Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 18
17LAUGARDAGUR 6. ágúst 2005
Bakkabræður einbeita sér
áfram að Bakkavör.
„Við hyggjumst alls ekki snúa
okkur að öðru en rekstri Bakkavar-
ar,“ segir Lýður Guðmundsson,
stjórnarformaður Exista, sem skrif-
aði undir samning um kaup á Lands-
síma Íslands í gær ásamt fleirum.
Auðvitað komi hann og Ágúst Guð-
mundsson að rekstrarákvörðunum
en þeir líti á kaupin sem fjárfest-
ingu eins og kaup Exista í öðrum
félögum.
Lýður segir að þessi viðskipti
muni ekki valda því að Exista haldi
að sér höndum í öðrum fjárfesting-
um. Næg verkefni séu fram undan
sem hann geti ekki tjáð sig um
núna.
Hann segir að hlut-
hafafundur í Síman-
um verði væntanlega
haldinn í byrjun sept-
ember næstkomandi.
Nákvæm tímasetning
fari eftir því hve
Samkeppniseftirlitið
sé fljótt að yfirfara
kaupsamninginn og
gefa grænt ljós. Á
hluthafafundinum
verði ný stjórn kjörin
og í kjölfarið sé hægt
að móta framtíðar-
stefnu fyrirtækisins í
samstarfi við stjórn-
endur og starfsfólk.
Að svo stöddu vilji hann ekki upp-
lýsa hvaða stefna verði mótuð. „Það
verður örugglega farið í framsókn,“
segir hann brosandi. - bg
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.515,81
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 642
Velta: 13.729 milljónir
+0,60%
MESTA LÆKKUN
Actavis 43,30 +0,93% ... Bakkavör
40,10 +0,5%... Burðarás 17,60 +0,00%... FL Group 14,70 +0,00% ...
Flaga 4,40 -1,57% ...HB Grandi 8,50 +0,00% ... Íslandsbanki 14,65 -
0,34% ... Jarðboranir 20,90 -0,48% ... KB banki 579,00 +0,70% ... Kög-
un 57,50 -0,52% ... Landsbankinn 21,90 -1,42% ... Marel 64,50 +8,40%
... SÍF 4,76 +0,63% ...Straumur 13,55 +1,88% ... Össur 87,00 +0,00%
Marel 8,40%
Og Vodafone 4,56%
Bakkavör 2,04%
Flaga -1,57%
Landsbankinn -1,42%
TM tryggingar -0,86%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Hluthafafundur Símans í september
Samson kaupir
í Bur›arási
Yfir átta milljarða viðskipti voru
með hlutabréf Burðaráss í gær.
Samherji seldi nær allan hlut sinn
í Burðarási fyrir tæpa fimm millj-
arða króna.
S a m s o n
G l o b a l
H o l d i n g ,
sem er í
eigu Björg-
ólfs Thors
Björgólfssonar, Björgólfs Guð-
mundssonar og Magnúsar Þor-
steinssonar, keypti stóran hlut af
Samherja eða um 3,5 prósent.
Eignarhlutur Samsons er nú um
22,5 prósent í Burðarási og er
félagið stærsti hluthafinn.
Burðarás mun á næstunni
renna inni í Landsbankann og
Straum. Samson er stærsti hlut-
hafinn í Landsbankanum og
heldur að samrunanum loknum
utan um 40 prósent eignarhlut í
bankanum. - eþa
Farflegum
easyJet fjölgar
Farþegum, sem flugu með breska
lággjaldaflugfélaginu easyJet í
júlí, fjölgaði um átján prósent á
milli ára. Alls flutti félagið 2,8
milljónir farþega. Til samanburð-
ar voru farþegar hjá aðalkeppi-
nautinum Ryanair um 3,2 milljón-
ir og fjölgaði um 29 prósent miðað
við júlí 2004.
Velta easyJet á tólf mánaða
tímabili jókst um nærri 23 pró-
sent, sem er svipaður vöxtur og
farþegaaukningin á sama tíma.
Sætanýting var nokkuð yfir 88
prósent í júlí og hækkaði örlítið
frá sama mánuði í fyrra.
Hlutabréf easyJet hækkuðu
eftir fréttirnar og stóðu í 258
pensum á hlut um hádegisbil. FL
Group er næst stærsti hluthafinn.
- eþa
Innflutningur
aldrei meiri
Í júlí voru fluttar inn vörur fyrir
24 milljarða króna og hefur vöru-
innflutningur aldrei verið meiri en
síðustu þrjá mánuði. Af þeim mán-
uðum var innflutningur mestur í
júní eða 26 milljarðar. Virði inn-
flutnings síðustu þriggja mánaða
er tæplega
þ r i ð j u n g i
meira en á
sama tíma í
fyrra. Megin-
skýring aukins
innflutnings er
meiri innflutningur bifreiða, fjár-
festingarvöru og eldsneytis og
olíu. Að magni er mesta aukningin
í innflutningi bifreiða sem var um
sjötíu prósent meiri á fyrri helm-
ingi þessa árs samanborið við
sama tímabil í fyrra. Verðmæti
eldsneytis og olía hefur aukist
verulega, bæði vegna hærra verðs
en einnig er um magnaukningu að
ræða. Tölur um innflutning eru
bráðabirgðatölur sem byggja á
innheimtu virðisaukaskatts af inn-
fluttum vörum í mánuðinum. - dh
KAUPSAMNINGURINN HANDSALAÐUR Eftir undirskrift kaupsamnings-
ins tókust Geir Haarde fjármálaráðherra og Lýður Guðmundsson í hend-
ur. Á myndinni eru einnig Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Exista,
til vinstri og Ágúst Guðmundsson, stjórnarmaður Exista, til hægri.