Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 24
LAUGARDAGUR 6. ágúst 2005 23
Reykjavík Music Productions • Kringlan 7 • 103 Reykjavík • Iceland • Tel.: +354 534-9090 • Fax +354 534-9091 • info@reykjavikMP.com • www.reykjavikMP.com
LÆRÐU TÓNVINNSLU AF FAGMÖNNUM!
SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIN FER FRAM Á
WWW.TONVINNSLUSKOLI.IS
OG Í SÍMA 534 9090
Í fyrsta sinn á Íslandi er í boði alhliða nám í vinnslu dægurtónlistar frá fyrsta skrefi til þess síðasta með þeim aðferðum sem notaðar
eru í dag. Skráðu þig á námskeið í Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna og lærðu af einum reyndasta upptökustjóra landsins, auk margra
annarra, leiðina að fullkláruðu dægurlagi tilbúnu til útgáfu eða útvarpsspilunar. Kennsla mun fara fram eftir vinnu- og skólatíma,
því er hægt að stunda nám í skólanum jafnvel þótt nemendur séu í fullri vinnu eða í hefðbundnu dagskólanámi.
Tónvinnslunám – námsbraut A Tónvinnslunám – námsbraut B
Létt tónvinnslunám fyrir unglinga Létt tónvinnslunám fyrir 17 ára og eldri
Allir helstu þættir tónvinnslu eru kenndir; lagasmíðar,
hljómfræði, upptökur og upptökustjórn, útsetningar og
eftirvinnsla (mix & mastering). Námsbrautin hentar þeim
sem vilja læra framleiðsluferli tónlistar og þróa hæfileikann
til að semja sína eigin tónlist.
Lengd námskeiðs: 160klst.
Kennarar: Þorvaldur Bjarni, Vignir Snær Vigfússon,
Hrannar Ingimarsson, Róbert Þórhallsson,
Kjartan Valdemarsson og Roland Hartwell
Verð: 310.000 kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Hér er um að ræða tækniþátt tónvinnslunnar, þ.e.a.s.
upptökur, upptökustjórn útsetningar og eftirvinnslu (mix &
mastering). Þessi námsleið hentar þeim sem vilja sækja sér
frama við framleiðslu tónlistar.
Lengd námskeiðs: 120klst.
Kennarar: Þorvaldur Bjarni, Vignir Snær Vigfússon,
Hrannar Ingimarsson, Róbert Þórhallsson,
Kjartan Valdemarsson og Roland Hartwell
Verð: 268.000 kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Farið verður í grunntæknina við hönnun tónlistar fyrir
auglýsingar, kvikmyndir og eigin lagasmíðar. Stuðst verður
algjörlega við tónlistarforritið Reason og farið yfir mögu-
leika þess. Forritið er þeim kostum búið að það er hægt að
setja upp á öllum “venjulegum” heimilstölvum og ekki þarf
að versla annan búnað.
Lengd námskeiðs: 10 vikur
Aldur: 10-16 ára
Kennarar: Þorvaldur Bjarni, Vignir Snær og Gunnar Þór
Verð: 46.000 kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Á þessu námskeiði er farið ofan í helstu sálma framleiðslu
auglýsingastefja, kvikmyndatónlistar og eigin tónsmíða.
Stuðst er við tónlistarforritið Reason og farið yfir möguleika
þess frá A-Z.
Lengd námskeiðs: 3 mánuðir
Kennarar: Þorvaldur Bjarni, Vignir Snær og Gunnar Þór
Verð: 120.000 kr. (15% staðgreiðsluafsláttur)
Innskráning í haustönn Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna er hafin.
Námskeiðin sem haldin eru í skólanum eru um margt frábrugðin
öðru tónlistarnámi, þar sem námsskráin miðar út frá því að miðla
þekkingu um tónlistarbransann. Áhersla er lögð á hljóðversvinnu
og miðlun gagnlegra upplýsinga sem nýtist þeim sem vilja starfa
við tónlist í framtíðinni. Leiðbeinendur við skólann eru allt
valinkunnir fagmenn úr íslensku tónlistarflórunni.
Í Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna
er notast við tækjabúnað
frá Hljóðfærahúsi Reykjavíkur.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3
110 Reykjavík
Sími: 591 9000
www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Kr. 39.995 í 5 daga / 49.995 í 12
daga. Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna
og 2 börn. Súpersól tilboð, 12., 19. og
26. ágúst í 5 eða 12 daga.
