Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 23
22 6. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Tuttugu nemendur hafa þegar
verið innritaðir í nýja skólann í
Norðlingaholti sem tekur til
starfa í haust. Sif Vígþórsdóttir
skólastýra gerir þó ráð fyrir að
sextíu börn nemi við skólann á
fyrstu önn.
„Við byrjum á því að kenna
fyrsta til sjötta bekk og svo
bætum við einum árgangi við ár-
lega uns við verðum komin með
tíunda bekk en þá verður hæsta
menntastigi náð hér í Norðlinga-
holti,“ segir Sif og brosir við.
Ekki verða farnar troðnar
slóðir við mótun skólastarfsins
því Sif er með ýmsar áherslur
sem ekki hafa rutt sér til rúms
hér á landi.
„Við lítum ekki svo á að for-
eldrar þurfi alltaf að hafa frum-
kvæði að því að leita til okkar
kennara og skólayfirvalda, við
eigum líka að leita til þeirra og
því munu kennarar skólans byrja
á því fyrsta skóladaginn að fara
heim til foreldra og kynnast þeim
aðeins,“ segir skólastýran. Hún
segist vera að koma úr sveitini og
því megi Norðlingahyltingar eiga
von á áhrifum frá íslenskri
sveitamenningu í skólastarfi
skólans. „Við munum til dæmis
fara með nemendur um holt og
hæðir hér í grenndinni og gera þá
átthagavana hér við Norðlinga-
holt,“ útskýrir hún.
Það gustaði af starfsfólki skól-
ans sem vinnur hörðum höndum
að undirbúningi skólans. Skóla-
byggingin er ekki tilkomumikil
en fyrstu árin verða kennarar og
nemendur að gera sér að góðu
nokkra skála sem nýlega hafa
rutt úr vegi gömlu hesthúsunum
á Norðlingaholti. Hesthúsin eru
þó ekki með öllu farin því sjá má
háar rústir fyrir aftan skóla-
skálana.
„Það er alveg ljóst að fyrstu
árin verðum við að búa við ýmsar
breytingar og óvissu en við erum
undir það búin því þegar við leit-
uðum að starfsfólki vó það hátt
hjá umsækjendum ef þeir voru
með húmorinn í lagi og með hátt
óvissuþol,“ segir skólastýran og
hlær.
Gert er ráð fyrir því að þegar
skólinn verði fullmótaður verði
nemendur á bilinu þrjú til fjögur
hundruð.
Foreldrar teknir
í kennslustund
Sveitasamfélag í borginni
Búið er í sjötíu og fimm íbúðum
og húsum í Norðlingaholti en íbú-
um fer ört vaxandi. Blaðamaður
tók hús á nokkrum þeirra og kann-
aði aðstæður og viðhorf frum-
byggja í þessu nýja samfélagi.
Hafdís Engilbertsdóttir flutti í
hverfið fyrir tveimur mánuðum
ásamt eiginmanni sínum og
tveimur börnum á unglingsaldri
en elsta dóttirin er að koma sér
fyrir í næsta húsi fyrir neðan for-
eldra sína.
„Það tekur svolítið á þolrifin að
búa hérna ennþá,“ segir húsfreyj-
an. „Hér eru háværar vinnuvélar í
gangi allan daginn og hrúgur og
drasl úti um allt sem fylgja svona
nýbyggingum en þá lítur maður
bara til náttúrunnar hér í kring og
þá tekur maður gleði sína á ný.
En ég féll fyrir þessu svæði
þegar ég kom hingað fyrst, mér
fannst skipulagið flott og ekki
skemmir fyrir þetta dásamlega
útsýni sem maður getur notið af
þessum risastóru svölum,“ segir
húsfreyjan og býður blaðamanni
út á svalir en þar er fyrir fríður
vinkvennahópur Hafdísar að
kanna aðstæður frumbyggjans.
Hafdís fær tíðar heimsóknir í
nýja hverfið frá sínu fólki en hún
segist jafnframt vera orðin mál-
kunnug nágrönnum sínum svo hún
gerir ráð fyrir að Norðlingaholtið
verði ekki aðeins svefnbær heldur
einnig hlýlegt sveitasamfélag í
borginni. En henni þykir heldur
snemmt að hugsa um fullmótað
hverfi í Norðlingaholti því enn er
margt við hennar aðstæður sem
minnir hana á að hverfið er langt frá
því að vera það. „Hér er ennþá litla
þjónustu að hafa, hér er líka lítið um
að vera fyrir þá yngri enn sem kom-
ið er og svo fæ ég ekki Fréttablaðið
svo dæmi séu tekin,“ segir húsfreyj-
an og lítur í átt til Rauðhóla til að
taka gleði sína á ný. „Ég fæ þó að
minnsta kosti póstinn,“ segir hún
eftir að gleðin er tekin.
Í einni af þeim fáu blokkum
sem tilbúnar eru í hverfinu býr
Erna Björk Svavarsdóttir en hún
flutti inn um miðjan júní.
Hún segir að börn sín sem eru
á grunnskólaaldri kvarti mikið
undan því að ekkert sé um að vera
í þessu hverfi en hún er vongóð
um að líf færist í tuskurnar þegar
skólinn byrjar.
