Fréttablaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 26
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
-
9
0
4
0
3
7
9
agstæð sumarhúsalán
Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað?
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt sumar-
húsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Lánið
getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til
framkvæmda er lánað allt að 75% af byggingar-
kostnaði.
Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar
nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst
á frjalsi@frjalsi.is.
www.frjalsi.is
5 ár 18.850 19.100 19.560 19.800
10 ár 10.580 10.850 11.350 11.610
15 ár 7.880 8.170 8.710 8.990
* Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Vextir % 4,95% 5,50% 6,50% 7,00%
Dæmi um mán. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
60%veðsetningarhlutfall
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 6. ágúst,
218. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 9.47 13.12 16.36
AKUREYRI 9.46 12.57 16.06
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Siv Friðleifsdóttir ekur um á Skoda
Octaviu sem hún kallar Skóda flotta,
enda hafa Skoda-bifreiðar fyrir löngu
breyst úr druslum í eðalbíla.
„Hann er bara æðislegur þessi bíll og ég
er rosalega ánægð með hann,“ segir Siv.
„Við höfðum heyrt að það væru mjög
hagstæð kaup að fjárfesta í Skoda og
þegar ég fór að skoða sá ég að þetta var
bíllinn sem hentaði okkar þörfum. Hann
er beinskiptur, með mjög góðu skotti sem
kemur sér vel því við erum mikið í fjöl-
skylduferðum innanlands og svo erum
við með hund. Við keyptum hann líka með
það í huga að ég þarf að vera mikið á
ferðinni úti á landi vegna starfsins og
þessi bíll kemst flest, líka í snjó, og er
sparneytinn. Þá er hann lipur og svo eru
sætin frábær. Það er löngu liðin tíð að
Skódinn sé einhver drusla, nú er það
Skódi flotti en ekki Skódi ljóti.“
Siv segist ekki hafa verið mjög upptek-
in af bílum í gegnum tíðina en fjölskyldan
á líka roskinn Toyota-jeppa sem er notaður
ef ferðinni er heitið á fjöll. „Toyota-bílarn-
ir sem við höfum átt hafa líka reynst okk-
ur einstaklega vel,“ segir Siv.
Þegar blaðamaður nær sambandi við
Siv er hún í Borgarfirðinum á leið norður
á Siglufjörð. Hún er búin að vera mikið á
ferðinni í sumar, ýmist með fjölskyldunni
eða tengt flokksstarfinu. Henni finnst
umferðarmenning Íslendinga hafa breyst
til hins betra á undanförnum árum og
þakkar það meðal annars auknum áróðri.
„Það hefur verið unnið markvisst að því,
bæði af lögreglu og Umferðarstofu, að
halda uppi áróðri og veita staðgóðar upp-
lýsingar. Áróðurinn er að skila sér og
hann veldur líka umræðu sem er af hinu
góða. Vegirnir eru líka miklu betri.
Maður hugsar nú bara til baka þegar fjöl-
skyldan var að fara í langferðir út á land,
oft á lélegum malarvegum. Þá var ekki
möguleiki að opna nokkurn glugga fyrir
rykmekkinum og svo þótti ekki tiltöku-
mál þó springi tvisvar, þrisvar í ferðinni.
Það hefur náttúrlega orðið algjör bylting
þó alltaf sé hægt að gera betur.“
edda@frettabladid.is
Ekki lengur Skódi ljóti
ferdir@frettabladid.is
Icelandair býður upp á
skemmtilegar sérferðir með
haustinu. Meðal þeirra má telja
sælkeraferð til Beaune-bæjar í
Frakklandi með Halldóri E. Lax-
ness leikstjóra. Innifalið í ferð-
inni er flug til Parísar, gisting í
þrjár nætur á góðu hóteli í
Beaune,
sælkera-
kvöldmáltíð
þar sem allt
er innifalið, vínsmökkun, íslensk
fararstjórn, rútuferðir til og frá
flugvelli erlendis, flugvallarskatt-
ar og þjónustugjöld.
Ferðin stendur yfir frá 11.-14.
nóvember næstkomandi.
Ferðamálayfirvöld í London
óttast alvarlegar afleiðingar fyrir
ferðamannaiðnaðinn í kjölfar ít-
rekaðra hryðjuverkaárása á
borgina. Talið er að tap ferða-
mannaiðnaðarins nemi um 300
milljónum punda síðan fyrstu
árásirnar voru gerðar fyrir mán-
uði. Áður hafði verið búist við
að árið 2005 yrði metár í að-
sókn ferðamanna að borginni.
Rússneskir geimvísindamenn
bjóða ferðamönnum upp á
óvæntan ferðamöguleika. Fyrir
hundrað milljón dollara
verður hægt að fara
út í geim og heim
aftur, rétt eins og að fara
í skoðunarferð kringum um
Baikal-vatn. Ferðin stendur yfir í
tvær vikur, fyrri vikan fer í þjálf-
un á geimrannsóknastöð í Rúss-
landi og svo farið af stað og
umhverfis tunglið á einni viku.
Ferðina þarf að bóka og greiða
með minnst átján mánaða fyrir-
vara en eflaust eiga einhverjir
auðkýfingar sér svo sterka
tungldrauma að hundrað millj-
ónir Bandaríkjadala séu alls ekki
of há upphæð til að greiða fyrir
að sá draumur rætist. Þetta
kemur fram á vefsíðu breska
blaðsins Guardian.
Siv ekur um á Skoda þegar hún er ekki á reiðhjóli, hún er nýbúin að selja mótorhjólið sitt, ekki alveg án trega.
LIGGUR Í LOFTINU
í ferðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP TÍSKA TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Mamma, hvernig
veit ég hvort ég
elska þig alveg
nógu mikið?
Kúrekahattaæði í sumar
BLS. 4
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is