Kr. 49.990 í 5 daga / 59.990 í 12
daga. Netverð á mann, m.v. 2
fullorðna. Súpersól tilboð, 12., 19. og
26. ágúst í 5 eða 12 daga.
Salou
Súpersól
12., 19. og 26. ágúst
frá kr. 39.995
Terra Nova býður síðustu sætin til Salou í ágúst ótrúlegum kjörum. Salou er
fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura,
glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Flestir félagar mínir heima á Ís-
landi þola ekki Röyksopp. Einfald-
lega út af því að Skjár einn hefur
notað tónlist þeirra undir dag-
skrárkynningum í allt of langan
tíma. Ég verð að viðurkenna að ég
heillaðist örlítið af síðustu plötu
norska rafdúettsins, Melody A.M.,
þegar ég heyrði hana fyrst. Í dag
myndi ég ekki hika við að nota ein-
takið sem bjórmottu, þökk sé
Marikó.
Því var svolítið erfitt fyrir mig
að nálgast þennan fylgifisk, en ég
beit á jaxlinn og lét mig hafa það
fyrir ykkur, elskurnar mínar. Þessi
tónlist er alveg jafn hönnuð fyrir
auglýsingar og dagskrárkynningar
og platan á undan. Þetta er alveg
merkilega mistæk sveit. Stundum
eru lögin alveg merkilega smekk-
laus og óspennandi, eins og annað
lagið Only This Moment. Ég veit
ekki af hverju, en þegar ég hlusta á
það fæ ég mynd upp í hausinn af
plastgínum í læknasloppum dans-
andi í ljósasjóvinu á Nasa. Allt
mjög sterílt, gervilegt og yfir-
borðskennt.
Svo, þegar söngkona sænska
raftdúettsins The Knife syngur í
laginu What Else Is There? þá
smellur allt saman. Það lag er al-
veg æðislegt. Þannig að þeir geta
þetta alveg, en virðast bara sætta
sig við einhverja meðalmennsku af
ótta við að móðga stíf og óupplýst
eyru. Kannski vantar þá bara at-
hyglisverðari rödd til þess að
syngja lögin sín?
Niðurstaða? Ekki leggja í þessa
plötu nema að þið hafið gaman af
Moby eða álíka auglýsingastefum.
Birgir Örn Steinarsson
Skjár 2?
RÖYKSOPP:
THE UNDERSTANDING
NIÐURSTAÐA: Nýja plata Röyksopp er ekkert til
að hrópa húrra fyrir. Augljóslega hæfileikaríkir
menn á ferð, en það er eins og þeir leyfi sér
ekki að blómstra.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
MÓÐIR Í HJÁVERKUM
Allison Pearson
GAMLA GÓÐA KAUPMANNAHÖFN
Guðlaugur Arason
KORTABÓK MÁLS OG MENNINGAR
Mál og menning
ALKEMISTINN
Paulo Coelho
FIMMTA KONAN
Henning Mankell
ELLEFU MÍNÚTUR
Paulo Coelho
ENGLAR OG DJÖFLAR
Dan Brown
KLEIFARVATN
Arnaldur Indriðason
ÍSLENSK FJÖLL
Ari Trausti Guðmundsson
DA VINCI LYKILLINN
Dan Brown
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
PS. ÉG ELSKA ÞIG
Cecelia Ahern
LJÓÐASAFN HANNESAR PÉTURSSONAR
Hannes Pétursson
ÞRIÐJA GRÁÐA
James Patterson
HÁVAMÁL
Vaka Helgafell
90 SÝNI ÚR LÍFI MÍNU
Halldóra Kristín Thoroddsen
BARÓNINN
Þórarinn Eldjárn
ÍSLANDSKLUKKAN
Halldór Laxness
SAKLEYSINGJARNIR
Ólafur Jóhann Ólafsson
KANTARABORGARSÖGUR
Geoffrey Chaucer
ÓDYSSEIFSKVIÐA
Hómer
Listinn er gerður út frá sölu dagana
27.07.2005. - 02.08.2005 í Bókabúðum Máls
og menningar, Eymundsson og Pennanum.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]