samkvæmt frétt á
fréttavef BBC, sem getur orsakað
lélegt ónæmiskerfi og aukið
hættu á sýkingum.
Rannsóknin, sem gerð var á
vegum Háskólans í Aberdeen,
leiddi í ljós að vítamín- og stein-
efnainntaka minnkaði ekki hætt-
una á sýkingum þeirra sem
bjuggu heima. Hins vegar átti
eftir að rannsaka hvort vítamín-
og steinefnainntaka hefði áhrif á
sýkingar eldri borgara á sjúkra-
stofnunum, þar sem sýkingar-
hætta er mun meiri. - sda
Ný rannsókn á vítamínum:
Stö›va ekki
s‡kingar
VÍTAMÍN Ný bresk rannsókn leiddi í ljós að
eldri borgurum stafar ekki minni hætta af
sýkingum þó þeir taki vítamín.
SKEMMDARVERK Í NÁGRENNI BÚÐA MÓT-
MÆLENDA Viðgerð á háspennustrengnum
mun kosta nokkrar milljónir.
Gistinætur í júní:
Fjölgar um
nær allt land
FERÐAÞJÓNUSTA Fjöldi gistinátta á
íslenskum hótelum jókst um
átta prósent í júní síðastliðnum
borið saman við síðasta ár.
Gistinóttum fjölgaði nær alls
staðar á landinu, einu undan-
tekningarnar eru Norðurland og
Suðurland þar sem nokkuð dró
úr aðsókn.
Aukningin í júní þýðir að
gistináttum fyrstu sex mánuði
ársins hefur fjölgað um fjögur
prósent samanborið við fyrstu
sex mánuði síðasta árs á landinu
öllu.
Þeim fækkar þó um heil tólf
prósent sem gista á Austurlandi
og jafnframt hefur fækkað um
fimm prósent á Suðurlandi.
Gistinóttum fjölgar í öllum öðr-
um landshlutum en þó mest á
Suðurnesjum, Vesturlandi og
Vestfjörðum. - aöe
FRAKKLAND, AP Mestu þurrkar í
Suður-Evrópu í áratugi eru farn-
ir að hafa veruleg áhrif á líf tug-
þúsunda manna.
Í Frakklandi eru í gildi tak-
markanir á vatnsnotkun í tveim-
ur þriðju hlutum landsins. Ár og
lækir í Frakklandi eru að þorna
upp og skógareldar eru daglegt
brauð.
Þurrkar sem herja á
landsmenn og ferðalanga í
Portúgal eru hinir mestu í sögu
landsins og hefur verið varað
við því að lokað verði fyrir vatn
í Algarve héraði. Tankbílar
flytja vatn daglega í afskekkt
héruð þar sem 53 þúsund manns
eru vatnslaus.
Á Spáni hefur ekki mælst
minni rigning í 65 ár og eru
vatnsból við það að þorna upp.
Endalok þessara þurrka eru
ekki í sjónmáli því spænska
veðurstofan hefur spáð áfram-
haldandi sólskini og allt að 40
stiga hita það sem eftir er ágúst-
mánaðar.
Skógareldar hafa geisað á
Spáni og fyrir nokkru fórust
ellefu slökkviliðsmenn við að
slökkva elda austur af Madríd
sem kviknuðu þegar fólk var að
grilla.
- sda
UPPTAKA SKÓGARELDA LEITAÐ
Slökkviliðsmenn rannsaka upptök skógar-
elda á Spáni. Skógareldar geisa víða í
Suður-Evrópu vegna mikilla hita og þurrka.
Veðurfræðingar sjá ekki fyrir endann á
þurrktíðinni og spá áfram um 40 stiga hita
og sól á Spáni.
Mestu þurrkar í Suður-Evrópu í áratugi hafa mikil áhrif á líf fólks:
Tugflúsundir fljást af vatnsskorti
SPÁNN
RANNSÓKN HEITIÐ Á LÖGREGL-
UNNI Spænski innanríkisráðherr-
ann hefur heitið ítarlegri rann-
sókn á andláti 39 ára bónda sem
lést 24. júlí, en meint dánarorsök
er lögregluofbeldi. Sjö lögreglu-
mönnum hefur verið vikið frá
starfi í hálft ár vegna málsins.