Hún gerir sér vonir um að hverf-
ið verði fjölskylduvænt þar sem
börn geti áhyggjulaust unað við leik
þar sem umferð verði ekki þung í
hverfinu og svo geta þeir sem eldri
eru gengið á göngustígum um
fallega náttúruna sem rammar
hverfið inn. „Ég held að þetta verði
svona sveit í borginni,“ segir hún og
er þegar farin að láta sig dreyma.
jse@frettabladid.is
HAFDÍS MEÐ GESTI Hafdís Engilbertsdóttir situr og spjallar við gesti sína. Næst henni stendur Björk systir hennar og henni á hægri
hönd er Svenný Jónsdóttir og þar næst Þórunn Böðvarsdóttir. Gestirnir virtust ánægðir fyrir hönd frumbyggjans og töldu hag hans hinn
besta í nýja samfélaginu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SIF VÍGÞÓRSDÓTTIR SKÓLASTÝRA Skólastýran lætur sér ekkert fyrir brjósti brenna
þótt skólastarfið verði í skálum fyrir framan rústirnar af hesthúsunum sem nýlega voru rif-
in. Enda hefur hún starfsfólk í kringum sig sem er með húmorinn í lagi og hátt óvissuþol.
Kaupfélagsstjórinn
í Holtinu
Óhætt er að segja að verslun og
þjónusta séu á frumstigi í Norð-
lingaholti enn sem komið er. Þar
er aðeins ein sjoppa sem heitir
Grillkofinn en nafnið gefur vel
til kynna stærð hennar og um-
svif. Þó hefur reksturinn tekið
nokkrum breytingum síðustu
mánuði.
Aðalbjörg Pálsdóttir var við
afgreiðslustörf þegar blaðamað-
ur kom í kofann og hún útskýrði
fyrir honum þróun verslunar í
Norðlingaholti. „Við eltum nú
bara iðnaðarmennina hingað úr
Grafarholtinu en við erum svona
farandmötuneyti og svo erum
við auðvitað með grill eins og
nafnið gefur til kynna,“ segir
Aðalbjörg meðan hún hellir upp
á rótsterkt kaffi.
„Íbúum hefur stórfjölgað í
hverfinu og þeir reka líka nefið
hingað inn í síauknum mæli og
þá sérstaklega til að kaupa það
sem gleymdist í stórmarkaðnum
svo ég kem til móts við þá þörf
og er komin með eitthvað af
heimilisvörum líka. Þannig að ég
er orðinn svona hálfgerður kaup-
félagsstjóri í hverfinu,“ segir
hún og hlær.
Grillkofinn fær þó ekki að
þróast mikið meira í Norðlinga-
holti þar sem hann hefur gert
samning við Reykjavíkurborg
um að metta maga iðnaðarmanna
á byggingarsvæðum og því
munu íbúar Norðlingaholts líta á
eftir Grillkofanum eftir tvö til
þrjú ár á annað svæði þegar öll
húsin verða upp komin á holtinu
við Rauðavatn.
AÐALBJÖRG PÁLSDÓTTIR Heldur
hjartanu í takti en verður svo að víkja
með Grillkofann þegar verslun og þjón-
usta verður komin á kopp í hverfinu.
Öll fjölskyldan getur tekið þátt
í þessum skemmtilega leik.
edda.is
1. vinningur: North Face göngutjald, Grivel Nepal ísöxi og
Grivel G 10 mannbroddar auk veglegs útivistar-
bókasafns sem inniheldur fjórðungskort af Íslandi,
hálendiskort og sérkort af helstu göngusvæðum Íslands,
s.s. Fjallabaki og Lónsöræfum, bækurnar Gengið um
óbyggðir og Þar sem landið rís hæst, auk Íslensks
jarðfræðilykils og Íslenskra fjalla.
2. vinningur: Meindl Colorado gönguskór og bækurnar
Gengið um óbyggðir og Þar sem landið rís hæst, auk
Kortabókarinnar.
3. vinningur: Göngustafir og bókin Gengið um óbyggðir.
Glæsilegir vinningar í boði fyrir göngugarpa
Sigraðu Vífilsfell
25% afsláttur
í Pennanum/Eymundsson
og Máli og menningu.
Taktu þátt í leiknum Sigraðu tindana sjö og
skelltu þér á toppinn á Vífilsfelli, einu helsta
útsýnisfjalli við Reykjavík, sendu okkur mynd
af þér á tindinum (tindar@edda.is) og fyrsta
áfanga af sjö er náð. Veglegir vinningar í boði
frá Útilífi og Eddu útgáfu.
Lista yfir tindana er
að finna í bókinni
Íslensk fjöll
Einmanalegt í strætó
Nýja leiðakerfi strætó skilur ekki íbúa
í Norðlingaholti út undan en leið 25
á sitt endastopp í hverfinu. Þeir sem
taka vagninn þar geta verið mættir
niður á Hlemm rétt rúmum hálftíma
síðar.
Þær upplýsingar bárust hins vegar frá
Strætó að von væri á stofnleið frá
Norðlingaholti þegar byggð þéttist á
svæðinu og þá geti íbúarnir brugðið
sér í einum gulum niður í miðbæ en
nú þurfa þeir að skipta um vagn við
Ártún.
Vagnstjórinn sem stóð vaktina þegar
blaðamann bar að sagði yfirleitt þó
nokkuð einmanalegt í vagninum þar
sem fáir virtust vera farnir að nýta sér
þessa leið.